Vesturbæjarblaðið - Jun 2016, Page 15
15VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2016
„Opnunin tókst frábærlega.
Hingað vor u allir mættir
klukkan sjö á fimmtudags-
morgni og biðröðin náði út
undir Íslandsbanka þegar mest
var,“ segir Agnar Kárason ver-
slun-arstjóri í BYKO Fiskislóð
en ný og endurbætt verslun
BYKO var opnuð 21. maí en
formleg opnunarhátíð samtímis
nýjum verslunum ELKO og
Rúmfatalagersins á dögunum.
„Viðtökurnar fóru fram úr
okkar björtustu vonum og allur
mannskapur hefur staðið sig
frábærlega vel.“
Hin nýja verslun BYKO er
nokkuð frábrugðin hinni eldri.
Leitast hefur verið við að allar
vörur séu sem aðgengilegastar
fyrir viðskiptavininn og mun
opnari en eldri verslun okkar
og virðist hafa tekist vel þótt
verslunin sé á minni gólffleti en
hin eldri. „Við breyttum skipu-
lagningunni nokkuð auk þess sem
við erum einnig með verslun á
útisvæði,“ segir Agnar þegar
hann gengur með tíðindamanni
um hina endursköpuðu verslun.
Skipulagningin er væntanlega
vísir að því sem við köllum fram-
tíðarverslun og við leitumst við
að sýna fólki á hvern hátt má gera
ýmsa hluti heima fyrir. Áherslan
hefur aðeins verið færð til og þá
tekið mið af staðsetningu verslun-
arinnar hér á Grandanum. Við
höfum verið að færa okkur nær
þörfum heimilanna og því sem
fólk er að sækjast eftir bæði þegar
það er að vinna sjálft á heimilum
sínum og eða fær iðnaðarmenn
til verka. Við byggjum einnig á
þeirri hugmynd að fólk finni til
ákveðinnar upplifunar við að
koma inn og fái hugmyndir um
hvað það getur gert heima fyrir.
En við höfum ekki lagt eldri
þjónustu sem einkum beindist
að iðnaðarmönnum af og erum
með timbur og lagnadeild eftir
sem áður þótt heimilisvöru-
deildin sé nokkru fyrirferða-
meiri og sýnilegri en var í eldri
versluninni. Þetta er einkum gert
til þess að mæta kröfum íbúanna
hér á svæðinu sem nær alveg að
póstnúmeri 105 og lengra.
Agnar kveðst bjartsýnn eftir
þær viðtökur sem verslunin hefur
fengið. „Grandinn er vaxandi
menningar- og þjónustusvæði
og fleira og fleira fólk leggur leið
sína hingað. Fólk þarf heldur ekki
að kvíða því að hitta ekki sama
starfsfólkið og áður þegar það
kemur í verslunina. Guðmundur,
Skæringur og aðrir reynsluboltar
eru hér áfram þótt við höfum
fært okkur aðeins til í húsinu og
gefið versluninni nýtt yfirbragð,“
Þessi eining BYKO, ELKO, Rúm-
fatalagerinn og Krónan er alveg
gríðarlega sterkt verslunarsvæði
með góðum nágrönnum og næg
bílastæði segir Agnar að lokum.
Frábær opnum
í BYKO á Granda
Verslun BYKO á Granda.
Guðmundur Bjarnason og Agnar Kárason verslunarstjóri í BYKO
Granda.
Endurbætt verslun BYKO á Granda.
EM-TILBOÐ
Hamborgaratilboð
á Mímisbar
á meðan EM 2016
er í gangi
ÁFRAM ÍSLAND
Radisson BLU Hótel Saga • Hagatorg • 107 Reykjavík • Ísland • hotelsaga.is