Hlynur - 15.08.1981, Blaðsíða 29
Tímamótanámskeið að Bifröst
Rætt við Þóri Pál Guðjónsson
• Hver var aðdra^andinn að þessu
námskeiði?
— Hann var sá, að Vinnumála-
samband samvinnufélaganna fór þess
á leit við Samvinnuskólann, að
standa fyrir námskeiði fyrir verslun-
arfólk í hópi samvinnustarfsmanna,
í samræmi við ákvæði í síðustu
kjarasamningum verslunarmanna.
Er Verslunarskólinn einmitt nýbú-
inn að halda slík námskeið, að beiðni
Kaupmannasamtakanna.
Petta námskeið, sem Samvinnu-
skólinn hélt, stóð í fimm daga og
voru þátttakendur 23 talsins. Nám-
skeiðið var miðað við afgreiðslu-
fólk, sem hafði unnið 7 ár í verslun-
um eða lengur og komið upp í efsta
þrep síns launaflokks. Eftir nám-
skeiðið fer það upp í efsta þrep 16.
launaflokks, en flest var það áður
t níunda, ellefta og 13. launaflokki.
Pað var skilyrði í þessum kjara-
samningum, að vinnuveitendur ættu
að vera búnir að bjóða upp á svona
námskeið fyrir 28. október á þessu
ári. Ef ekki, þá færu þeir, sem rétt
áttu á námskeiði, beint upp í 16.
launaflokk. Á móti kemur, að not-
færi fólk sér ekki námskeiðin, þá
missir það af launahækkuninni.
— Hvað var kennt á þessu nám-
skeiði?
— Uppistaðan voru námskeiðs-
þættir, sem við höfum verið með
áður á verslunarnámskeiðum Sam-
vinnuskólans, s. s. almenn verslunar-
störf, samvinnuhreyfingin, þjónustu-
hlutverkið, meðferð reiknivéla,
fingrasetning og kennsla á búðar-
kassa.
Svo var farið í reikning, þ. e.
prósentur og vexti, meðferð ávísana
og helstu reikninga, svolítið í versl-
unarrétt og loks vorum við með
smá þátt í íslensku, þ. e. réttritun og
málvillur.
Pá má geta þess, að ef fólk hefur
verið búið að sækja námskeið áður
hjá okkur, þá hefur það ekki þurft
að vera fullan tíma og þar með hafa
þessi námskeið okkar að verulegu
leyti hlotið viðurkenningu. Náms-
• Hinn nýkjörni formaður LÍS,
Þórir Páll Guðjónsson, hefur svo
sannarlega haft í ýmsu að snúast
að undanförnu. M. a. var hann
námskeiðsstjóri á námskeiði, sem
haldið var fyrri partinn í septem-
ber að Bifröst fyrir verslunarfólk,
í samræmi við ákvæði í síðustu
samningum verslunarmanna. Hér
er um merkt nýmæli að ræða og
því þótti ráð að leita frekari upp-
lýsinga um þetta námskeið hjá
Þóri Páli.
efnið núna var ákveðið af Samvinnu-
skólanum og Vinnumálasambandinu.
Vinnuveitandi greiðir uppihalds- og
ferðakostnað, en þátttakendur sækja
námskeiðin að 2/3 hlutum í sínum
frítíma og Vj, hluta í vinnutíma.
Til viðbótar námskeiðinu, sem
var að Bifröst, þá eru ákveðin tvö
námskeið á Akureyri og eitt á Sauð-
árkróki fyrir 28. október. Síðar hefur
verið rætt um námskeið í Hafnar-
firði og á Hornafirði.
Pað er rétt að undirstrika það
sérstaklega, að þetta er fyrsta viður-
kenning á því, að þessi námskeið
leiði til launahækkunar og ég held
að það sé ekki vafi á því, að þetta
verður tekið meira og meira inn í
kjarasamninga í framtíðinni og þá
ekki aðeins hjá verslunarfólki, held-
ur öllum starfsstéttum.
— Hvað eru margir sem eiga rétt
á að sækja námskeið eins og þetta
sem var á Bifröst?
— Við höfum verið að giska á
að það séu um 150 manns a. m. k.
HLYNUR 29