Vesturbæjarblaðið - dec. 2017, Side 10
10 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2017
AUGLÝSINGASÍMI
511 1188
Gómgleðjandi Gjafaöskjur
- sérsniðnar eða staðlaðar
að hætti hússins
Grandagarður 35 · 101 Rvk · 551 8400 · www.burid.is
Gefðu upplifun. Gjafabréf
í ostaskóla Búrsins er
tilvalinn í skóin.
Ostajól
Hillur svigna undan
gómgleðjandi ostum
og girnilegum
kræsingum.
Ákveðið hefur verið að endur-
skoða áform um uppbyggingu
stúdentagarða og stækkun á
vísindagarðareits á háskóla-
svæðinu og ætlar starfshópur
á vegum Há skóla Íslands og
Reykja vík ur borg ar mun fara yfir
áform um upp bygg ingu stúd-
entag arða og stækk un vís inda-
g arðareits á há skóla svæðinu.
Ástæður þess eru að Minjastofn-
un hefur gert alvarlegar athuga-
semdir við hugmyndir um
nýbyggingu við Gamla garð á
lóðinni nr. 29 við Hringbraut.
Í athugasemdum Minjastofn-
unar kemur m.a. að fyrirhuguð
bygging muni gerbreyta ásýnd
svæðisins og skyggja verulega
á Gamla garð sem hefur verið
að nokkru leyti falinn á bak við
hana. Starfshópurinn á að fara
yfir málið með það að mark miði
að góð sátt ná ist um nýt ingu
lóðar inn ar nr. 29 við Hring braut
og skilgreina aðra möguleika til
byggingar stúdentagarða. Í bókun
háskólaráðs kemur fram að um
mjög viðkvæmt svæði sé að ræða
og því mikilvægt að breið sátt
náist um nýtingu þess.
Áform um nýbyggingu við
Gamla garð endurskoðuð
Gamli garður við Hringbraut. Hluti af heildarmynd háskólasvæðisins.
Glæsibær - Álfheimar 74 - S. 544 4088 - www.ynja.is
Glæsilegur
náttfatnaður og undirfatnaður
í verslunni Ynju Glæsibæ
Sunnudagurinn 17. desember.
Messa kl. 11:00.
Sveinn Valgeirsson, prédikar og þjónar fyrir altari.
Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu í
umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.
Æðruleysismessa kl. 20.
Séra Fritz Már Berndsen og
Díana Ósk Óskarsdóttir leiða stundina,
Kristján Hrannar Pálsson leikur á flygilinn.
Þriðjudaginn 19. desember kl. 20.30-21.00.
Bach tónleikar Ólafs Elíassonar, frítt inn.
Fimmtudaginn 21. desember
Jólatónleikar Dómkórsins kl. 22.
Flutt verða hefðbundin jólalög
í bland við ný, erlend sem innlend.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Föstudagurinn 22. desember.
Mozart við kertaljós í
Dómkirkjunni kl. 21.00.
Kammerhópurinn Camerarctica heldur
sína árlegu kertaljósatónleika.
Aðgangseyrir er kr. 2800 og
kr. 2000 fyrir nemendur og eldri borgara.
Frítt er inn fyrir börn.
Aðfangadagur 24. desember.
Dönsk messa kl. 15:00,
séra Þórhallur Heimisson prédikar.
Aftansöngur kl. 18:00,
Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og
séra Hjálmar Jónsson þjónar.
Dómkórinn og organisti er Kári Þormar
Miðnæturguðsþjónusta kl. 23:30
sr. Karl Sigurbjörnsson biskup og
Hamrahlíðarkórinn stjórnandi Þorgerður
Ingólfsdóttir. Kári Þormar dómorganisti.
Jóladagur 25. desember
Messa kl. 11:00
Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir prédikar,
séra Sveinn Valgeirsson þjónar.
Annar í jólum 26. desember
Messa kl. 11:00
sr. Sveinn Valgeirsson prédikar,
Dómkórinn og organisti Kári Þormar.
Gamlársdagur 31. desember
Aftansöngur kl. 18:00
sr. Sveinn Valgeirsson prédikar.
Nýársdagur 1. janúar 2018
Hátíðarmessa kl. 11:00,
Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir,
sr. Sveinn Valgeirsson þjónar.
Dómkórinn og organisti er Kári Þormar.
Sjá nánar á fésbókinni eða domkirkjan.is.
Hjartanlega velkomin í Dómkirkjuna.
Hátíðarmessur og tónleikar
í Dómkirkjunni
Dómkirkjan óskar sóknarbörnum sínum og landsmönnum öllum gleðiríkra jóla og
Guðs blessunar á nýju ári, með þakklæti fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.