Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 32
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Atli Þór Albertsson, markaðs-stjóri Þjóðleikhússins, segir að þetta verði skemmtilegur vetur í leikhúsinu. Þjóðleikhúsið heldur upp á sjötíu ára afmæli á þessum vetri og sýningarnar verða fjölbreyttar og við allra hæfi. Leik- rit eftir íslenska höfunda eru þar á meðal, auk þess sem Þjóðleik- húsið er með marga af vinsælustu leikurum landsins í leiksýningum vetrarins. Vinsæl jólagjöf „Gjafakortin okkar eru mjög vinsæl sem jólagjöf. Einnig hafa þau verið vinsæl hjá vinnuveit- endum sem jólagjöf til starfs- manna. Gjafakortin renna aldrei út og halda alltaf raunvirði sínu. Fólk hefur komið til okkar með til dæmis átta ára gamalt gjafakort og við finnum þá út á hvað það var keypt,“ útskýrir Atli. „Áður fyrr stóð á kortunum að þau rynnu út eftir eitt ár. Því hefur verið breytt þannig að núna stendur að gjafakortið gildi fyrir sýningu að eigin vali í eitt ár en eftir það heldur það verðgildi sínu miðað við upphaflegt verð. Ef miðaverð hækkar er alltaf hægt að greiða mismun þannig að kortið er í fullu gildi á því verði sem það var keypt upphaflega,“ greinir hann frá og bendir á að miðaverð hækki ekkert endilega ár frá ári. „Gjafakort eru frábær kostur þegar starfsmenn fyrirtækja eru á mismunandi aldri því leikhúsið er fjölbreytt,“ segir hann. „Hægt er að hafa samband við okkur og fá tilboð þegar um fjölda gjafabréfa er að ræða.“ „Á hverju starfsári, sem stendur yfir frá því í ágúst til júní ári seinna, frumsýnum við fjöldann allan af sýningum. Þjóðleikhúsið leggur metnað í að vera með leik- sýningar við allra hæfi. Það eru framsæknar sýningar, klassík, ný íslensk sem erlend verk auk barna- og fjölskylduleikrita. Við teljum því að það sé ósköp auðvelt fyrir fólk að finna eitthvað spennandi og við sitt hæfi.“ Kardemommubærinn sýndur á afmælisári Uppáhaldsleikrit allra Íslendinga, Kardemommubærinn, verður frumsýnt í apríl á næsta ári en Atli segir að sú leiksýning fylgi hverri kynslóð. „Allir eiga sínar minn- ingar frá Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu,“ segir hann. Þetta fræga verk norska listamannsins Thorbjörns Egner var fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1960. Þá fór Róbert Arnfinnsson með hlut- verk Bastíans bæjarfógeta, Emilía Jónsdóttir var Soffía frænka en ræningjana þrjá léku þeir Ævar Kvaran, Baldvin Halldórsson og Bessi Bjarnason. Í nýju sýningunni verður Örn Árnason Bastían, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikur Soffíu frænku en ræningj- ana leika Hallgrímur Ólafsson, Sverrir Þór Sverrisson og Oddur Júlíusson. Sérstök gjafakort verða í boði fyrir Kardemommubæinn þannig að börnin geta glaðst um jólin og farið að hlakka til. Margt spennandi í boði Önnur stórsýning sem nú er á fjölum Þjóðleikhússins er Shake- speare verður ástfanginn. Hér er á ferðinni eldfjörugur, róman- tískur gamanleikur sem byggður er á Óskarsverðlaunamyndinni Shakespeare in Love. Þessu verki hefur verið einstaklega vel tekið af áhorfendum. Helstu leikarar eru Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Örn Árnason, Edda Björgvinsdóttir, Jóhanna Vig- dís Arnardóttir og Guðjón Davíð Karlsson. Atli segir að Einræðisherrann fari aftur á svið í vetur þar sem Siggi Sigurjóns fer á kostum sem Chaplin. „Þá get ég nefnt frábæra sýningu sem nefnist Útsending en þar fer Ingvar E. Sigurðsson með aðalhlutverkið. Hún fjallar um fréttamanninn Howard Beale sem er sagt upp störfum hjá banda- rískri sjónvarpsstöð eftir 25 ára starf. Hann tilkynnir áhorfendum að eftir viku muni hann svipta sig lífi í beinni útsendingu en við það rýkur þáttur hans upp í áhorfi. Þessi sýning var sett upp í Þjóð- leikhúsinu í Lundúnum og fékk frábærar viðtökur. Við göngum alla leið með þessa sýningu sem er sett upp eins og sjónvarpsútsend- ing. Reynsluboltinn Egill Eðvars- son stýrir sviðsmyndinni sem lítur út eins og venjulegt stúdíó. Þarna verða risaskjáir og kvikmynda- tökuvélar. Þetta er sýning sem á eftir að vekja athygli,“ segir Atli. Gagnvirk sýning Hann nefnir f leiri sýningar eins og Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur, Þitt eigið leikrit – tímaferðalag, fjölskyldusýningu eftir Ævar Þór vísindamann, þar sem áhorfendur kjósa reglulega á milli valkosta og stýra þannig framvindu sýningar- innar þannig að hún er gagnvirk. Í hverju sæti er fjarstýring þar sem áhorfendur geta sagt álit sitt og lært um leið á lýðræðið. Ástarsorg í Kópavogi „Síðan má nefna Kópavogskró- niku sem fjallar um unga, einstæða móður sem í kjölfar ástarsorgar dvelst langdvölum í Kópavogi. Ilmur Kristjánsdóttir og Silja Hauksdóttir hafa skapað söguna upp úr bók Kamillu Einarsdóttur,“ upplýsir Atli og er fjarri því allt upptalið sem í boði verður á þessu leikári. „Ætli þetta séu ekki hátt í tuttugu sýningar sem hægt er að velja um þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ljóst er að margt skemmtilegt og spennandi verður að gerast í Þjóðleikhúsinu í vetur. Fyrir þá sem vilja kynna sér sýningar betur er hægt að fara inn á www.leik- husid.is en þar má finna ítarefni og kaupa miða og gjafakort. Vongóðir upprennandi leikarar þreyta prufur fyrir uppsetningu Þjóðleikhússins á hinu sívinsæla leikriti byggðu á sögu Thorbjörns Egners um Kardemommubæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.