Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 12
Þetta er hræðilegt
vopn og var notað
ítrekað í sýrlensku borgara-
styrjöldinni.
Hamish de Bretton-Gordon
- EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!
Ást á tímum mótmæla
Ástin blómstrar í Barcelona þrátt fyrir hörð mótmæli og mikla þjóðfélagsólgu. Mikil reiði blossaði upp í Barcelona, Terragona, Girona og f leiri
stórum borgum Katalóníu eftir að níu stjórnmálamenn sem stóðu að þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði fengu þunga fangelsisdóma. Aðskiln-
aðarsinnar hafa lokað vegum til og frá Katalóníu og hvatt til allsherjarverkfalls. Komið hefur til átaka við lögreglu. NORDICPHOTOS/GETTY
SÝRLAND Sameinuðu þjóðirnar
rannsaka hvort Tyrkir eða málalið-
ar þeirra hafi notað eiturefnavopn í
innrásinni í Kúrdahéröð Sýrlands.
Rauði hálfmáninn á svæðinu segir
að borgarar, þar á meðal börn, hafi
komið inn á spítala með dularfull
brunasár.
Helst leikur grunur á að hvítur
fosfór hafi verið notaður í sprengjur,
en það er algerlega bannað sam-
kvæmt alþjóðlega efnavopnasátt-
málanum. Hann bræðir húð og étur
sig í gegnum kjöt og bein.
„Þetta er hræðilegt vopn og var
notað ítrekað í sýrlensku borgara-
styrjöldinni. Því miður hefur
notkun hans verið normalíseruð,“
sagði Hamish de Bretton-Gordon,
fyrrverandi foringi í bresku efna-
vopnaleitarsveitinni. – khg
Grunur um
eiturefnavopn
Hvítur fosfór brennur mjög hratt og
mjög heitt. NORDICPHOTOS/GETTY
BRETLAND Boris Johnson sagðist
sannfærður um að koma útgöngu-
samningnum í gegnum þingið í
dag. Út á við hélt hann sig við sömu
tugguna um að Bretar væru orðnir
þreyttir á Brexit og tími væri kom-
inn til að ljúka málinu. „Það er ekki
til betri útkoma en sú sem ég mun
leggja fram á morgun,“ sagði hann
við breska ríkisútvarpið BBC.
Á bak við tjöldin geisar gríðarleg
barátta um að ná atkvæðafjöld-
anum upp í það sem þarf. 320 er
töfratalan.
Þeir hópar sem barist er um eru
harðlínumenn í Íhaldsflokknum, 28
talsins, útgöngusinnaðir þingmenn
Verkamannaf lokksins, 19 talsins,
og óháðir þingmenn, 36 talsins, en
þar eru meðal annars þingmenn
sem Johnson sjálfur rak nýlega úr
Íhaldsflokknum.
„Ég ætla ekki að láta plata mig
til að samþykkja dulbúna útgöngu
án samnings. En ég hef ekki enn
þá ákveðið hvað ég ætla að kjósa,“
sagði Phillip Hammond, einn af
þeim sem Johnson rak úr Íhalds-
flokknum. Fleiri þingmenn sögðust
liggja yfir samningnum í gær og áttu
eftir að gera upp hug sinn. Harð-
línumenn Íhaldsflokksins ætla að
funda fyrir atkvæðagreiðsluna og
sjá hvernig landið liggur.
Á meðan hefur stjórnarand-
staðan komið í gegn löggjöf sem
tryggir enn fremur að Johnson
Þinghóparnir
gætu tvístrast
Stund sannleikans rennur upp í dag fyrir Boris
Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um hvort
hann nær að koma útgöngusamningnum í gegnum
breska þingið. Þrír hópar, sem skipta mestu máli,
liggja nú yfir samningnum og gera upp hug sinn.
þurfi að sækja um enn frekari frest,
verði samningurinn ekki að veru-
leika. Evrópuleiðtogarnir hafa verið
mjög ósamstíga um frestinn en
stjórnmálaskýrendur eru á því að
ef samningur Johnson yrði felldur
og Bretar myndu sækja um frekari
frest yrði hann veittur.
„Ég tel að við (Evrópusambandið)
munum veita frekari frest. Mér
finnst kominn tími á að ljúka þess-
um samningaumleitunum,“ sagði
Emmanule Macron Frakklandsfor-
seti í gær. Hins vegar heyrðist frá
Angelu Merkel Þýskalandskanslara
í samtölum við Evrópuleiðtoga að
ESB gæti ekki ýtt Bretlandi út úr
sambandinu ef það kæmi ósk um
frestun. Jafnframt væri æskilegt
fyrir Evrópusambandið að reyna
að hafa sem minnst áhrif á stjórn-
málin í Bretlandi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Ég ætla ekki að láta
plata mig til að
samþykkja dulbúna út-
göngu án samnings.
Phillip
Hammond,
fyrrverandi
þingmaður
Íhaldsflokksins
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð