Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 34
Ég veit ekkert skemmtilegra en að prjóna. Ég ólst að miklu leyti upp hjá ömmu
minni og afa í Skagafirði og amma
kenndi mér að prjóna þegar ég var
fjögurra ára. Óhætt er að segja að
ég hafi orðið ástfangin við fyrstu
lykkju því mér þótti þetta svo
gaman,“ segir Hrund Pálmadóttir,
prjónakona með meiru.
„Ég prjónaði og saumaði föt á
dúkkurnar mínar þegar ég var
lítil stelpa. Ég var aldrei með
neina uppskrift heldur gerði bara
eitthvað út í loftið. Svo þegar ég
eignaðist börnin mín fór ég að
prjóna eftir uppskriftum en núna
hef ég mest gaman af því að hanna
sjálf það sem ég prjóna,“ heldur
hún áfram en prjónaf líkur eftir
hana eru orðnar eftirsóttar langt
út fyrir fjölskylduna.
Íslenska ullin er í mestu
uppáhaldi hjá Hrund og hún er
mjög hrifin af íslenska prjóninu
almennt. „Skemmtilegast finnst
mér að hanna og prjóna kápur úr
íslensku ullinni og nútímavæða
útfærslurnar á þeim, sem ég hef
ekki mikið séð gert,“ segir Hrund,
sem hefur prjónað f leiri kápur en
hún hefur tölu á.
Sér útkomuna fyrir sér
„Þegar ég byrja á nýju verkefni sé
ég oftast fyrir mér hvernig ég vil
að útkoman verði og byrja svo að
prjóna. Það tekur mig um sextíu
til sjötíu klukkutíma að prjóna
kápu, auk þess sem nokkur tími
fer í að sauma á þær spennur og
ganga frá lausum endum. Mér
finnst mjög mikilvægt að vanda
fráganginn svo f líkurnar endist
sem best,“ segir hún og bætir við
að því miður séu prjónavörur
sjaldnast metnar til fjár, mikil
vinna liggi að baki hverri f lík.
Hægt er að skoða og kaupa
handverk eftir Hrund á Facebook
undir heitinu Ástríða. „Ég
startaði Ástríðu árið 2011 í kjölfar
veikinda. Ég greindist með þung-
lyndi, kvíða, áfallastreituröskun
og vefjagigt eftir kulnun í starfi
og einelti á vinnustað. Persónu-
leg áföll áttu líka þátt í þessum
veikindum. Því miður gat ég ekki
unnið af heilsufarsástæðum og
vantaði tilgang í lífinu. Það er svo
mikilvægt að hafa eitthvað fyrir
stafni og þá tók ég fram prjónana
á ný en ég hafði tekið mér langa
Ástfangin við fyrstu lykkju
Hrund Pálmadóttir var ung að aldri þegar hún lærði að prjóna og fann strax að það átti vel við
hana enda fallegt sem hún skapar. Hún er einnig flink að smíða skart og skraut úr silfri.
Hér er Hrund í einni kápunni sem hún hannaði og prjónaði sjálf.
„Því miður gat
ég ekki unnið af
heilsufarsástæð-
um og vantaði til-
gang í lífinu. Það
er svo mikilvægt
að hafa eitthvað
fyrir stafni og
þá tók ég fram
prjónana á ný,“
segir Hrund.
MYNDIR/ÚR
EINKASAFNI
Íslenska ullin er í mestu uppáhaldi hjá Hrund og hún er
mjög hrifin af íslenska prjóninu almennt.
Hrund prjónar peysur og sjöl en hún smíðar einnig fagurt
skart úr silfri. Gerir aðeins eitt eintak af hverjum hlut.
pásu frá þeim. Það var eins og
heilun fyrir mig. Seinna bjó ég
til búð á etsy.com undir nafninu
AstridaDesign. Í fyrra greindist
ég með krabbamein og prjóna-
skapurinn hefur virkilega hjálpað
mér við að takast á við það,“
greinir hún frá.
Fyrir fáum árum lét Hrund
gamlan draum rætast og fór á
námskeið í silfursmíði. Hún heill-
aðist af silfrinu og hefur smíðað
skart og skraut af miklu listfengi
síðan þá. „Ég smíða úr silfrinu mér
til skemmtunar og geri bara eitt
eintak af hverjum hlut.“
Hrund segist hafa lært mikið og
þroskast við að ganga í gegnum
veikindi og telur sig betri mann-
eskju eftir þá lífsreynslu. „Ég er
hægt og rólega að jafna mig eftir
krabbameinsmeðferðina og stefni
á að opna vef búðina mína aftur
sem fyrst,“ segir Hrund, sem er
bjartsýn á framtíðina.
Svo þegar ég
eignaðist börnin
mín fór ég að prjóna
eftir uppskriftum en
núna hef ég mest gaman
af því að hanna sjálf það
sem ég prjóna.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.