Brautin - 04.12.1968, Side 1

Brautin - 04.12.1968, Side 1
22. árgangur Vestmannaeyjum, 4. des. Ií)ö8 5. tölublað 14vcr cr tilgangurinn? Guðlaugur Gíslason, al- þingismaður, ritar grein í Fylki þ. 22. nóv. sl., þar sem hann ræðir um fjármál Vatnsveitunnar og er í Sjálfu sér ekkert nema gott um það að segja. Þó eru í greininni ýmis atriði, sem gera þarf athuga semdir við, og gerði forseti bæjarstjórnar það í síðasta tbl. Framsóknarblaðsins, og hef ég þar litlu við að bæta. Þó vil ég ræða eitt atriði greinarinnar, en það eru að- dróttanir þingmannsins í sam bandi við kaup á dælustöð veitunnar. Eg hélt, satt að segja, að nú væri okkur meiri nauð- syn á öðru en aðdróttunum um óþarfa eyðslu og sérstak- lega, þegar um er að ræða atriði, sem þegar er búið að samþykkja einróma í bæjar- stjórn, eftir að umsagnir fær ustu manna lágu fyrir og eft i ir að búið er að ganga frá öllum samningum varðandi dælustöðina svo að litlu eða engu verður þar um breytt. Tilgangur þingmannsins getur því ekki verið sá, að breyta neinu varðandi kaup dælustöðvarinnar, heldur sá einn, að vekja tortryggni bæjarbúa og freistr. þess, að koma höggi á pólitízka and- stæðinga, hvað sem það kost ar. G.G. hlýtur að gera sér ljóst, að aðdróttanir um ó- þarfa eyðslu, svo milljónum eða milljónatugum skiptir, eru ekki vel til þess fallnar, að ná fram bráðnauðsynlegri aukningu á aðstoð ríkisvalds ins og lánastofnana við þess ar framkvæmdir. Hann virð ist fara eftir hinni mjög svo illræmdu kenningu Jesúít- anna gömlu, að tilgangur- inn helgi meðalið. Þegar svona stórar og margbrotnar framkvæmdir <er um að ræða hlýtur ýmis- legt að orka nokkuð tvímæl- is, meðan á framkvæmdum stendur, ýmislegt, sem reynsl an ein fær skorið úr um, hvort rétt hafi verið að stað ið eða hvort hagkvæmara hefði verið að gera á ein- hvern annan hátt. Eg gæti t.d. haft ýmislegt að athuga við gérðir fyrrverandi bæj- arstjóra í þessum efnum, en ég mun láta allar ásakanir bíða, þar til málið er komið í heila höfn. Þá verður bæði hann og ég og að sjálfsögðu fleiri aðilar að svara til saka, ef eitthvað reynist hafa far- ið úrskeiðis. Þangað til held ég, að öllum sé fyrir beztu að slíðra sverðin, varðandi þetta stórmál, en snúa held- ur bökum saman, því ekki mun af veita, eins og nú horfir í efnahagsmálum þjóðarinnar, ef vatnsveitan á að komast í heila höfn á viðunandi tíma. Saga dælustöðvarinnar er í stórum dráttum þessi: Þegar samið var um gerð fyrri neðánsjávarleiðslunn- ar, var þess krafist, að hún þyldi vinnuþrýsing, sem næmi a.m.k. 70 kg/cm2 (sem jafngildir 700 metra vatnssúlu). Þessi mikli þrýst ingur á að þrefalda flutnings getu leiðslunnar og þó nokk uð betur. Auðvitað var það því frá upphafi ætlunin að kaupa dælustöð, sem fram- leitt gæti þennan óvenju mikla þrýsting, annars hefðu kröfurnar, sem gerðar voru til leiðslunnar verið úlger- lega út. í hött. Þegar áætlunin um fram- kvæmdakostnað Vatnsveit- unnar var gerð, í júnílok 1967, var reiknað með að dælustöðin kæmi til með að kosta 7 millj. kr. (5 fyrir dælurnar og 2 vegna húss- ins). Var þá eingöngu stuðst við ágizkanir amerísks fyr- irtækis, sem framleiðir neð- ansjávarleiðslur, en ekki dælustöðvar. Næst gerðist það, að þekkt danskt dælufyrirtæki (Krug- er) var beðið að áætla kostn að við slíka dælustöð. Mjög lausleg áætlun þess hljóðaði up á liðlega 3 millj. fyrir dælusamstæðurnar, en fyrir- tækið taldi nauðsynlegt að húsið yrði um 1300 rúmmetr ar að stærð, ef dælur frá þeim ýrðu notaðar. Slíkt hús myndi kosta um 6 millj. þannig, að heildarkostnaður yrði um 9 millj. Þess skal getið, að dælusamstæður þessa fyrirtækið gátu aðeins skilað 50 kg/cm2 þrýstingi. Bæði fyrrnefnd fyrirtæki gerðu ráð fyrir stöðugri vakt á dælustöðinni og að að eins væri um að ræða, að Framhald á 2. síðu ATHUGASEMD Að gefnu tilefni í Fylki, frá 2. nóv. s.l. (Sindur) vil ég taka það fram, að ég skrifa engar greinar, hvorki í Brautina né önnur blöð, án þess að merkja mér þær. Bæði er, að ég vil ekki taka á mig ábyrgð af skrifum ann arra og heldur ekki láta aðra liggja undir ámæli af mín- um eigin skrifum. Annars finnst mér þær á- deilur, um veizluhöld bæjar- stjórnar, sem birtast hafa í „Sindri” að undanförnu, svo lítilmótlegar, að ég tel enga ástæðu til að svara peím. Fg vil aðeins láta þess getið, að engar veizlur hafa verið haldnar án samþykkis allra meðlima bæjarráðs, þ.m.t. fulltrúa Sjálfsfæðisflokksins, svo að „Sindur” beinir geiri sínum engu síður að þeim, en meirihluta bæjarstjórnar. Ef til vill er það einmitt til- gangur „Sindurs”. Annað atriði, sem „Sind- ur” staglast stöðugt á, eru laun mín sem bæjarstjóra. Þau voru á sínum tíma á- kveðin af bæjarstjórn og frá þeim hefir a.m.k. einu sinni verið skýrt í Fylki, svo að S.J. ætti að eiga auðvelt með að afla sér allra þeirra upp- lýsinga, sem hann telur sig vanhaga um Mm. Ungtempla raíélagið HAMAR STJÓRN HAMARS. Brautinni hefur borizt blað íslenzkra ungtemþlara. Suni- annál. Kemur Hamar, félag ungtemplara í Vestmannaeyjum, þar allmjög við sögu og þykir Brautinni bæði rétt og skylt að' vekja athygli bæjarbúa á starfsemi þessa félags, sem, þó það sé ekki nema rúmlega ársgamalt hefur náð hylli fjöl- margra ungmenna þessa bæjar og vill blaðið hvetja foreldra og ungmenni öll til að kynna sér nánar starf og stefnu Ham- ars. Tekur blaðið sér það bessaleyfi, félaginu til stuðnings ao birta hér það, sem í Sumarmálum stóð um Hamar. STUTT VIÐTAL VIÐ FORMANN HAMARS Syðsta ungtemplarféú'g á íslandi var stofnað 26. nóv- ember 1967 og er því eins árs um þessar mundir. Þetta er Hamar í Vestmannaeyj- um. Við, sem á meginland- inu erum, vitum næsta lít- ið um starfsemi þessa yngsta félags innan samtaka okkar, og því höfum við ieitaS svara við nokkrum spurn- ingum hjá formanni félags- ins, Þorkeli Guðfinnssyni. Þá er það fyrst urh upþ- hafið? Eg var boðinn á Jaðars- mótið 1967 og kynntist þá ungtemplarastariseminni. Við Sigmar Georgsson athug uðum síðan möguleika á að stofna ungtemplarafek.g í Vestmarmaeyjum. Undir- bjuggum við stofnunma, sem var 26. nóvember. Þrír ung- templarar komu á vegum ÍUT og aðstoðuðu okk’ r, en stofnendur voru 89. Og hvernig hefur gengið? Nú eru í félaginu um 200 unglingar á aldrinum 14—21 árs, flestir þó 14—16 ára, og áhuginn er mjög mikiil. Dansleikir og skémmíikvöld hafa verið hálfsmánaðarlega en í vetur verður auk þess opið hús í Gagnfræð'askólan- um í þriðju hverri viku. Hefur verið mik’ð sam- starf við önnur félög? Nei. Vegna mikils ferða- kostnaðar höfum við ekki getað tekið þátt í sameigin. Þorkell Guðfinnsson legum mótum í sumar. ÆU- unin er að reyna að fara með hóp á landsmótið næsta sumar og jafnvel að taka þá þátt í handbolta stúlkna. Hvað tm framtíðina? Eg er bjartsýnn. Þegar við verðum komin í Stúkuiiús:ð, sem kallað er, þá verður þetta allt miklu betra. Hús- ið er enn í byggingu, en Hamars-félagar hafa boðizt til að vinna eitthvað í sjálf- boðavinnu, og gæti það ílýtt fyrir því, að hægt verði að taka húsið í notkun. Bærinn hefur veitt okkur fjárliags- aðstoð, og margir aðrir hafa Framhald á 4. síðu

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.