Hlynur - 15.08.1981, Page 30
Frá verslunarnámskeiðum Samvinnuskólans. Efri myndin er af þátttakendum á nám-
skeiði á Hvolsvelli og sú neðri frá námskeiði hjá starfsfólki Kf. Kjalarnesþings.
Frá ritaranámskeiði á vegum Samvinnuskólans í Hamragörðum.
Mörg félög hafa ekki sinnt þessu
ennþá og tilkynnt þátttakendur og
ég hef grun um, að þessi möguleiki
hafi ekki verið kynntur sem skyldi,
bæði af fyrirtækjunum og stéttar-
félögunum. Svo kann að vera að
einhver hugsi ennþá sem svo, að
það sé kostnaðarminna að hækka
kaupið eins og samningarnir gera
ráð fyrir, og sleppa því að kosta við-
komandi á námskeið.
Annars vil ég segja um þann hóp
sem var núna á Bifröst, að þetta
var sérstaklega góður og áhugasam-
ur hópur og það er enginn vafi á
því, að gildi svona námskeiða fellst
ekki síst í kynningunni og því, að
þátttakendur fara að bera saman
reynslu sína í viðkomandi störfum.
Það er hins vegar alltaf erfitt að
meta árgangur af svona námskeiðum
í beinum krónum.
—■ Hvað er svo um önnur nám-
skeið hjá Samvinnuskólanum?
— Við höldum áfram með stutt
kvöldnámskeið, eins og við höfum
verið með undanfarin ár. Við reyn-
um svo að bæta við sérnámskeiðum,
t. d. í vefnaðarvörunni fyrir af-
greiðslufólk. Sl. vetur vorum við
með námskeið fyrir verkstjóra í
Iðnaðardeildinni, þ. e. tvo fyrstu
hlutana og eigum einn hluta eftir.
Petta er hins vegar allt spurning
um afkastagetu hjá okkur, því það
er mikil vinna að undirbúa ný nám-
skeið og útbúa námsefni. Sl. vor
hætti Pórir Þorvarðarson sem kenn-
ari hjá Samvinnuskólanum, en hann
var mikið í námskeiðahaldinu, en
Margrét Guðjónsdóttir mun taka að
sér kennslu á þessum námskeiðum
í staðinn. Svo munum við að sjálf-
sögðu fá kennslukrafta annars staðar
að eftir þörfum.
Við höfum reynt að fara sem
mest eftir óskum frá starfsfólki og
samvinnufélögunum með námskeið,
en við rennum því miður allt of
mikið blinnt í sjóinn með þörfina
fyrir hin ýmsu námskeið. Þar er
mikið verk að vinna og þarf að
kanna miklu betur.
Með þessum orðum þökkum við
Þóri Páli fyrir spjallið, enda þurfti
að fara að tygja sig á stjórnarfund
hjá LÍS. — R. I.
30 HLYNUR