Hlynur - 15.12.1972, Page 3
FORSÍÐAN: Titilsíða Vasakvers, sjá
grein hér á opnunni.
minni framan við langstrikið í
fyrsta dálki, og stendur þá
summan eða upphæðin, sú er
mann vita girnir, rétt niður und-
an þeirri ofanverðu tölu og beint
út frá hinni framan strikið.“
Siðan tekur hann nokkur hag-
nýt dæmi um notkun töflunnar,
sem sýnast gripin beint úr dag-
legu lífi fólks á þessum tímum,
og hljóða þau svo:
„Til dæmis: Kaupir maður 35
hundraða jörð og gefur 6 rd. fyrir
hvert hundrað, þá flettir maður
35 upp í fyrstu töflu ofan til, og
hyggur þá að 6 i fremsta dálki á
sömu blaðsíðu, og standa þá
beint út undan 6 og rétt niður
frá 35 i þriðja dálki 210, sem er
verðhæðin i ríkisdölum.
Item: Kaupir maður eða selur
36 ær, hverja fyrir 30 fiska, hvað
kosta þær þá allar? Flett nú upp
36 ofan strikið, og undir eins 30
í fremsta dálki, stendur þá upp-
hæðin, 1080 (eða 9 stór hundruð)
fiskar, sem ærnar kosta, rétt út
frá 30 og niður frá 36 í fjórða
dálki.
Item: Hvað mikið verða 65
stikur vaðmáls, þegar hver kost-
ar 5 álnir? Svar: 325 álnir, því
að sú upphæð stendur í fimmta
dálki beint niður frá 65 og út
undan 5, nær flett er upp eftir
þeim tölum.
Item: Hvað kosta 97 stykki
rekatiés, er hvert selst 12 fisk-
um? Svar: 1164 fiska (eða 9 stór
hundruð og 84 fiska), sem finna
má, nær upp er flett 97, rétt nið-
ur frá þeim og út undan 12, í
fimmta dálki.“
Margföldunartöflurnar í bók-
inni ná ekki nema annars veg-
ar frá tveimur upp í tuttugu og
síðan yfir tugina upp í eitt
hundrað, og hins vegar upp í
eitt hundrað, en höf. gefur einnig
leiðbeiningar um, hvernig fara
skuli að við að nota þær til
að margfalda saman hærri töl-
ur:
„Nú ber það tiðum við, að
menn kunna eigi að finna báðar
tölurnar í töflunni, sem menn
hafa í huganum, það er að segja,
nær þær báðar yfirganga ein-
hverja tugatöluna frá 20 til 100,
er standa i fremstu dálkunum
og ofan til, til dæmis maður vill
reikna hvað 68 ær kosti, þegar
hver selst 24 fiskum. Þá skal
fletta upp 68 ofan til, en 20 að
framan, og sér maður þá i fjórða
dálki, að 68 sinnum
20 fiskar eru ..... 1360 fiskar,
leitar síðan hve margt
er fjórum sinnum 68
og finnur það eru .... 272 fiskar,
sem hann setur þá rétt
undir hina summuna
(eins og hér er gjört),
leggur þá hvertveggja
saman, og verður þá
summan ............ 1632 fiskar,
(eða 13 stór hundruð
og 72 fiskar), sem er
verðhæð ásauðarins.“
Sömuleiðis kemur í ljós, að
höfundurinn telur sig verða að
gera ráð fyrir heldur bágu á-
standi i menntun alþýðu, því að
við þessa skýringargrein sína
setur hann þessa neðanmáls-
grein:
„Þeir sem nokkuð kunna að
skrifa, geta hæglega gjört þetta
eftir og lagt saman frá hægri
hendi til vinstri hvern töiudálk
fyrir sig, skrifandi þar undir á
hverjum stað sem minna er en
10, en bætandi hverjum 10 eða
tug við tölurnar næst að framan.
En þeir sem ekki kunna að
skrifa, verða að reikna slíkt í
huganum."
Okkur nútímamönnum kemur
það spánskt fyrir sjónir, að í
slíkri almannahandbók þurfi að
gera ráð fyrir því, að notendurn-
ir kunni hvorki að skrifa né
leggja saman á blaði hærri töl-
ur en sem nemur fyrsta tugn-
um. Hafa verður þó í huga, að
þetta er löngu fyrir daga barna-
skólanna, og þó að lestrar- og
skriftarkunnátta væri jafnan
tiltölulega útbreidd hér á landi,
hlaut hún að dreifast á nokkuð
tilviljanakenndan hátt, áður en
almenn barnafiæðsla var lög-
leidd.
Nokkur fleiri dæmi gefur hann
5- ■ mn?m SlÍlllB
llllll ■1111 = 2 13 14 55 16 37
r ■. cvn crn Cl*U CEÍt jí'Ut. cru ; erii cm cnt
2 6o' 62 64 66 2 é-8 70 7 =
3 ■ 93 96 cy 3 102 io5 ! - 1 H
4 12Q 1 -4 !■- I32. 4 136 140 •■■■■
5 150 : 60 14 5 170 175 !«0- 185
6 i o 1Í56 ! 9« 6 504 210 2'6 3-231 -
7 2 tO st 7 -■'4 2 5 I ? =38 24$ 2SÍ
8 ■340 2-,8 8 272 . - 2gQ : ■- -4
9 2 70 279 T S 8 - 97 306 515 3=4
io 7> lc 3:0 330 30 3 80 150 }6o .370 ..:
1J 341 >52 3f>l 13 ■ 37+ 3«5 34« 7
12 VO 384 VA 12 ;: :. 408 420 43' 484
13 V'® 4* 3 4.0 4-9 >3 ;;; 44=9 455 4«S 4íU
Í4 420 4 4 448 481 ‘4 376 490 5°4 -
::ÍS 4:0 a'H 4!io 495 "8 ;r- 5 = 5 <.|0 : 555 ;
: 480 4<J0 S*3 5=8 36 544 5<50 576 5-‘
17 5 10 527 544 561 4/ 578 59 5 6 12 62<?>
54° 5'8 57« 594 IS 6l2 65- 6 tS Ó6 5
'9 570 589 608 6:7 19 64 6 66 5 703
30 600 6:0 6.;-. 660 20 6Ö0 . - 720 74t>
3<; S-OQ VI- V -■- 990 3° XC20 1050 ÍQ&Q !t!t>
i:0O 1240 1*80 :: 1320- 40 I>6o I4QO 1440 >4)5»
'o i 5CO IS50 16 0 1650 50 1700 i?$0 1800 • li-
«-■ 18co 1S V. ; ‘9:0 lþ'5,0 fio 20:40 (2100
7 1 co 2170 2240 2^10 70 33SO 3450 * ÍSV'ý '
So 2.J-C0 =4bo 2'' ,80 2770 2800 =8 8 0 íítíí
0700 = 88° 2^70 80 3c(.o 3‘ 50 3=+o 35$.?
lvO , 3400 1.00 3400 3500 }6oo • 3700
Opna úr margföldunartöjlunni.
HLYNUR 3