Hlynur - 15.08.1981, Page 36
• Að þessu sinni er kveðið á
skjáinn í Búðardal í Dölum vestur,
og pistilinn sendir okkur Guð-
brandur Þórðarson, verslunarmað-
ur hjá Kaupfélagi Hvammsfjarðar.
Gefum nú Guðbrandi orðið.
Brag þennan orti Hallgrímur Jóns-
son frá Ljárskógum í tilefni af því,
að hann kom í búðina til Guðbrand-
ar Pórðarsonar og bað hann að gefa
sér pappír til að pára á. Pað var
auðsótt, en það kostaði vísu. Og þá
var þetta til. Braginn flutti Guð-
brandur á 5 landsþingi LÍS að Bif-
röst 5. og 6. sept. sl.
Einhvern tíma einhver var
í æri miklu pappírs hraki.
Árangurslaust alls staðar
æpti hann með rokna braki.
Ég er púra pappírslaus
penninn gagnslaus, líka andinn.
Hvað verður um mitt visku raus
ég vildi að kæmi einhver fjandinn.
Og hrifi mig af heljarþröm
ég heiti því að yrkja kvæði
ef bætist þessi kvöl og kröm
og kvöldið veitir eitthvert næði.
Og viti menn, ég hreppti og hlaut
af höndum Brandar pappírs snepil
og Brandi strax í lotning laut
og lamdi saman vísu gepil.
Til endurgjalds um ærna rausn
hjá innanbúðarlokudrengnum,
sem gaf mér svona ljúfa lausn
og leysti mig úr pappírs kengnum.
Og því skal Brandi þakkir tjá
já, þúsund faldar svei mér þá.
Og veitist auðnan honum hjá
og hækki hann ört uns megi hann ná.
Pví marki er allir ungir þrá
að eignast mey að hvíla hjá.
En ekki má sú auðargná
ófríð vera ljót né grá.
Nú liggur svei mér lífið á.
Leitað hvar sem finna má
og þegar lithýr lipurtá
loksins á þér festir brá.
Með ástarglóð frá toppi að tá
þá taktu hana já, já, já.
Og hérna skal nú amen eftir efni stá.
Eftirfarandi vísa varð til í starfs-
mannaferðalagi, ort af Árna L.
Tómassyni, en hann var starfsmaður
Kf. Hvammsfjarðar um margra ára-
tuga skeið.
Manninn gleður göfugt grín
gleði vakti á brautum.
Láttu ganga, ljúfan mín
líkn í öllum þrautum.
Ort í sláturhúsinu. Höfundur ó-
kunnir.
Geislar Svövu gleði á brá
grennist hún með hraði.
Pví hún lifir aðeins á
ástarsúkkulaði.
Ymsir vilja, enginn fær
ekki margir reyna.
Sá ég fjóra sitja í gær
sömu í kring um meyna.
Stolið hefur stálinu
stríði mun það valda.
En hann verður einhverju
út á við að tjalda.
Ráð við flestu kappinn kann
klár, af gömlum vana.
Setti mjúka sessu hann
sjálfur undir hana.
Pað er eitt, sem ekki má
inn í gæruskúr.
Það er að leggja eign sína á
annarra manna frúr.
Eftirfarandi vísu kom með gas-
hylki frá Indriða Pórðarsyni Keis-
bakka á Skógarströnd til undirritaðs.
Ástandið er afleitt hér
orku þrotinn kraftur,
Sendu kæri Kristinn mér
kútinn fullan aftur.
Gudbrandur Pórðarson.
36 HLYNUR