Brautin - 01.12.1965, Síða 2
2.
B R A U T I N
fíd lögreglunni
Vegfarandi, skammdegið fer í
hönd og því fylgir myrkur og oft
hálka, þér ber því að sýna aukna
varúð í umferðinni og leggja þitt
af mörkum til að forða hættu og
tjóni.
Nú á dögum eru það sjálfsögð
mannréttindi að hafa leyfi til að
aka bifreið. Ef þú hefur hlotið
þennan rétt ,hefur þjóðfélagið sýnt
þér traust og trúað þér fyrir verk-
færi, sem getur orðið stórhættulegt
við misnotkun. Þú mátt ekki bregð-
ast þessu trausti og verður að hafa
þroska til að hlíta settum umferðar
reglum. Menn, sem sett hafa þess-
ar reglur (umferðarlög nr. 26 1958)
hafa mikla reynslu og kunnáttu að
baki og er því ekki á þínu færi að
véfengja þær.
Óeðlilegt er, að lögreglan þurfi
að þvinga þig, með sektaraðgerð-
um, til að hlýða þeim lögum, sem
sett hafa verið þér til verndar og til
að koma þér sem greiðast frá einum
stað til annars.
Þú ert einn af þeim, sem fylgir
sjálfsögðum reglum, svo sem: Að
hafa bifreið þína í fullkomnu lagi,
leggja henni rétt og yfirgefa hana á
löglegan hátt, fylgir leiðbeiningum
umferðarmerkja og miðar hraðann
við færð og umferð. Þú hefur alltafr
tíma til að vera til fyrirmyndar í
umferðinni.
Þeir menn, sem brjóta umferðar-
lögin, hvort heldur er af vankunn-
áttu, gáleysi eða að yfirögðu ráði,
eru hættulegir umhverfi sínu. Lög-
reglunni ber að veita þeim mönn-
um aðhald, svo sem með sektarað-
gerðum. Oft hafa þessir menn ekki
þann þroska, sem af þeim er krafizt
og sýna lögreglunni, oft á tíðum,
mikla ókurteisi.
Vegfarandi, þú ert ekki einn af
þessum hættulegu fyrirbærum í
umferðinni.
Ölvuðum ökumönnum og ökuníð-
ingum má líkja við hungruð villi-
dýr í margmenni. í báðum ilfellum
eru þarna á ferð hættulegir fávitar
með hættulegt vopn í höndum. Þér
ber skylda til að gera allt ,sem í
þínu valdi stendur til að villidýrin
verði fönguð og þeim komið undir
lás og slá. Ef þú trassar þetta, það
varðar við lög, berð þú ábyrgð á
afleiðingunum, sem kunna að verða
örkuml eða dauði.
Ef þú ert gangandi vegfarandi,
ber þér ekki síður að hlíta settum
reglum og halda þig á þeim hluta
vegarins ,sem þér er ætlaður. Gang-
andi óvitar, hvort heldur þeir eru
5 eða 45 ára, eru mjög hættulegir
sér og öðrum.
Hættulegasti leikvangur barna
eru akbrautirnar.
Úr 37. gr. umferðarlaga:
Vegfarendum er skylt að sýna var
úð í umferð, gæta þess að trufla
ekki eða tefja að óþörfu aðra veg-
farendur og valda eigi þeim eða
öðrum, sem búa eða staddir eru við
umferðarleið, hættu eða óþægind-
um.
Sérstaka varúð skal sýna í nánd
við skóla, leikvelli og aðra staði,
þar sem vænta má, að börn séu að
leik. Sömuleiðis skal skylt að sýna
sérstaka varúð þeim, sem eru á ferð
Hljómleihar
Lúðrasveit Vestmannaeyja hélt
sína árlegu hljómleika fyrir styrkt-
arfélaga sína í Samkomuhúsinu sl.
föstudagskvöld, 26. nóv. Stjórnandi
var Oddgeir Kristjánsson.
Var 'húsið nærri fullsetið áheyr-
endum, sem tóku Lúðrasveitinni I
mjög vel, og varð hún að leika
mörg aukalög.
I hléi á meðan meginhluti sveit-
arinnar hvíldi sig, léku fjórir með-
limir sveitarinnar ásamt tveimur
öðrum nokkur vinsæl dægurlög við
góðar undirtektir áheyrenda. Voru
hljómleikar þessir í alla staði mjög
ánægjulegir og mega bæjarbúar
vera Oddgeiri Kristjánssyni og
hans mönnum þakklátir fyrir
þeirra skerf í fábreyttu menningar-
lífi þessa bæjar. Hafi þeir allir þökk
fyrir ánægjulega kvöldstund.
Nohliröf spurninaar
í síðustu tölublöðum Fylkis hafa
birzt langar greinar um ágæti
stjórnar Sjálfstæðisflokksins á bæj
arfélagi okkar. Ritstjórinn á ekki
nógu sterk orð til að lýsa því, hve
vel við stöndum okkur í saman-
burði við aðra sambærilega staði.
Ekki vill Brautin gera lítið úr
því, sem vel hefur verið gert í verk
legum efnum, en rétt er þó að minn
ast þess, að fáir kaupstaðir hafa úr
jafnmiklu að spila.
En Fylkir sæll, hvað um menn-
ingarmálin? í samanburði við aðra
„sambærilega staði“ er ég hræddur
um að okkar einkunn yrði lág.
Hvar er sjómannastofan?
Hvar er tómstundaheimilið?
Hvar er sundhöllin? I
Hvernig er búið að bókasafninu?
Hvernig er búið að byggðarsafn-
inu?
Hvernig er búið að leikstarfsem-
inni í bænum?
Hvernig er búið að leikvöllunum?
Hvernig er búið að elliheimilinu?
Og þannig mætti lengi halda á-
fram.
Maðurinn lifir ekki af brauði einu
saman. Því fyrr sem aðstandendur j
Fylkis skilja það, því betra. 1
og bera merki fatlaðs fólks.
Úr 61. og 62. gr. umferðarlaga:
Gangandi menn skulu nota gang-
stéttir og gangstíga, sem liggja með
akbrautum. Ef ekki er gangstétt
eða gangstígur meðfram vegi, skulu
menn að jafnaði ganga í hægri veg-
arbrún og aldrei fleiri en tveir
samhliða.
Þar sem merkt er gangbraut yfir
veg, skulu menn nota hana, ef þeir
ætla yfir veginn. Ef ekki er gang-
braut, skulu menn ávallt ganga
þvert yfir veg með jöfnum hraða.
Gangandi menn skulu gæta vel að
umfisrð, áður en þeir fara yfir veg.
Gangandi menn mega ekki safn-
ast á akbrautum, gangstéttum eða
gangstígum, þannig að þeir trufli
á nokkurn hátt umferð annarra.
Vegfarandi, öll þau boð og bönn
í umferðinni, sem sett eru af hálfu
þess opinbera, miðast að því að
tryggja öryggi þitt og þinna. Það
er því þitt að kynna þér þau.
Vestmannaeyjum, 26. nóv. 1965.
F. h. lögreglunnar,
Guömundur Guðmundsson.
HAPPDRÆTTI
Háskóla
tfann Vútin f
HASKOLANS
Islands
Endurnýjun
til 12. flokks
er
hafin.
Vinsamlega
endurnýið
sem fyrst.
UMBOÐSMAÐUR.
SAMKÓR VESTMANNAEYJA.
Hljómleikar
í Samkomuhúsi Vestmannaeyja sunnudaginn 5.
desember kl. 5,30 s. d.
Söngstjóri: Martin Hunger,
Einsöngur: Reynir Guðsteinsson.
Aðgöngumiðasala í Samkomuhúsinu laugardag
kl. 5—7 síðdegis og við innganginn.
STJÓRNIN.
SVEFNBEKKIRNIR komnir aftur.
Tvær gcrðir.
Húsgagnabólitrun
Kirkjuvegi 9A. Sími 1111.