Vesturbæjarblaðið - dec. 2017, Side 14

Vesturbæjarblaðið - dec. 2017, Side 14
14 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2017 Frístundamiðstöðin Tjörnin stóð á dögunum fyrir réttindagöngu barna, en gangan er árlegur viðburður sem ætlaður er til að minna á barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og mikilvægi hans. Vikuna fyr ir gönguna lærðu börnin í frístundaheimilum Tjarnarinnar um sáttmálann og eigin réttindi, meðal annars í gegn um allskonar réttindasmiðjur, spurningakeppnir þar sem reynir á þekkingu þeirra á réttindum barna, ljóðasmiðjur og listasmiðjur tengdar þemanu, en rauði þráðurinn í starfi frístundaheimilanna er að börnin hafi val um þátttöku og viðfangsefni og að lýðræðisleg vinnubrögð séu í heiðri höfð þannig að raddir þeirra, skoðanir og þarfir leggi grunninn að starfinu. Börn í öðrum bekk í þjónustu Tjarnarinnar gengu þannig frá Skólavörðuholti og niður Skólavörðustíg, alla leið niður að Alþingishúsi, þar sem tekið var á móti áskorunarbréfum, en skorað var á stjórnvöld til að hafa réttindi barna hugföst og minnt var á þær skyldur sem barnasáttmálinn leggur á löggjafann í allri vinnu sinni. Eftir herlegheitin fór hópurinn í ráðhúsið þar sem tekið var vel á móti hópnum. Með réttindagöngunni lauk þemavikunni um réttindi barna, en vinnunni með lýðræðisleg vinnubrögð og réttindi barna er þó hvergi nærri lokið í frístundaheimilunum. Réttindaganga barna er árlegur viðburður Kröfuspjöldin voru litskrúðug. Börnin á leið niður Skólavörðustíginn. ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK Ný heimasíða: www.systrasamlagid.is www.facebook.com/Systrasamlagid Sími: 511 6367 AFGREIÐSLUTÍMI: Mán. - fös.: 9:30 - 18. Laugardagar: 11 - 16. MÖNTRU ARMBÖND & -HÁLSMEN Í einstaklega fallegum gjafaumbúðum. Silfur, gull, rósagull. Klassísk ást-vinagjöf. FLOTHETTAN Frábær hönnun og fáanleg í fjórum litum /munstrum: Tilboð 15.000 kr. til 17. des. Líka í netsölu á www.systrasamlagid.is VEGAN HÁTÍSKU- NAGLAKK Dýrðlegt litaúrval og gæði. Laust við 12 skaðlegustu efnin. JÁKVÆÐAR VATNSFLÖSKUR Vatnsflöskur úr þýsku ölpunum hlaðnar jákvæðum náttúrusteinum. Einstök gæðahönnun. Skoðaðu málið í Systrasamlaginu. JÓGADÝNUR Í JÓLAGJÖF Manduka í miklu úrvali. 20 ára saga: Einstök gæði Margar tegundir og fylgihlutir. Slökun í borg Sérstakur jólaafgreiðslutími: Lau 16/12: 11-18. Sun 17/12 : 13-17. 20-22/12 : 9.30-20. Þorláksmessa 11-22.30. Slökun í borg: Daglega 11.-19. des. kl. 16.30.

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.