Vesturbæjarblaðið - jún. 2016, Blaðsíða 2

Vesturbæjarblaðið - jún. 2016, Blaðsíða 2
Um 20% færri fá fjárhagsaðstoð Notendum fjárhagsaðstoðar til framfærslu fækkaði á fyrstu þremur mánuðum þessa árs um tæp 24% samanborið við árið í fyrra, eða úr 1924 í 1469 manns. Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar til fjárhagsaðstoðar lækkuðu um ríflega 20% vegna fækkunarin- nar. Á síðustu árum hefur verið gripið til fjölbreytilegra ráðstafana til að auka þjónustu við þá sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu, einkum þá sem eru atvinnulau- sir eða sjúklingar. Ráðstafanir þessar eru ýmist alfarið á hendi velferðarsviðs eða í samstarfi við aðrar stofnanir. Má þar nefna að virkniráðgjafar voru ráðnir í upphafi árs 2010 til starfa á þjónus- tumiðstöðvum, Atvinnutorg opnaði í febrúar 2012, Stígur, þjónusta við atvinnuleitendur, var stofnaður í mars 2014, atvinnumáladeild var stofnuð hjá Reykjavíkurborg árið 2012, færniteymi með þjónustu fyrir óvinnufæra og matsteymið Velvirk hófu starfsemi árið 2014. Þá hefur verið lögð sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk og þá sem ljúka bótarétti sínum hjá Vinnumálastofnun. Skólplosun uppfyllir ströngustu ákvæði Losunarstaður skólps í Reykja- vík uppfylla ströngustu ákvæði reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni. Þetta er niðurstaða yfirgripsmikilla rannsókna þar sem fram kemur að frekari hreinsun skólps frá Reykjavík og nágrannasveitarfé- lögum myndi ekki leiða til bætandi áhrifa á umhverfið með tilliti til ofauðgunar næringarefna. Um 9,2 milljörðum varið til viðhalds borgarmannvirkja Reykjavíkurborg mun verja 9,2 milljörðum króna á þessu ári til uppbyggingar og viðhalds á mannvirkjum borgarinnar. Rúmum 700 milljónum verður varið til malbiksviðgerða og nýmalbikunar, unnið verður að uppbyggingu á skólahúsnæði þriggja grunnskóla og eins leikskóla auk viðhalds á öðrum skólabyggingum og áfram verður unnið að uppbyggingu útisundlaugar við Sundhöllina. Þetta kemur fram í fréttabréfi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Vatnsmýrin gríðar- lega mikilvæg Í máli borgarstjóra á fundi Viðsk iptaráðs ný lega kom fram mikilvægi þess að laða að fyrirtæki sem borga góð laun, mikilvægi hagkvæmra og afkasta- mikilla almenningssamgangna og að þétting byggðar væri mikið samkeppnismál til þess að gera borgina spennandi til búsetu. Borgarstjóri sagði að Vatnsmýrin væri gríðarlega mikilvægt svæði í borginni fyrir landið allt til þess að laða að tækni- og sprotafyrirtæki með báða háskólana og háskóla- sjúkrahús sem hryggjarstyk- kið í þeirri þróun. Nú þegar væri lyfjafyrirtækið Alvogen að hyggja á stækkun auk þess sem uppbygging höfuðstöðva tölvuleikjafyrirtæki- sins CCP muni hefjast innan tíðar. CCP hyggst nota um 7000 fermetra af um 11.000 fermetrum til þess að hýsa minni fyrirtæki sem spretta frá CCP eða innan úr háskólaumhverfinu. Um 44 milljarðar í hóteluppbyggingu U m f j ö r u t í u o g f j ó r u m milljörðum króna verður varið í núverandi áform um hótelupp- byggingu í Reykjavík en einnig verður lögð mikil áhersla á uppbyggingu atvinnuhúsnæðis undir þekkingarstarfsemi. Á síðustu tólf mánuðum er borgin búin að selja átta lóðir undir atvinnustarfsemi, sem er mun meira en í mörg ár þar á undan Stækkun Berg- staðastrætis 12 og endurnýjun Brennu Sótt hefur verið um leyfi til að byggja við norður- og austurhlið Bergstaðastrætis 12 og byggja lyftustokk utan á vesturhlið hússins. Einnig hefur verið sótt um leyfi til að endurnýja stein- bæinn Brennu á lóðinni og innrétta sem íbúð samkvæmt samþykktu deiliskipulag. Ensímframleiðsla á Grandagarði Sótt hefur verið um leyfi til að innrétta aðstöðu fyrir framleiðslu- fyrirtæki sem framleiðir ensím úr sjávarfangi í atvinnuhúsinu nr. 57-59 á lóð nr. 53-69 við Fiskislóð. Verslunarhúsnæði á Grandagarði 13 Samþykkt hefur verið leyfi til að innrétta verslun og þjónustuhús- næði á 1. og 2. hæð og til að koma fyrir skilti utan á húsið á lóð nr. 13 við Grandagarð. Joe and the Juice og Gló við Laugaveg 10 Sótt er um leyfi til að innrétta tvo veitingastaði, annan í flokki I sem verður staðsettur og hinn í flokki 2 við Laugaveg 10 þar sem veitingastaðurinn Asía var áður til húsa. Einnig er sótt um aðgengi frá Bergstaðastræti. Húsrif og viðbygging við Laugaveg 12 Sótt hefur verið um leyfi til að rífa austari hluta húss hækka þann vestari um eina hæð og byggja steinsteypta viðbyggingu, fjórar hæðir og kjallara, opna yfir lóðamörk á nr. 16 og innrétta nýtt anddyri/aðalinngang og stækkun á Hótel Skjaldbreið sem þar er á lóð nr. 12B við Laugaveg. Raðhús við Mýrargötu Sótt hefur verið um leyfi til að byggja raðhús, tvær hæðir og ris með tveimur íbúðum úr forsmíðuðum timbureiningum á lóð nr. 27 við Mýrargötu. Fjölbýli við Norðurstíg Sótt hefur verið um leyfi til að byggja þriggja íbúða steinsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum með innbyggðum tveggja stæða bílskúr á lóð nr. 5 við Norðurstíg. 2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Morgunblaðið 6. tbl. 19. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107 og 101. S T U T T A R b o r g a r f r é t t i r N ú er hafið niðurbrot húsa á svonefndum Brynjureit á milli Hverfisgötu og Laugavegar. Á sama tíma er verið að leggja lokahönd á nýjar byggingar á öðrum reit – Hljómalindarreit örlítið neðar við götuna. Ofar nær Hlemmi er einnig unnið en miklum endurbótum – byggingum nýrra húsa. Í þessum húsum sem byggð hafa verið, eru í byggingu og áformað er að byggja á næstunni verður komið fyrir íbúðum, verslunarrými, veitingastöðum og gistiaðstöðu. Gatan hefur einnig verið endurgerð að nokkru í vistgötustíl og umferð bíla takmörkuð. Um langt skeið var Hverfisgatan ein ömurlegasta gata Reykjavíkur. Um hana fór stríð umferð bíla á tveimur akreinum til austurs þar sem lítt var skeytt um umferðarhraða. Þessi miðborgargata var ekkert annað en hraðakstursgata á milli Lækjartorgs og Hlemmtorgs. Einstaka verslunarmaður þraukaði en flestir gáfust upp. Verslunarstarfsemi þreifst ekki og íbúar leituð burt í tímans rás. Margar byggingar urðu viðhalds- og umhirðuleysi að bráð. Héngu uppi – sumar hálf brunnar og ónýtar og aðrar setnar fólki sem lifði á jaðri samfélagsins – oftast háð áfengi og fíkniefnum. Þessi þróun á sér rætur í hugarfari sem algengt var á sjöunda og áttunda áratug fyrri aldar og jafnvel lengur. Augu manna beindust ekki að miðborginni. Miðborgarlíf þótti ekki eftirsóknarvert. Úthverfin áttu að heilla. Líf með görðum og grillum, stofum og matarboðum. Lengi var rætt um þörf á nýrri miðborg. Þær hugmyndir enduðu sem verslunarmiðstöð og leikhús í Kringlumýrinni en ekki önnur miðborg – sem betur fer. Síðar var tekið að færa dagvöruverslun að útjöðrum byggðar. Nær öll borgarþróun kallaði eftir einkabílnum. Nú kallar fólk eftir þjónustu til baka. Nær mannfólkinu. Uppbyggingin í Örfirisey er dæmi um svörum við því kalli. Á síðustu árum hefur önnur hugsun orðið til og ný viðmið skapast. Margt yngra fólk hefur tileinkað sér aðrar hugmyndir um borgarlíf og annan lífsstíl. Áhrifa erlendis frá gætir og mannleg samskipti fara meira fram á almennum stöðum á borð við kaffihús og öðrum veitingastöðum en á heimilum fólks. Miðborgin og svæði í nánd hennar - einkum Vesturbærinn hafa orðið vinsæl til búsetu og nú er verð fasteigna í þessum borgarhlutum það hæsta í höfuðborginni og sést best á að Þingholtin eru nú eitt dýrasta borgarhverfi Reykjavíkur. Þetta hefur aukið áhuga á að endurbæta miðborgina og endurskapa bæði mannvirki og lífsstíl. Hverfisgata er þar engin undantekning frekar en önnur miðborgar- og vestursvæði. Blómleg búseta, verslunarstarfsemi og gistiaðstaða eru að taka við af niðurníðslu, hústöku, hraðakstri og umferðarmengun. Ný hugsun Ný viðmið Vesturbæingar Þarf ekki að bæta aðstöðuna hjá KR? JÚNÍ 2016 ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs ko ar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.