Brautin - 01.12.1965, Blaðsíða 4
m lL 11 Útgefandi Alþýðuflokksfélögin í Vestmannaeyjum. — Ábyrgðar- maður: Jón Stefánsson. Prentsmiðjan Eyrún h. f.
STAÐSETNING SUNDHALLARINNAR
Á bæjarstjórnarfundi 26. nóv. s.l.
var svohljóðandi tillaga frá bæjar-
ráði samþykkt:
„Bæjarráð samþykkir að leita
staðfestingar á staðsetningu Sund-
hallarbyggingarinnar, skv. samþ.
bæjarstjórnar 18/5 1962, og bygging
arnefndar 15/5 1962, og að henni
fenginni að leita tilboða í verkið
skv. útboðslýsingu.“
Tillagan var samþykkt með 5 at-
kvæðum (meirihlutans) gegn 1
(mínu). Aðrir sátu hjá.
Þetta þýðir, að meirihluti bæjar-
stjórnar vill láta skerast í odda við
skipulagsstjóra ríkisins um staðsetn
ingu væntanlegrar sundhallar. Bæj-
ax-stjórnin samþykkti 18/5 1962 að
staðsetja sundhöllina norðan Hvít-
ingavegs, milli hans og sjúkrahúss-
ins.
Álit skipulagsstjóra ríkisins kem-
ur fram í bókun byggingarnefndar
frá 28/IO sl. svohljóðandi: „Skipu-
lagsstjóri vakti máls á áliti sínu
og skipulagsstjórnar um að óæski-
legt væri að skerða Stakagerðistún-
ið og finna þyrfti annan stað fyrir
fyrirhugaða sundhallarbyggingu. í
því sambandi benti hann á svæðið
sunnan íþróttaleikvangsins, er hann
taldi mjög heppilegan, einnig með
tilliti til að mögulegt væri að tengja
sundhallarbyggingu þarna væntan-
legu íþróttahúsi."
Vesalings Fylkir, það á sannar-
lega ekki af honum að ganga með
óheppnina. Hann er nú löngu orð-
inn frægur fyrir að vera hættulegri
sínum flokki og flokksbræðrum en
andstæðingunum. Þó virðist hann
nú ganga lengst í þessu í næst síð-
asta blaði, þegar hann er að ráðast
á Brautina fyrir að mæla gegn far-
miðaskattinum. Brautin skiptir nú
ekki um skoðun á þessu máli frem-
ur en öðrum, þó1 Fylkir skammist
og lætur sér allt fjas hans í léttu
rúmi liggja.
En Fylki skal góðfúslega bent á,
að það eru fleiri en Brautin, sem
VÍSAN.
Ef að þetta einhvcr Ies ,
á ég bendi honum,
að frægast kaffi 1. des.,
fæst hjá Líknar-konum.
Eg er skipulagsstjóra sammála
um, að óheppilegt er að byggja
sundhöllina á þeim stað sem bæjar-
stjórn ætlar sér.
Ef byggt verður stórt og nýtízku-
legt hús á þessum stað, þrengir það
mjög að sjúkrahúsinu, og þar með
framtíðar ráðhúsi bæjarins, og kem
ur til með að ræna það allri reisn.
Svipað og skeði í Reykjavík með
byggingu Bændahallarinnar, sem
rændi Háskólann og byggingar
hans mestu af virðuleik sínum.
Byggingar skólans líta nú helzt út
séð að sunnan og austan, sem and-
dyri og útihús frá Hótel sögu.
Bygging og rekstur sundhallar á
þessum stað myndi og valda sjúkl-
ingum sjúkrahússins miklu ónæði.
Eg hefði haldið, að bezta staðsetn-
ing sundhallarinnar væri vestan í-
þróttavallarins og er ég ekki einn
um þá skoðun. Þar gæti þá einnig
verið aðstaða fyrir frjálsíþrótta- og
knattspyrnumenn ,svo sem búnings-
og baðherbergi, og byggja mætti
húsið þannig, að jafnframt fengjust
upphækkaðir áhorfendapallar.
Forystumenn íþróttamála hér í
bæ hafa þó bent mér á, að nauð-
synlegt sé að staðsetja handbolta-
völl á þessu svæði. Ef það er rétt,
sé ég ekki aðra betri lausn en þá,
sem fram kemur í tillögu skipulags-
stjóra. Mm.
hafa andmælt þessum skatti, t. d.
stjói-nir Eimskipafélagsins og Flug-
félaganna og í þeim munu nú vera
ýmsir framámenn Sjálfstæðisflokks
ins, þar á meðal Birgir Kjaran, sem
er einn af helztu foringjum flokks-
ins. Bi-autinni þykir hann fá furðu-
lega kaldar kveðjur í Fylki fyrir að
vera á móti þessum skatti, en Fylkir
segir um Birgir (og Brautina):
„Geta það ekki talizt stórir karlar,
sem með réttu lofa það, sem ríkis-
stjórnin vel gerir, en reyna að
hlaupa í felur og þykjast hvergi
nærri koma, ef hún þarf að grípa
til ráða, sem fyrirfram er vitað aö
ekki verða vinsæl.“
Því slær þú mig? hefur vesalings
Birgir víst hugsað, þegar hann las
þessa ádrepu í Fylki, ef hann veit
ekki að Fylki er einu sinni þannig
farið, að í áfergju sinni við að
skamma andstæðinga sína, fer
venjulega fyrir honum eins og
stendur í vísunni, að:
„Ekki sér hann sína menn
svo hann ber þá líka“.
Orðsending
Kvenfélagið „Líkn“ og Vestmanna
eyjabær hafa ákveðið að beita sér
fyrir heimilishjálp.
Vitað er, að Reykjavíkurborg og
Akureyrarbær hafa haft á sínum
vegum heimilishjálp til handa heim
ilum, þar sem neyðarástand ríkir
vegna forfalla eða veikinda húsmóð
urur, hefur þetta gefizt vel og þótt
nauðsynlegt. —
Öll heimili skulu hafa jafnan
rétt til heimilishjálparinnai-.
Ráða skal stúlku og skal vinnu-
tíminn vera frá 9—5 e .h. virka
daga. — Hátt kaup.
Þær konur eða stúlkur, sem
kynnu að vilja taka að sér þetta
starf hafi samband við frú Jónu
Vilhjálmsdóttur, Bakkastíg 3, sem
veitir allar upplýsingar varðandi
launagreiðslu og vinnutilhögun.
Kvenfélagið „Líkn“.
o
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmarmabraut 31, Kaupangi.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Sími 1878. — Heirna 2178.
Minningarspjöld Sjúkrahússsjóðs
Kvenfélagsins Líknar, fást á eftir-
töldum stöðum:
Katrín Árnadóttir, Ásgarði.
Anna Þorsteinsdóttir, Austurv. 3.
Auður Guðmundsdóttir, Heiðv. 59
Jónheiður Scheving, Vestmbr. 57
JÓN HJALTASON hrl
Skrifstofa: Drífanda við Báru-
götu. Viðtalstími: kl. 4,30 — 6
virka daga nema laugardaga kl.
11 12 f. h. — Sími 1847.
í úuttu máli.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi var
samþykkt að fresta ákvörðun um
nýtt iðnaðarsvæði sunnan og austan
þurrkhússins, en þess í stað var á-
kveðið" að athuga betur með stað-
setningu fleiri fiskiðnaðarhúsa á
sjálfu hafnarsvæðinu.
Á sama fundi var samþykkt til-
laga frá Gunnari Sigurmundssyni
um að bærinn ráði Aðalstein Halls-
son, kennara, til að skipuleggja
barnaleikvelli bæjarins.
Ennfremur samþykkti meirihluti
bæjarstjórnar að festa kaup á hús-
eign Ágústar Bjarnasonar við Heið-
arveg (ef um verð og skilmála
semst) fyrir bókasafnið.
Bílamerg'ðin hér er orðin gífurleg
og fer sívaxandi, má segja að varla
komi Herjólfur hingað nokkru sinni
án þess að einn eða fleiri bílar séu
um borð. Með aukinni bílaumferð
eykst slysahættan og er því vel,
að lögreglan er farin að láta um-
ferðarmálin meira til sín taka en
áður hefur verið. Skulum við vona,
að með áfi'amhaldandi og vaxandi
afskiptum lögreglunnar af umferð-
inni, komist umferðarmenning okk-
ar að minnsta kosti á örlítið hærra
stig, en hún hefur hingað til á ver-
ið.
Mjög mikil síldveiði hefur verið
í Skeiðarárdýpinu að undanförnu
og má segja, að stöðug síldarlöndun
hafi verið hér nótt og dag nú í 4—5
sólarhringa. Mikið hefur verið fryst
í frystihúsunum eða eins og þau
hafa komizt yfir að vinna, hafa þó
síldarbræðslurnar að sjálfsögðu
fengið mest af síldinni og eru all-
ar þrær fullar og töluverðu magni
af síld hefur verið keyrt út í hraun
til geymslu, kom þar forsjónin
bræðslunum til hjálpar með norðan
átt og gadd og frysti síldina jafnóð-
um svo að hún geymdist betur. Er
þessari „djúpfrystingu" þó nú að
ljúka, því komin er suðaustan
bræla og þiðnar nú óðum.
í síðasta blaði var sagt frá plaggí
einu, er hengt var hér upp á götu-
horni, og innihaldi þess, var tekið
fram, að enginn dómur yi’ði lagður
á sannleiksgildi þess. Hundruð
manna sáu plagg þetta og var það
mjög umtalað í bænum. Þó ske þau
undur, að í Fylki eru bii-tar vítur á
Brautina og frásögn hennar talin til-
hæfulaus, þ. e. a. s. lygi. Ekki er
hægt að taka við slíkum „trakter-
ingum“, og eru þær hérmeð endur-
sendar til þess er þær samdi með
frómri ósk um, að hann taki víturn-
ar til endurskoðunar.
SEINHEPPINN SEM FYRR