Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 66
Moses, Kassim and Daud sjálfboðaliðar í viðbragðsteymi Rauða krossins. Chimwemwe Dibwa, 44 ára sjálfboðaliði í Chikwawa-héraði í Malaví.
Það var árið 1999 sem Rauðakrosshreyfingin sá ástæðu til að leggja mat á mögulegar
afleiðingar loftslagsbreytinga á
mannúðarstarf. Þá þegar var orðin
augljós nauðsyn þess að bregðast
hratt og örugglega við þeim nýja
veruleika sem við okkur blasir í
dag og er nú, nærri tveimur ára
tugum síðar, orðinn áberandi í
fyrirsögnum frétta sem aldrei
fyrr,“ segir Maarten van Aalst.
Hjá Loftslagsmiðstöðinni starfa
tæknilegir ráðgjafar sem frá árinu
2007 hafa aðstoðað Rauða kross
inn við að uppfylla grundvallar
skuldbindingar í loftslagsmálum.
„Það eru skuldbindingar sem
samþykktar voru á alþjóðaráð
stefnu Rauða krossins og Rauða
hálfmánans um samþættingu
þess sem nú er kallað loftslags
áhættustjórnun í stefnu og fram
kvæmd. Þar erum við í sambandi
við vísindasamfélagið til að
tryggja aðgang að bestu upp
lýsingum sem völ er á og hvetjum
til rannsókna þar sem þekkingu
skortir,“ útskýrir Maarten.
Stórar áskoranir fram undan
Maarten segir erfitt að tilgreina
hverjar séu helstu áskoranir Rauða
krossins þegar kemur að hamfara
hlýnun.
„Sannleikurinn er sá að við
stöndum frammi fyrir mörgum
gríðarstórum loftslagstengdum
viðfangsefnum. Hversu margþætt
þau eru má sjá þegar horft er á
afleiðingar fellibylsins Dorians á
Bahamaeyjum, monsúnrigningar
í Bangladess, fellibylinn Idai í
sunnanverðri Afríku og nú síðast
ofurfellibylinn Hagibis í Japan.
Reyndar er auðveldara að greina
hver næsta stóra áskorun getur
orðið, sem eru tengsl átaka og lofts
lagsbreytinga (e. conflictclimate
nexus). Eins og nafnið bendir til er
það oft nánast óleysanleg blanda
langvarandi átaka, mikillar fátækt
ar og erfiðra umhverfisþátta,“
segir Maarten og nefnir Sómalíu
og Jemen sem dæmi um svæði þar
sem þessi f lókni veruleiki er til
staðar. Hann segir Loftlagsmið
stöðina reikna með enn meiri
hlýnun í Evrópu á næstu árum.
„Það verður heitara, og ef ég á
að vera alveg berorður þá verður
hættulega heitt. Við munum sjá
óvenjulegar hitabylgjur í Evrópu,
líkt og þær sem við sáum á þessu
ári og sem veita okkur sterkar vís
bendingar um sýnilegar loftslags
breytingar.“
Viljum bregðast hratt við
Starf Loftslagsmiðstöðvarinnar
hefur áhrif á mannúðaraðstoð og
þróunarvinnu.
„Okkar vinna felst í ráðgjöf
sem gerir Rauða krossinum kleift
að vera viðbúinn því að veita
takmarkað fjármagn sitt, aðföng
og mannafla til svæða þar sem
auknar líkur eru á að hamfarir
muni skella á, hvort sem um er að
ræða hitabylgjur í Evrópu, óveður
í Karíbahafi eða slagveður eins og
þau sem undanfarið hafa skollið
á Japan, Bangladess og Indland,“
upplýsir Maarten.
Hann útskýrir hvað felst í
neyðaraðgerðum sem byggðar eru
á spám og býst við að sú aðferða
fræði verði nýtt í enn meiri mæli
hjá Rauða krossinum í fram
tíðinni.
„Hugtakið neyðaraðgerðir
byggðar á spám (e. forecastbased
action) hefur lengi verið í þróun
hjá Loftslagsmiðstöðinni. Í því
felst að nýta loftslagsvísindin til
að vera enn betur viðbúin. Oft eru
fyrir hendi veðurspár og loftslags
tengdar spár um auknar líkur á
óveðri, hitabylgjum, þurrkum
og þar fram eftir götunum, en
ekkert hjálparstarfsfólk er til
tækt til að bregðast við áður en
hamfarir skella á. Við viljum því
nýta spárnar til að bregðast hratt
við með skjótum viðvörunum og
skjótum aðgerðum.“
Drögum sem mest úr áhættu
Framtíðarsýn Loftslagsmiðstöðv
arinnar í samstarfi við landsfélög
Rauða krossins segir Maarten vera
að halda áfram verkefnum og veita
bestu tæknilegu ráðgjöf sem völ
er á.
„Við ætlum að bjóða fram
nýsköpun og veita innblástur
þeim milljónum sjálf boðaliða sem
starfa í fremstu víglínu. Elhadj As
Sy, framkvæmdastjóri Alþjóða
sambands Rauða krossins, tók svo
til orða: „Yfir 90 prósent náttúru
hamfara eru talin tengjast loftslagi
og þegar áhættuþættir eru skoð
aðir sést að loftslagsbreytingar
eru þar lykilatriði. Okkar hlutverk
er að draga úr áhættu og það að
koma til móts við þarfir þeirra sem
eru hvað berskjaldaðastir verður
enn mikilvægara á næstu árum.
Þörf fyrir mannúðarstarf Rauða
krossins mun því líklega aðeins
aukast“.“
Mannúðarstarf Rauða
krossins mun áfram aukast
Maarten van Aalst er yfirmaður Loftslagsmiðstöðvar Rauða krossins sem hefur aðsetur í Hollandi.
Rauði krossinn á Íslandi hefur í áraraðir sinnt langtímaþróunarsamstarfi ásamt
systurfélagi sínu í Malaví. Einn
helsti áhersluþáttur samstarfsins
er uppbygging sterkra neyðar
varna á helstu áhættusvæðum.
Náin samvinna Rauða krossins við
veðurfræðistofnanir og stjórn
völd í Malaví er mikilvæg undir
staða neyðarvarna og gefur Rauða
krossinum tækifæri til að virkja
viðbragðsteymi sín í tæka tíð.
Bætt samskiptatækni og sífellt
nákvæmari loftslags og veðurspár
gera Rauða krossinum kleift að
vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum
til viðbótar við þær neyðaraðgerðir
sem þarf að framkvæma í kjöl
far hamfara. Það segir sig sjálft að
mun betra er að veita fjármagn og
hjálpargögn til hamfarasvæða fyrir
fram og vera tilbúin að veita fólki
stuðning þegar hamfarirnar skella
á, heldur en að koma því á svæðin
eftir að neyðin kemur upp.
Fellibylurinn Idai gerði boð á
undan sér með miklu rigningar
veðri og sterkum vindhviðum
þann 5. mars, tíu dögum áður
en hann reið yfir Malaví. Þá var
strax ákveðið að veita fjármagn
úr neyðarsjóðum til viðbragðs
teyma Rauða krossins á lík
legum flóðasvæðum. Vel þjálfaðir
sjálfboðaliðar fengu boð um að
fara í viðbragðsstöðu og vopnuð
mælistikum, farsímum, trommum
og flautum fylgdust þau grannt
með aðstæðum. Þegar vatnshæð
áa náði upp að hættumörkum gáfu
þau viðvörunarmerki og sáu til
þess að þorpsbúar náðu að taka
sínar mikilvægustu eigur og flýja á
rýmingarsvæði. Rauði krossinn var
búinn að koma upp neyðarskýlum,
matvælum, salernum og hreinlæt
isaðstöðu á rýmingarsvæðum áður
en fólkið rýmdi þorpin. Þá voru
leitar og björgunarsveitir félagsins
virkjaðar til að hjálpa fólki, sem
eftir varð, að komast í öryggi.
Chikwawahérað í sunnanverðu
Malaví er eitt fátækasta hérað
landsins og eitt þeirra héraða sem
hvað verst fór út úr flóðunum.
Chimwemwe Dibwa, 44 ára
Samstarf við Rauða krossinn í Malaví
um neyðaraðgerðir byggðar á spám
Climate Centre,
Loftslagsmið-
stöð Rauða kross
hreyfingarinnar,
var stofnuð árið
2002. Maarten
van Aalst er yfir-
maður Climate
Centre sem
hefur aðsetur í
Hollandi.
sjálfboðaliði í Chikwawa, hlaut
þjálfun í neyðarvörnum í fyrra
og gekk í í kjölfarið til liðs við
viðbragðsteymi Rauða krossins
í þorpinu sínu. Þegar rigningar
veðrið hóf að magnast í upphafi
marsmánaðar fékk hún skilaboð
um að fylgjast með vatnshæð
Shireárinnar, sem hún býr við.
„Við setjum mælistiku í vatnið
og notum litakóða – grænt, gult og
rautt. Ef vatnið nær gula litnum
vitum við að þá er kominn tími
til að vara fólk við,‘‘ segir Chim
wemwe.
Eins og á Íslandi, felst styrkleiki
Rauða krossins í Malaví í starfi
deilda á vettvangi, þar sem fólk
úr sjálfum þorpunum á verkefna
svæðunum er sjálfboðaliðar sem
koma beint að framkvæmd verk
efna í sínu nærumhverfi.
6 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R