Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 40
Ísabella, eins og hún er venjulega nefnd, segir að sig hafi langað til að gera eitthvað meðfram
náminu. „Ég var búin að heyra af
sjálf boðaliðastarfinu hjá Rauða
krossinum og mig hefur alltaf
langað að vinna í verslun sem
selur notuð föt þannig að þetta var
kjörið tækifæri til að láta gott af
sér leiða. Þess utan finnst mér frá
bært að endurnýta fatnað,“ segir
hún.
Ísabella hefur aldrei áður starfað
í verslun af þessu tagi og segir að
þetta sé ný og ánægjuleg reynsla.
„Ég starfa um helgar í Rauða
krossbúðinni að Laugavegi 12
og þangað kemur alls kyns fólk,
yngra og eldra, jafnt Íslendingar
sem erlendir ferðamenn. Það er
mjög gaman að kynnast þessari
fjölbreyttu mannflóru sem kemur
í búðina. Í rauninni hefur komið
mér á óvart hversu mikið er að
gera og fólk er að gera frábær kaup.
Í Rauðakrossbúðunum eru mjög
flottir hlutir í boði á einstaklega
góðu verði,“ segir Ísabella og bætir
við að fólk ætti að gefa sér góðan
tíma í búðinni til að skoða vöru
úrvalið almennilega því margt
fallegt og vandað leynist þar.
„Sumir eru mjög sniðugir að finna
gersemar,“ segir hún.
Sjálf segist Ísabella kaupa mikið
í Rauðakrossbúðunum. „Þetta eru
þær verslanir sem ég kaupi mest
í. Ég hef keypt fallegar peysur og
góðar Levi’s 501 buxur. Svo eru
margir dásamlegir fylgihlutir eins
og töskur og silkiklútar sem ég
hef fallið fyrir auk yfirhafna sem
eru margar mjög flottar. Ég sjálf
(@gudrunisabella) fylgist oft með
Rauða krossbúðunum á Insta
gramsíðunni þeirra @raudakross
budirnar en þar birta þau oft hvað
þau eru að fá í búðirnar og það er
svo gaman að fylgjast með.“
Ísabella segist stundum vera
hissa á því hvað fólk er að gefa frá
sér en bætir við að það geti verið
margvíslegar ástæður að baki.
„Kannski er f líkin orðin of lítil eða
of stór, jafnvel hefur eigandinn
bara orðið leiður á henni og langað
að gefa henni nýtt heimili. Þá
kemur það öðrum til góða. Margt
af þessu eru gersemar fyrir þann
sem kaupir og styður um leið gott
málefni.“
Ísabella segir að Rauði krossinn
flokki fatnaðinn eftir verslunum.
Til dæmis fari merkjavörur mest í
verslunina á Skólavörðustíg, vand
aðar ullarpeysur komi á Laugaveg
inn ásamt alls kyns öðrum fatnaði
og á Hlemmi er mesta úrvalið
af barnafötum. „Það er ótrúlega
skemmtilegt að vinna sem sjálf
boðaliði og ein besta ákvörðun
sem ég hef tekið. Þetta er gefandi
og ánægjuleg sjálf boðaliðavinna
og ég er búin að kynnast fullt af
fólki. Síðan má ekki gleyma hversu
gaman það er að skoða þessi gömlu
föt. Sjálf er ég ekki búin að versla
hraða tísku í meira en ár. Við
þurfum ekki alltaf að kaupa nýtt.
Kaupum frekar notað, verum góð
við jörðina og látum gott af okkur
leiða.“
Margar gersemar leynast í
Rauðakrossbúðunum
Guðrún Ísabella Kjartansdóttir, nemi í umhverfis- og byggingaverkfræði við Háskóla Íslands,
gerðist sjálfboðaliði Rauða krossins í sumar. Hún starfar í Rauðakrossbúð á Laugaveginum.
Jóhanna Guðmundsdóttir, verk efna stjóri fjáröflunar hjá Rauða krossinum, segir
Mannvini mjög mikilvæga til að
hægt sé að halda úti því öfluga
starfi sem Rauði krossinn vinnur
bæði hér heima og erlendis. „Rauði
krossinn hefur alltaf verið með
styrktaraðila en Mannvinir, í því
formi sem þeir eru í dag, byrjuðu
árið 2010. Mannvinir eru sérstakir
að því leyti að helmingur styrksins
fer til verkefna erlendis og helm
ingurinn nýtist innanlands en oft
eru félög bara að styrkja verkefni
annaðhvort hér heima eða úti,“
segir Jóhanna.
Verkefnin sem Mannvinir
styrkja innanlands eru meðal
annars Hjálparsími Rauða kross
ins 1717, sem er opinn alla daga
allan ársins hring, og neyðarvarn
ir. „Neyðarvarnir eru til dæmis ef
upp kemur náttúruvá eða annað
slíkt. Við erum með sérþjálfaða
sjálf boðaliða til að bregðast við í
slíkum aðstæðum en þá þarf oft
að opna fjöldahjálparstöðvar og
veita stuðning á staðnum. Útköll
í sálrænum stuðningi hafa líka
aukist, en það er til dæmis ef það
verða slys og fólk er líkamlega í lagi
en þarf andlegan stuðning,“ segir
Jóhanna.
„Verkefnin sem Rauði krossinn
styður erlendis eru í anda þess sem
Rauði krossinn á Íslandi leggur
áherslu á. Við leggjum áherslu á
jafnrétti kynjanna og sérstaklega
á átaka og hamfarasvæðum. Það
þarf til dæmis að huga að því að
komið sé til móts við hreinlætis
þarfir kvenna út af blæðingum og
annað,“ segir Jóhanna. „Í augna
blikinu er áherslan á konur og
börn í Sómalíu og Malaví. Við
styðjum konur og börn í neyð,
styðjum við flóttafólk í Úganda og
svo sendifulltrúa í hjálparstarfi
erlendis.
Jóhanna segir að í Malaví sé
stuðningurinn fyrst og fremst við
ungbarnaeftirlit og mæðravernd.
„Við höfum líka stutt stúlkur
með því að byggja vatnsbrunna.
Það eru oftast stúlkur sem sækja
vatnið og með því að byggja fleiri
brunna og koma upp salernisað
stöðu aukum við líkurnar á því að
þær fari í skóla.“
Rauðinn krossinn á Íslandi
hefur lengi stutt við flóttafólk í
Úganda, meðal annars með því að
aðstoða Rauða krossinn í Úganda
við að byggja upp möguleikann á
því að veita sálrænan stuðning.
„Mannvinir eru mjög mikilvægir
fyrir okkur. Þetta er styrkur sem
skiptir gífurlega miklu máli til að
geta haldið úti hjálparstarfi. Þetta
er óeyrnamerktur stuðningur svo
við getum sett peninginn þangað
sem þörfin er mest. Segjum sem
svo að það fari að gjósa þá er
hægt að nýta fjármagnið sem fer
í verkefni innanlands og leggja
meiri pening í neyðarvarnir.
Eins ef það yrði aðkallandi neyð
erlendis, þá höfum við svigrúm til
að nýta þann helming sem nýttur
er erlendis til að aðstoða þar sem
neyðin er stærst. Í dag er til dæmis
mjög slæmt ástand í Sýrlandi og
við getum nýtt framlög Mannvina
til að bæta aðstæður kvenna og
barna þar,“ segir Jóhanna.
Hægt er að gerast Mannvinur
með því að skrá sig á mannvinir.
is eða hringja í síma 570 4000.
„Fólki er í sjálfsvald sett hvað það
vill greiða, en flestir eru að greiða
svona um 2.500 á mánuði,“ segir
Jóhanna. „Því fylgir engin skuld
binding að vera Mannvinur þetta
er bara frjálst framlag meðan fólk
hefur vilja og getu til.“
Mikilvægur styrkur fyrir hjálparstarfið
Mannvinir Rauða krossins styrkja starf Rauða krossins með mánaðarlegum framlögum. Um
14.000 Íslendingar hafa gerst Mannvinir og leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk í neyð.
Ísabella segir
að sér finnist
ótrúlega
gaman að
versla í Rauða-
krossbúðun-
um og þar sé
margt fallegt
að finna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Rauðakrossbúðirnar eru 13
talsins um allt land þar sem
seld eru notuð föt og skór á afar
góðu verði. Með því að versla í
Rauðakrossbúðunum eru tvær
flugur slegnar í einu höggi; gott
málefni styrkt og hugað að
umhverfinu þar sem föt ganga
í endurnýjun lífdaga. Sjálfboða-
liðar standa vaktina í búðunum.
Þú getur gerst sjálfboðaliði á
raudikrossinn.is
Jóhanna segir að Mannvinir séu mikilvægir fyrir Rauða krossinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Mannvinir eru
mjög mikilvægir
fyrir okkur. Þetta er
styrkur sem skiptir
miklu máli til að geta
haldið úti hjálparstarfi.
4 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R