Vesturbæjarblaðið - Dec 2017, Page 18
18 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2017
Sú var tíðin að við töldum að þetta snerist allt um okkur, í orðsins fyllstu merkingu. Við vissum ekki betur en að hnettirnir og allt það annað sem er fyrir „ofan” okkur,
væru á sífelldri hringrás um kjarna alls, jörðina og
mennina sem þar búa.
Þessi afstaða birtist okkur í margvíslegri mynd
og mikið hafa menn lagt á sig í gegnum tíðina
til að staðsetja sjálfa miðjuna. Steinaldarmenn
drösluðu ógnarstórum björgum frá einum stað
til annars sem líklega hafa táknað sjálft hjarta
heimsins. Í kristnum sið var Jerúsalem löngum
talin vera í miðjunni og reyndar má rekja upptök
hennar til þess er Jakob reisti stein á þeim stað
þar sem hann glímdi við Guð. Hjá Múslímum
var það borgin Mekka og þar ganga pílagrímar
í kringum steininn svarta. Egyptar slógu upp
mögnuðum steinturnum eða óbelískum með
oddhvössum enda sem benti ákveðið upp til
himins: Já, þetta er miðjan! Sumar þeirra voru um
síðir fluttar yfir Miðjarðarhafið til Evrópu þar sem
þær fengu sess á áberandi stöðum í borgum. Eitt
er í Vatíkaninu við hlið Péturskirkjunnar, rækilega
rammað inn af hringlaga formum. Það var eins
og páfinn hafi viljað sýna fram á að ferðalangar
sem þangað kæmu þyrftu ekki að leita lengra að
sjálfum kjarna alls: Hérna er hjarta alheimsins.
Engan skyldi undra að margur hafi orðið ókyrr
þegar hugmyndir komu fram um að miðjuna sé
hvergi að finna og að allt sé á fleygiferð. Þótt
fjarlægar stjörnur komi okkur í sjálfu sér ekki
mjög mikið við (nema ef við erum spennt fyrir
stjörnuspeki) þá höfðu þeir Kópernikus, Bruno,
Galilei og aðrir frömuðir vísinda og frjálsrar
hugsunar ekki bara áhrif á það hvernig við litum
á hringi, leiðir og hnetti uppi á himinhvolfinu.
Verk þeirra breyttu mestu um það hvernig við
litum á okkur sjálf. Í raun sendu þeir manninn
út á ómælisdjúpið, stefndu honum fjarri kjarna
alls þar sem hann fann sér ekkert fast land undir
fótum. Verst kom það sér fyrir valdhafana sem
höfðu markað sér stað í miðju alls. Starf þessara
vísindamanna var fyrir vikið áhættusamt og
sumir fórnuðu lífinu fyrir sannfæringu sína.
Miðjan skiptir greinilega máli
Senn gengur í garð þessi mikla hátíð sem er
á margan hátt ákveðinn upphafspunktur. Við
miðum jú tímatal okkar við atburðinn sem
guðspjöllin lýsa. Jólafrásögnin lýsir því þegar að
barn var lagt í lágan stall. Mitt í öllu því látleysi
umhverfist líf okkar og saga. Atburðurinn hefur
síðan verið endurfluttur
í málverkum, tónlist,
l e i k r i t u m o g m e ð
öðrum þeim hætti sem
mannsandinn kann til að
tjá það sem er stórt og
merkilegt.
Það er eins og við
séum búin að finna þar
ákveðna miðju. Hún er þó
ekki borin fram af þunga
auðs og valda heldur
þvert á móti í öllu látleysi fátækrar fjölskyldu
sem varð vitni að viðburði sem er í senn ofur
hversdagslegur og risastórt kraftaverk. Allir hafa
jú einhvern tímann fæðst en um leið er fæðing
barns á einhvern hátt stórbrotin og engu öðru lík.
Fæðingarfrásögnin er okkur hugleikin á jólum
og þá er jafnvel eins og við finnum til samhljóms
með liðnum kynslóðum. Séra Einar í Heydölum
orti á 16. öld tímalaust ljóð um vísnasönginn sem
hrærir vöggu Jesúbarnsins. Í allri þeirri rósemd er
ekki fjallað um himintungl sem svífa um geiminn
eða frekjulegar yfirlýsingar um að þessi staður sé
kjarninn, miðjan og hjartað. Í sinni vaggandi hægð
tekur skáldið líkingu af kjarna hvers manns, já
sjálfu hjartanu sem í brjósti okkar býr og hvetur
okkur til að gera það að bústað hins nýfædda
barns. Og til að undirstrika að miðja þessi er ólík
öðrum þeim sem veröldin þekkir og standa sem
minnisvarðar um yfirburði og völd yrkir skáldið:
Þér gjöri' eg ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég hitt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Við ættum að leita miðjunnar í eigin hjarta og
halda áfram að spyrja okkur stórra spurninga um
tilgang, líf og tilvist. Við vitum ekki betur en að í
öllu þessu stóra rými óreiðu, þenslu og aðdrætti
sé ekkert annað til sem kann þá list að spyrja,
trúa og leita að lífinu. Ef við öxlum ekki það
hlutverk, þá verður alheimurinn svo óendanlega
miklu snauðari fyrir vikið. Og sá sem lagður var
í jötu á hinum fyrstu jólum benti staðfastlega
á það að hið sanna og góða líf birtist í störfum
okkar fyrir náungann. Sífellt minnti hann á þetta
og sagðist sjálfur mæta okkur í okkar minnstu
systkinum. Þar er kjarni hins góða lífs.
Með öðrum orðum: Þetta snýst ekki um okkur.
Þetta snýst ekki
um okkur
Séra Skúli Ólafsson
sóknarprestur í
Nessókn.
Aðventuhugleiðing séra Skúla Ólafssonar
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðilega
hátíð
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári
og óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðbæjar og Hlíða
Aðfangadagur, 24. desember
Jólastund barnanna kl. 16
Helgistund fyrir börn og fjölskyldur. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu
Halldórsdóttur. Helgileikur með búningum verður settur á svið með viðstöddum.
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir dagskrána ásamt starfsfólki barnastarfsins.
Stundin styttir börnunum biðina og öll lifum við okkur inn í gleði og hátíð jólanna.
Aftansöngur kl. 18
Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng og Baldvin Oddsson leikur á trompet.
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista.
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt.
Prestar eru sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson sem prédikar.
Söngvar á jólanótt kl. 23.30
Sungnir verða jólasálmar og vonartextar Biblíunar lesnir. Háskólakórinn syngur og leiðir
söng undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir
stundina. Stund sem færir okkur kyrrð og helgi jólanætur eftir gleði og glaum kvöldsins.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarmessa kl. 14
Kór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar
organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt.
Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, sem prédikar.
Annar í jólum, 26. desember
Jólaskemmtun barnanna kl. 11
Við göngum í kringum jólatré og syngjum dátt. Kátir bræður koma í heimsókn,
gefa börnum jólaglaðning og skemmta ungum sem öldnum.
Umsjón hafa prestar og starfsfólk barnastarfsins.
Hátíðarguðþjónusta kl. 14
Hljómur, kór eldri borga í Neskirkju syngur undir stjórn Hildigunnar Einarsdóttur.
Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Eftir guðsþjónustu er hátíðarkaffi á Torginu.
Gamlárskvöld, 31. desember
Aftansöngur kl. 18.
Baldvin Oddsson leikur á trompet.
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista.
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Nýársdagur, 1. janúar
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista.
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Helgihald í Neskirkju
um jól og áramót