Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 12

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 12
Þetta er hræðilegt vopn og var notað ítrekað í sýrlensku borgara- styrjöldinni. Hamish de Bretton-Gordon - EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR! Ást á tímum mótmæla Ástin blómstrar í Barcelona þrátt fyrir hörð mótmæli og mikla þjóðfélagsólgu. Mikil reiði blossaði upp í Barcelona, Terragona, Girona og f leiri stórum borgum Katalóníu eftir að níu stjórnmálamenn sem stóðu að þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði fengu þunga fangelsisdóma. Aðskiln- aðarsinnar hafa lokað vegum til og frá Katalóníu og hvatt til allsherjarverkfalls. Komið hefur til átaka við lögreglu. NORDICPHOTOS/GETTY SÝRLAND Sameinuðu þjóðirnar rannsaka hvort Tyrkir eða málalið- ar þeirra hafi notað eiturefnavopn í innrásinni í Kúrdahéröð Sýrlands. Rauði hálfmáninn á svæðinu segir að borgarar, þar á meðal börn, hafi komið inn á spítala með dularfull brunasár. Helst leikur grunur á að hvítur fosfór hafi verið notaður í sprengjur, en það er algerlega bannað sam- kvæmt alþjóðlega efnavopnasátt- málanum. Hann bræðir húð og étur sig í gegnum kjöt og bein. „Þetta er hræðilegt vopn og var notað ítrekað í sýrlensku borgara- styrjöldinni. Því miður hefur notkun hans verið normalíseruð,“ sagði Hamish de Bretton-Gordon, fyrrverandi foringi í bresku efna- vopnaleitarsveitinni. – khg Grunur um eiturefnavopn Hvítur fosfór brennur mjög hratt og mjög heitt. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Boris Johnson sagðist sannfærður um að koma útgöngu- samningnum í gegnum þingið í dag. Út á við hélt hann sig við sömu tugguna um að Bretar væru orðnir þreyttir á Brexit og tími væri kom- inn til að ljúka málinu. „Það er ekki til betri útkoma en sú sem ég mun leggja fram á morgun,“ sagði hann við breska ríkisútvarpið BBC. Á bak við tjöldin geisar gríðarleg barátta um að ná atkvæðafjöld- anum upp í það sem þarf. 320 er töfratalan. Þeir hópar sem barist er um eru harðlínumenn í Íhaldsflokknum, 28 talsins, útgöngusinnaðir þingmenn Verkamannaf lokksins, 19 talsins, og óháðir þingmenn, 36 talsins, en þar eru meðal annars þingmenn sem Johnson sjálfur rak nýlega úr Íhaldsflokknum. „Ég ætla ekki að láta plata mig til að samþykkja dulbúna útgöngu án samnings. En ég hef ekki enn þá ákveðið hvað ég ætla að kjósa,“ sagði Phillip Hammond, einn af þeim sem Johnson rak úr Íhalds- flokknum. Fleiri þingmenn sögðust liggja yfir samningnum í gær og áttu eftir að gera upp hug sinn. Harð- línumenn Íhaldsflokksins ætla að funda fyrir atkvæðagreiðsluna og sjá hvernig landið liggur. Á meðan hefur stjórnarand- staðan komið í gegn löggjöf sem tryggir enn fremur að Johnson Þinghóparnir gætu tvístrast Stund sannleikans rennur upp í dag fyrir Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um hvort hann nær að koma útgöngusamningnum í gegnum breska þingið. Þrír hópar, sem skipta mestu máli, liggja nú yfir samningnum og gera upp hug sinn. þurfi að sækja um enn frekari frest, verði samningurinn ekki að veru- leika. Evrópuleiðtogarnir hafa verið mjög ósamstíga um frestinn en stjórnmálaskýrendur eru á því að ef samningur Johnson yrði felldur og Bretar myndu sækja um frekari frest yrði hann veittur. „Ég tel að við (Evrópusambandið) munum veita frekari frest. Mér finnst kominn tími á að ljúka þess- um samningaumleitunum,“ sagði Emmanule Macron Frakklandsfor- seti í gær. Hins vegar heyrðist frá Angelu Merkel Þýskalandskanslara í samtölum við Evrópuleiðtoga að ESB gæti ekki ýtt Bretlandi út úr sambandinu ef það kæmi ósk um frestun. Jafnframt væri æskilegt fyrir Evrópusambandið að reyna að hafa sem minnst áhrif á stjórn- málin í Bretlandi. kristinnhaukur@frettabladid.is Ég ætla ekki að láta plata mig til að samþykkja dulbúna út- göngu án samnings. Phillip Hammond, fyrrverandi þingmaður Íhaldsflokksins 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.