Fréttablaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 16. febrúar 2015 | SKOÐUN | 13
www.sagamedica.is
Sama góða varan í nýjum umbúðum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
49
16
Ég nota
SagaPro
Helga Arnardóttir, húsmóðir
„Stóla á SagaPro á daginn“
Það er aldrei ánægjuefni að
horfa á eftir mönnum í fang-
elsi. Það hlýtur að vera þung-
bær reynsla að vera lokaður
inni, sviptur frelsi og án sam-
vista við fjölskyldu og vini. Því
fylgir mikil auðmýking, félags-
leg útskúfun og löskuð sjálfs-
mynd. Þegar dómur er fallinn
yfir fólki og það fer í fangelsi
eiga samborgarar þess að líta
svo á að máli viðkomandi sé
lokið og dæma það af verkum
sínum þaðan í frá; við eigum
að gefa fólki nýtt tækifæri að
lokinni afplánun og vona að það
eigi eftir að verða nýtir borgarar
sem veita hæfileikum sínum og
orku í farsælli farveg en áður.
Gildir þá einu hvað viðkom-
andi heitir og hefur gert. Mjög
ofnotað orð í þessu samhengi –
og ýmsu öðru – er „meðvirkni“,
eins og manni beri alveg sérstök
skylda til ævarandi haturs og
heiftar gagnvart mönnum sem
stóðu í misheppnuðu og ólöglegu
fjármálabralli. Það er ekki með-
virkni að hafa samúð með fólki á
erfiðum stundum ævinnar, jafn-
vel þótt það geti sjálfu sér um
kennt og jafnvel þótt það hafi
valdið öðrum umtalsverðum
skaða með framferði sínu.
Að vera– og vera ekki
Þar með er ekki sagt að maður
lifi sig inn í málflutning manna
sem vita varla sitt rjúkandi ráð
eftir áralanga afneitun, sem
nærð er af drjúgu tímakaupi lög-
manna sem gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að draga mál á
langinn.
Það er mikilvægur þáttur í
uppgjöri okkar við Hrunið að
dómsmál yfir helstu gerendum
þar hafi sinn gang, ótrufluð af
hundakúnstum verjenda, til-
raunum til að ónýta mál með
lagaklækjum og skertum fram-
lögum til sérstaks saksóknara,
eins og sterk öfl innan núver-
andi stjórnar flokka vilja gera.
En þegar málum er lokið með
dómi – sekt eða sýknu – eigum
við líka að hemja heift okkar og
dómgirni.
Lögmenn Kaupþingsmanna
hafa verið orðvarir eftir dóminn
og tveir hinna dæmdu hafa haft
vit á því að fara ekki að tjá sig í
fjölmiðlum um hann. Hinir tveir
sem tjáðu sig höfðu lítinn sóma
af því. Það er fráleitt að láta
eins og mannréttindi hafi verið
brotin á mönnum fyrir þá sök að
rétta yfir þeim fyrir markaðs-
misnotkun og sýndarviðskipti
sem urðu til þess að gjaldeyris-
varasjóður íslensku þjóðarinn-
ar gufaði upp í Money-heaven.
Það heyrir ekki undir mannrétt-
indi að vera undanþeginn lögum.
Samfélagið virkar ekki þann-
ig að það sé komið undir okkar
eigin mati hverju sinni hvort við
brjótum lög eður ei, eða manna
sem við kaupum til að vera sam-
mála okkur. Maður skyldi ætla
að einhver af þeim lögmönnum
sem þessir menn hafa – með tugi
þúsunda á tímann – ætti að geta
útskýrt réttarríkið fyrir umbjóð-
endum sínum þegar þeir stíga
nú niður úr sinni Money-heaven-
vídd. Dómstólar dæma og við
virðum dóma þeirra. Látum þá
okkur helst af öllu að kenningu
verða.
Og hver er sú kenning? Til
dæmis að vanda sig. Að iðka
dyggðir en ekki lesti. Að vera
hæversk, samviskusöm, nægju-
söm, heiðarleg, raunsæ og
reglusöm. Að vera lengi að taka
ákvarðanir en ekki skjót til
ákvarðanatöku; að eiga fyrir því
sem keypt er; að greiða skuldir
sínar; að hafa langar boðleið-
ir en ekki stuttar: vera form-
föst, nákvæm, kurteis, mild í
framkomu og laus við hroka.
Með öðrum orðum: Að vera allt
það sem útrásarvíkingarnir
voru ekki og vera aldrei eins
og útrásar víkingarnir voru. Þá
kann okkur að farnast vel.
Tryllitæki markaðarins
Við ættum helst ekki að ein-
skorða uppgjör okkar við til-
tekna einstaklinga sem hafi
sökum síns illa innrætis misnot-
að frelsið sem veittist með inn-
göngunni í EES. Þetta var ekki
þannig. Þetta var sambland af
aðstæðum og hugmyndafræði og
eitruðu samspili þar á milli.
Íslendingar kunnu ekkert á
óheft viðskipti. Þeir voru eins og
Gosi spýtustrákur í bæjarferð,
og eyrun strax farin að lengjast.
Þeir voru eins og krakkar sem
komast undir stýri á tryllitæki
án nægilegs undirbúnings og
djöflast af stað án fyrirhyggju
og grunlaus um torfærur, hindr-
anir og gjótur. Og þegar slíkt
varð á vegi þeirra – þá hækkuðu
þeir bara viðskiptavildina með
velþóknun endurskoðendanna
sem enn starfa eins og ekkert
hafi í skorist.
Bankarnir voru fullir af
krökkum úr þjóðardjúpinu. Þau
voru vel gefin og vel menntuð á
sína vísu, þó að augljóslega hafi
vantað í viðskiptamenntunina
annars vegar þjálfun siðvits og
hins vegar almenna skynsemi.
Þau voru ekki illa innrætt en þau
voru haldin ranghugmyndum.
Þeim var innprentað að pening-
ar væru einhlítur mælikvarði á
verðmæti og réttlæti; Markaður-
inn væri óbrigðull og óskeikull,
Forsjónin sjálf. Úrskurðir hans
væru alltaf réttir og endanlegir
en maður yrði að vera klókur og
ófyrirleitinn til að lifa af. Maður
yrði að snúa á aðra. Gróðinn
væri markmið og mælikvarði og
lífið liði frá einum díl til annars.
Yrði manni á myndi Markað-
urinn refsa manni en græddi
maður á dílnum hefði maður
haft rétt fyrir sér. Þau trúðu því
að ekkert mætti verða til þess að
hindra að Markaðurinn fengi að
hafa sinn gang og fara sínu fram;
það væri eins og að grípa fram
fyrir hendurnar á Forsjóninni
sjálfri. Afleiðing þessarar stefnu
var allsherjar afnám á reglu-
verki og eftirliti með bönkunum.
Þetta var hugmyndafræðin sem
smaug um allt samfélagið, og
eins og við vitum af reynslunni
af alls konar öðrum lokuðum og
alskýrandi hugmyndakerfum,
endar það með ósköpum þegar
heilu þjóðfélögin ánetjast þeim.
Það var þessi hugmyndafræði
sem felldi samfélagið, ekki inn-
ræti einstakra manna.
Meira? Já Ísland getur ekki
orðið alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Íslendingar eru hvorki betri né
verri en annað fólk. Og stór-
hættulegt er að leyfa auðsöfnun
nálægt valdauppsprettum stjórn-
málaflokkanna, eins og gerðist
kringum Kaupþing og Fram-
sóknarflokkinn. Og næst þegar
samþykktir koma frá Viðskipta-
þingi skulum við ekki leyfa þeim
að verða að ríkjandi kenningu
heldur láta okkur þær að kenn-
ingu verða.
Að kenningu verða
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Það er mikilvægur
þáttur í uppgjöri
okkar við Hrunið að dóms-
mál yfir helstu gerendum
þar hafi sinn gang, ótrufluð
af hundakúnstum verjenda,
tilraunum til að ónýta
mál með lagaklækjum og
skertum framlögum til sér-
staks saksóknara, eins og
sterk öfl innan núverandi
stjórnarflokka vilja gera.
En þegar málum er lokið
með dómi– sekt eða sýknu
– eigum við líka að hemja
heift okkar og dómgirni.
RÚNAR RÓBERTS
ER Í LOFTINU
ALLA VIRKA DAGA MILLI KL. 13:00 - 16:00