Fréttablaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 42
16. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 22SPORT
ÚRSLIT
ENSKA BIKARKEPPNIN
ARSENAL - MIDDLESBROUGH 2-0
1-0 Olivier Giroud (27.), 2-0 Olivier Giroud (29.).
BRADFORD - SUNDERLAND 2-0
1-0 John O’Shea, sjm. (3.), 2-0 Jon Stead (61.).
ASTON VILLA - LEICESTER CITY 2-1
1-0 Leandro Bacuna (68.), 2-0 Scott Sinclair (89.),
2-1 Andrej Kramaric (90.+1).
WBA - WEST HAM 4-0
1-0 Brown Ideye (20.), 2-0 James Morrison (42.),
3-0 Brown Ideye (57.), 4-0 Saido Berahino (72.).
BLACKBURN - STOKE CITY 4-1
0-1 Peter Crouch (10.), 1-1 Joshua King (36.), 2-1
Rudy Gestede, sjm (45.+7), 3-1 Joshua King (50.),
4-1 Joshua King (55.).
DERBY COUNTY - READING 1-2
0-1 Hal Robson-Kanu (53.), 1-1 Darren Bent (61.),
1-2 Yakubu Aiyegbeni (82.).
CRYSTAL PALACE - LIVERPOOL 1-2
1-0 Frazier Campbell (15.), 1-1 Daniel Sturridge
(49.), 1-2 Adam Lallana (58.).
OLÍS-DEILD KARLA
AFTURELDING - AKUREYRI 27-26
Afturelding - Mörk (skot): Örn Ingi Bjarkason
10/3 (14/3), Jóhann Gunnar Einarsson 7/1 (9/2),
Árni Bragi Eyjólfsson 3 (3), Jóhann Jóhannsson
3, Elvar Ásgeirsson 2 (5), Pétur Júníusson 1 (1),
Böðvar Páll Ásgeirsson 1 (4).
Varin skot: Pálmar Pétursson 13 (30, 43%), Davíð
Hlíðdal Svansson 3 (12/1, 25%),
Akureyri - Mörk (skot): Ingimundur Ingimundar-
son 5 (8), Heiðar Þór Aðalsteinsson 5/1 (8/1),
Nicklas Selvig 5 (12), Halldór Logi Árnason 4 (4).,
Kristján Orri Jóhannsson 4 (5), Þrándur Gíslason 2
(2), Sigþór Heimisson 1 (3).
Varin skot: Tomas Olason 17/1 (41/4, 41%),
Hreiðar Levý Guðmundsson 2 (5/1, 40%).
DOMINOS-DEILD KARLA
SKALLAGRÍMUR - ÞÓR 95-90
HAUKAR - KR 87-84
SNÆFELL - NJARÐVÍK 79-101
GRINDAVÍK - ÍR 99-66
KEFLAVÍK - TINDASTÓLL 93-104
SKÍÐI Landsliðskonurnar okkar
stóðu sig vel í svigkeppninni á HM
sem fram fór um helgina. Þrjár af
fjórum keppendum íslenska liðsins
komust í seinni ferðina.
María Guðmundsdóttir náði
besta árangrinum en hún hafnaði
í 36. sæti. Helga María Vilhjálms-
dóttir varð í 42. sæti. Erla Ásgeirs-
dóttir kom þar rétt á eftir í 45.
sæti. 60 efstu komast í seinni ferð-
ina og Freydís Halla Einarsdóttir
var ekki fjarri því að komast þang-
að líka en hún hafnaði í 63. sæti.
Árangur Maríu er sérstaklega
eftirtektarverður enda ekki marg-
ar vikur síðan hún byrjaði að skíða
aftur eftir erfið meiðsli. Hún átti
frábæra seinni ferð en hún var í
59. sæti fyrir seinni ferðina.
Helga María var sú eina sem
komst í seinni ferðina í stórsvig-
inu sem fór fram fyrir helgi. Hún
endaði 56. sæti en þetta var aðeins
í annað skiptið sem íslensk skíða-
kona kemst í seinni ferð í stórsvigi
á HM. Freydís Halla var mjög
nálægt því að komast líka áfram
þá en hún var í 62. sæti.
Heimsmeistaramótinu lauk í
nótt. Einar Kristinn Kristgeirsson
komst í aðalkeppnina í svigi en féll
úr leik í fyrri umferðinni.
- hbg
Stelpurnar í stuði
Þrjár af fj órum komust í seinni ferðina í sviginu.
BRUGÐIÐ Á LEIK Það var létt yfir stelpunum eftir að svigkeppninni lauk í gær. Þær
máttu vera ánægðar með sinn árangur. MYND/SKÍ
FÓTBOLTI Ársþing KSÍ fór fram um
helgina. Geir Þorsteinsson var end-
urkjörinn formaður KSÍ með yfir-
burðum. Hann fékk 111 atkvæði en
mótframbjóðandi hans, Jónas Ýmir
Jónasson, fékk 9 atkvæði. Auðir og
ógildir seðlar voru fimm talsins.
„Ég er mjög ánægður með þessa
kosningu. Maður getur ekki verið
allra,“ segir Geir spurður hvort
hann hefði ekki viljað fá öll atkvæð-
in sem í boði voru. Hann hefur ekki
tekið neina ákvörðun um hvað hann
ætli að sitja lengi en hann varð for-
maður árið 2007.
„Forverar mínir sátu í 17 og 19
ár þannig að ég er rétt að byrja,“
segir Geir og hlær við. „Ég er á
besta aldri og enn á fullum krafti.“
Engin breyting á stjórn
Það varð engin breyting á stjórn
KSÍ og engin mótframboð í stjórn-
ina. Geir segir að núverandi stjórn
hafi ekki setið lengi og því sé í
raun ekkert óeðlilegt að ekki sé
barátta um þessi sæti.
„Það hefur farið fram endur-
nýjun í stjórninni og allir sem þar
eru núna hafa komið inn eftir að ég
varð formaður,“ segir Geir.
Stærsta málið á þinginu að mati
Geirs var tillaga um jöfnun ferða-
kostnaðar sem var samþykkt.
Félög þurfa nú að greiða sérstakt
ferðaþátttökugjald. Þessi breyting
verður þess valdandi að þau félög
sem hafa verið með mestan ferða-
kostnað þurfa nú að greiða minna
en áður.
„Þetta mál hefur lengi verið í
umræðunni. Þessi tillaga skipti
hreyfinguna miklu máli en hún
skiptir hreyfingunni í tvennt eftir
búsetu. Hún var samþykkt sem er
ágætis skref í þá átt að koma til
móts við félögin sem þurfa allt-
af að leggja í meiri kostnað til að
taka þátt í okkar mótum. Þetta
jafnar kostnaðinn sem er jákvætt
og loksins er þetta mál til lykta
leitt,“ segir formaðurinn.
Sömu mikilvægu verkefnin
Meðal annarra mála sem voru
samþykkt má nefna að gul spjöld
verða nú aðskilin í bikarkeppni og
Íslandsmóti. Leikmaður getur því
ekki farið í bann í bikarleik vegna
gulra spjalda í Íslandsmóti.
„Það er til heilla fyrir liðin
því þá geta liðin stillt upp sínum
sterkustu liðum í stórum leikjum
í stað þess að hvíla menn vegna
þess að mikilvægur leikur sé
fram undan í bikar.“
Geir segir að mikilvægustu
málin á næstu árum sé að koma
A-landsliðunum á stórmót.
„Við erum alltaf að vinna að
framförum eins og í mannvirkja-
málum. Það verður áframhald á
því. Íslensk knattspyrna er í mikl-
um blóma og við viljum halda því
áfram.“
henry@frettabladid.is
Maður getur ekki verið allra
Geir Þorsteinsson fékk yfi rburðakosningu í formannskjöri KSÍ. Hann situr því áfram næstu tvö árin hið
minnsta. Formaðurinn er ánægður með að tillaga um ferðaþátttökugjald félaga náði í gegn á þinginu.
SÁTTUR Geir fékk fína kosningu og mun halda áfram að vinna að sömu málum
fyrir KSÍ og undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Jónas Ýmir Jónasson reið
ekki feitum hesti frá formannsfram-
boði sínu á ársþingi KSÍ en hann
tapaði 111-9 fyrir Geir Þorsteinssyni.
„Ég veit hvaðan fjögur atkvæði
komu en veit ekki meira. Ég er bara
þakklátur fyrir þann stuðning sem
ég fékk. Ég hefði samt viljað sjá fleiri
sýna hugrekki og kjósa breytingar,“
segir Jónas en hann segir ekki
marga hafa gefið sig á tal við hann
á þinginu. Honum leið eins og hann
væri óvelkominn.
„Svo var mér ekki einu sinni
boðið í matinn eftir þingið. Allir
þingfulltrúar mættu í matarboð en
mér var ekki boðið. Það kom ekki til
greina að biðja um að fá að koma. Ég
fór því bara heim.“
FH-ingurinn er mest ánægður að
hafa náð vekja upp umræðu hjá KSÍ.
„Ég náði aðeins að hrista upp í
þessu. Það líta allir á KSÍ sem klíku
hvort sem sambandið er það eða
ekki. Ég kom með nýjar hugmyndir
og ýtti aðeins við þeim. Ég held að
þeir hafi verið hundfúlir með þetta,“
segir Jónas en Geir sagði í viðtali á
Stöð 2 eftir þingið að hann hefði
ekki hugmynd um hver Jónas væri.
„Það var bara eins og símtalið frá
framkvæmdastjóranum sem spurði
hvort framboðið mitt væri grín. Mér
finnst þetta vera vanvirðing.“ - hbg
Formannsframbjóðanda ekki boðið í matarveislu KSÍ
JÓNAS ÝMIR. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
ÍÞRÓTTIR Einn leikur fer fram í Dominos-deild
karla í körfubolta í kvöld en þá tekur Fjölnir á
móti Stjörnunni.
Fjölnir er í mikilli fallbaráttu og
þarf á stigum að halda. Leikurinn
verður í beinni útsendingu á Stöð
2 Sport 3 og hann hefst klukkan
19.15.
Svo fara fram þrír leikir í Olís-deild
karla í handbolta en þriðja umferðin hófst í gær.
Botnlið HK sækir Fram heim, Haukar fá ÍR í
heimsókn og Valur tekur á móti FH.
Allir leikirnir í handboltanum hefjast klukkan
19.30. Fylgst verður með gangi mála á Vísi. - hbg
Körfubolti og handbolti í boði í kvöld