Fréttablaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 14
16. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær kona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR
Hringbraut 50,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu, Grund, fimmtudaginn
5. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni,
fimmtudaginn 19. febrúar klukkan 13.
Örnólfur Thorlacius
Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir
Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson
Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason
Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia
Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín,
ANNA JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR
lést á Landspítalanum við Hringbraut
23. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey. Þökkum
starfsfólki og læknum fyrir umönnunina.
Sigurður Ólafsson
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson fagnar
sjötugsafmæli sínu í dag. Hann segir
ólíklegt að hann geri eitthvað sérstakt
í tilefni dagsins.
„Ég ætla nú ekki að gera neitt nema
mögulega að bjóða mínu allra nánasta
fólki upp á kaffi og köku,“ segir Ægir
og bætir við að hann hafi aldrei verið
sérstakur samkvæmismaður.
„Það er nokkuð sérstakt þar sem ég
heilsaði þessum heimi í samkomuhús-
inu á Blönduósi.“ Þar hafi verið íbúð
sem foreldrar hans bjuggu í um það
leyti er hann kom í heiminn.
Aðspurður um eftirminnilegasta
afmælisdaginn segir hann að enginn
sérstakur standi upp úr. Afmælis-
dagarnir hans hafi allir verið nokkuð
svipaðir og rólegir.
Ægir vill meina að hann þurfi ekk-
ert sérstakt tilefni til að lyfta sér upp.
Hann reyni að vera glaður hvern dag
og njóta lífsins. Hann sé ekki mikið
gefinn fyrir stórar veislur og hafi
hingað til ekki haldið upp á afmælið
sitt. Á því verði lítil breyting í ár.
„Ég hef ánægju af því að lesa góðar
bækur, fara í leikhús og á góða tón-
leika. Öðru hvoru leyfi ég mér það að
fara til útlanda og sleikja sólina,“ en
hluti fjölskyldu hans býr erlendis.
Af þeirri ástæðu ætlar hann í raun
að fresta afmælinu sínu og slá því
saman við útgáfu ljóðabókar sem
væntanleg er í vor. Þá verði fleiri úr
fjölskyldu hans á landinu.
„Nafnið á bókinni verður væntan-
lega Ljóðþræðir. Ég gaf út aðra slíka
fyrir tveimur árum sem heitir Ljóð-
rákir,“ segir Ægir. Hann stefnir að
því að bókin komi út í apríl eða maí.
Yrkisefnin eru ýmiss konar. Hann
segir að bókin verði hlutuð niður.
Sumarið leiki stórt hlutverk svo og
náttúran. Að auki verði þar partur
tileinkaður hlutum sem betur mættu
fara.
„Ljóðagerðin er mitt helsta áhuga-
mál sem stendur. Þetta er hin besta
hugarleikfimi,“ segir afmælisbarnið
séra Ægir. johannoli@frettabladid.is
Heldur sjaldnast upp á
afmælisdaginn sinn
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson er sjötugur í dag. Aðeins verður boðið upp á kökur og kaffi
fyrir hans allra nánustu. Með vorinu er væntanleg ljóðabók frá honum.
SJÖTUGUR Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson fagnar sjötugsafmæli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MERKISATBURÐIR
1808 Frakkar ráðast inn í Spán.
1899 Knattspyrnufélag Reykjavíkur var stofnað.
1918 Litháen lýsti yfir sjálfstæði frá Rússlandi og Þýskalandi.
1918 Dover-höfn í Englandi verður fyrir sprengjuárás þýsks kaf-
báts í fyrri heimsstyrjöldinni.
1920 Hæstiréttur Íslands kom saman í fyrsta sinn.
1923 Howard Carter opnaði gröf Tútankamons.
1927 Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, var
stofnaður.
1937 Wallace H. Carothers fékk einkaleyfi á næloni.
1951 Verkfall strætisvagnstjóra hefst í Reykjavík og stendur til
21. mars.
1959 Fidel Castro tekur við völdum á Kúbu eftir að Fulgencio
Batista hefur verið settur af.
1968 Neyðarlínan 911 tekin í notkun í Bandaríkjunum.
1981 Lag Bítlanna, Please Please Me, kemst í efsta sæti breska
vinsældalistans.
1987 Réttarhöld yfir John Demjanjuk hófust í Jerúsalem,
en hann var sakaður um grimmdarverk í fangabúðunum í
Treblinka. Ekkert sannaðist á hann.
1995 Hornsteinn lagður að nýju húsi Hæstaréttar við Lindar-
götu í Reykjavík á 75 ára afmæli réttarins
1999 Kúrdískir skæruliðar hertóku nokkur sendiráð í Evrópu
eftir að einn af foringjum þeirra, Abdullah Öcalan, var handtek-
inn af Tyrkjum.
2005 Kýótóbókunin tók gildi eftir undirskrift Rússlands.
2011 Goðafoss, flutningaskip Eimskips, strandaði skammt
undan Fredrikstad við Noregsstrendur.
Ég hef ánægju af því að
lesa góðar bækur, fara í
leikhús og á góða tónleika.
Öðru hvoru leyfi ég mér það
að fara til útlanda
og sleikja sólina.
Hæstiréttur Íslands kom saman í fyrsta
skipti þann 16. febrúar 1920 og fagnar
því 95 ára afmæli í dag. Hann var stofn-
aður með lögum nr. 22/1919.
Krafan um að æðsta dómsvaldið flytt-
ist til landsins frá Kaupmannahöfn var
samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Krafan kom fyrst fram á þjóðfundinum
sem haldinn var árið 1851. Síðari hluta
aldarinnar hreyfðist málið fram og aftur
en náði ekki fram að ganga.
Með sambandslögunum 1918 fékk
Ísland fullveldi og tók í sínar hendur
framkvæmda- og löggjafarvaldið. Í
lögunum stóð að æðsta dómsvaldið yrði
enn í höndum Dana þar til Ísland kynni
að stofna sinn eigin dómstól. Var það
gert ári síðar.
Síðan þá hefur Hæstiréttur verið
æðsti dómstóll landsins en tekið ýmsum
breytingum í gegnum tíðina. Í upphafi
voru dómendur fimm talsins en nú eru
þeir níu. Í öll árin 95 hefur málflutn-
ingur fyrir dómnum verið munnlegur
en það var nýlunda þegar honum var
komið á fót.
ÞETTA GERÐIST: 16. FEBRÚAR 1920
Hæstiréttur Íslands kom saman í fyrsta sinn