Vesturbæjarblaðið - Jun 2016, Page 12
12 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2016
Verslunin Ellingsen hefur
fylgt Reykvíkingum lengur
en elstu menn muna enda er
hún eitt hundrað ára í dag 16.
júní. Þessi verslun er afrakstur
stórhuga manns Othar P. J.
Ellingsen skipasmiðs frá Krókey
í Naumdal í Þrændalögum. Hann
var ráðinn hingað 1903 til að
stýra Slippfélaginu sem þá var
nýstofnað. Kona hans var Marie
Ellingsen frá Kristiansundi í
Noregi.
Í upphafi tuttugustu aldarinnar
flutti norski skipasmiðurinn
Othar Ellingsen til Íslands og
með honum eiginkona hans
Marie. Hún gekk þá með fyrsta
barn þeirra hjóna en börnin
áttu eftir að verða sjö talsins.
Othar var fæddur 1875 og var
því 28 ára gamall þegar hann
tók við starfi framkvæmdastjóra
Slippfélagsins í Reykjavík. Segja
má að Íslendingasögurnar hafi
vísað Othari veginn hingað en í
viðtali sem Valtýr Stefánsson tók
við Marie Ellingsen í tilefni 70 ára
afmælis hennar segir hún frá því
að á unga aldri hafi Othar tekið
ástfóstri við þessar fornu íslensku
sögur og að strax þá hafi hann
haft hug á að komast til Íslands
ef ferð hingað byðist. Othar
geip svo tækifærið þegar staða
framkvæmdastjóra Slippfélagsins
í Reykjavík var auglýst laus til
umsóknar við stofnun þess 1902.
Hann sótti um starfið en þá var
Othar búinn að læra skipasmíði
í Noregi. Bréfið með umsókninni
var svo lengi á leiðinni að búið var
að ráða í stöðuna þegar það loks
barst til landsins en hann tók engu
að síður við stafinu.
Sérhæfði sig í sölu á
veiðarfærum
Árið 1916, eða fyrir réttum
100 árum, ákvað Othar að láta
slag standa og stofna sitt eigið
fyrirtæki og nefndi það Ellingsen,
verslun athafnamannsins, sem
sérhæfði sig í sölu á veiðarfærum
og ýmsum tækjum og tólum sem
tengdust útgerð og tók fljótt
flugið. Því var að þakka framsýni
þessa unga manns sem þá var
aðeins 36 ára og við hlið hans
stóð eiginkona hans, Marie, eins
og klettur. Hún tók að sér að sjá
um bókhaldið til að byrja með og
var alveg með á nótunum hvenær
herða þurfti sultarólina ef ekki
voru til nægir peningar. Þannig
tókst þeim í sameiningu að byggja
upp fyrirtæki sem átti eftir að
setja sitt mark á verslunarsögu
Íslands. Othar Ellingsen lést
1936 úr lungnabólgu og árið eftir
lést Dagný dóttir þeirra hjóna
og varð það Marie mjög erfitt.
Sonur þeirra Othar tók þá við
Ellingsen og stýrði fyrirtækinu
af glæsibrag næstu 58 árin, allt
til 1992 þegar synir hans, Óttar
Birgir og Steingrímur tóku við
stjórnartaumunum þar til ákveðið
var að selja allt hlutafé Ellingsen
til Olíuverslunar Íslands 1999.
Úr sjávarútvegi í útivist
Olíuverslunin rak verslunina
fram að síðasta ári að hjónin
Helga Sverrisdóttir og Bjarni
Ármannsson festu kaup á henni.
Á þeim tíma var hún flutt í
glæsilegt hús við Fiskislóð en hún
hafið lengi verið til húsa í eldri
byggingum þar skammt frá. Helga
segir að verslunin hafi breyst
mikið á síðustu árum. Áherslan
hafi færst frá útvegsvörum
til útivistar þótt enn sé verslað
með veiðivörur einkum fyrir
sportveiðimenn. Tengingin við
sjávarútveginn hafi því rofnað
nokkuð en nýir viðskiptavinir
komið í staðinn og þá fyrst og
fremst almenningur. „Við ætlum
okkur að vera hér með alhliða
verslun með útivistarvörur – bæði
fatnað og annað sem fólk notar til
ferðalaga og útivistar og áherslan
verður lögð á vandaðar vörur á
góðu verði. Fólk er hætt að koma
hingað til þess að kaupa kaðla
og nætur en ég man að þegar ég
var barn fór ég með afa mínum í
Ellingsen en hann hafði nótagerð
svona sem aukagetu. Ég var því
ekki há í loftinu þegar ég kynntist
Ellingsen fyrst,“ segir Helga
Sverrisdóttir. „Við búum líka vel
að því að vera með gott starfsfólk
sem sumt hefur fylgt versluninni
um áraraðir. Þetta fólk þekkir sögu
Ellingsen og er hafsjór af fróðleik
um bæði eldri og nýja tíma í sögu
verslunarinnar. Það er því mjög
auðvelt fyrir viðskiptavinina að
leita til þess auk þess sem sumt af
því er sjálft útivistarfólk – þekkir
hvað hentar hvort sem farið er á
fjöll eða bara í sumarbústaðinn.
Við leggjum allt upp úr að vera
fjölskylduvæn.“ segir Helga.
Vonast til að hitta gamla
og góða viðskiptavini á
afmælisdaginn
En hvað á að gera í tilefni af
afmælinu. „Við höfum verið að
selja fótboltatreyjur í tilefni af EM
í knattspyrnu og það hefur verið
erfitt að anna eftirspurninni,“
segir Helga. „Við verðum auðvitað
með heitt á könnunni og vonumst
til að sem flestir af föstum
viðskiptavinum okkar líti inn. Ég
veit að það verður mikið um að
vera og fólk er farið erlendis –
meðal annars á EM í Frakklandi
en einhverjir verða vonandi eftir
i bænum. Ég er full tilhlökkunar
vegna þessara tímamóta og að fá
vonandi tækifæri til þess að hitta
gamla og góða viðskiptavini í
gegnum tíðina.“
Ellingsen 100 ára
Othar og Marie Ellingsen ásamt börnum sínum.
- verslunin leggur áherslu á útivistarvörur í dag
Húsið í Hafnarstæti þar sem verslun Ellingsen var lengi til húsa.
Þar er veitingastaðurin Hornið nú og inn í vegg á veitingastaðnum
er peningaskápur smíðaður í Bergen í Noregi frá tíma Ellingsen
verslunarinnar.
Gömul mynd úr verslun Ellingsen.
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur
framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
Nú er verið að taka í notkun
nýja og stærri grenndargáma
fyrir pappír og plast ásamt
því að gámur fyrir gler hefur
bæst við á margar stöðvar
og mun þeim fjölga á næstu
tveimur árum.
Með bættu grenndargámak-
erfi eru fastir losunardagar á
öllum stöðvum og tíðni losunar
verður endurskoðuð með
hliðsjón af notkun gámanna.
Staðsetningar grenndar-
stöðvanna hafa ekki breyst.
Á öllum stöðvum eru gámar
fyrir plastumbúðir og á flestum
stöðvum er einnig hægt að skila
pappír, gleri, fatnaði og skila-
gjaldsskyldum umbúðum.
Lista yfir grenndargáma-
stöðvar er að finna á sorpa.is.
Nýtt og betra grenndargámakerfi
á höfuðborgarsvæðinu
- auknir flokkunarmöguleikar