Fréttablaðið - 16.11.2015, Side 15

Fréttablaðið - 16.11.2015, Side 15
Skapa í Skúrnum Feðgarnir Björgvin og Ásgeir takast á við tveggja ára verkefni sem gengur út á að gera upp þrjátíu ára gamalt mótorhjól fyrir drenginn. Síða 2 C M Y CM MY CY CMY K �������������������������� ������������������������������������ „Jólatréð og stjakarnir eru úr hvíttaðri furu. Hug- myndin á bak við stjakana er að hægt sé að nota þá allan ársins hring. Þeim er einfaldlega raðað saman eins og aðventuljósi yfir hátíðarnar en hægt að nota þá staka þess utan. Tréð er hægt að fella saman og byggir á gamalli hefð að hafa heimasmíð- að jólatré,“ útskýrir Erna Guðmundsdóttir en hún og Halldór Magnússon hófu smíði á vörum úr viði fyrir heimilið fyrir tveimur árum. Hugmyndin að jólatrénu kviknaði þegar þau fengu sig fullsödd af barrnálum um allt hús. „Ég fékk alveg nóg eitt árið þegar ég gleymdi að vökva jólatréð og var að finna barrnálar langt fram á vor. Mér finnst plastjólatré ekki heillandi heldur og eins vildum við ekki eyða miklu geymsluplássi undir jólatréð. Við þurftum því að leggjast aðeins yfir þessi mál og þá datt okkur í hug að reyna að búa eitthvað til sjálf. Eitthvað sem færi lítið fyrir,“ útskýrir Erna. „Það má auðveldlega renna trénu undir rúm eða á bak við hurð. Þegar það er sett upp þarf einungis að snúa „greinunum“ í allar áttir. Jólatréð vakti strax athygli og Halldór tók til við smíðarnar. Erna segir bæði verslanir og hótel hafa keypt af þeim tré en einnig sé það vinsælt inn á heimili. „Fólk kaupir það oft sem aukatré eða í bústað- inn. Við notum þetta sem aðaljólatré heima hjá okkur og vonum að okkar börn muni samþykkja þá hefð. Oft eru það nefnilega krakkarnir sem vilja fá lifandi tré en fullorðna fólki er síður spennt fyrir því, vill losna við barrnálarnar,“ segir Erna sposk. Nánar má forvitnast um Hafnir á Facebook. Fengu nóg aF BarrnÁlum heimiliSlegt Erna Guðmundsdóttir og Halldór Magnússon hanna og smíða stjaka og jólatré úr viði undir heitinu Hafnir. Hugmyndina að jólatrénu fengu þau eftir að hafa sópað upp barrnálum langt fram á vor. haFnir Erna Guð- mundsdóttir og Halldór Magnússon vildu ekki sópa upp fleiri barr- nálar. Þau hönnuðu því og smíðuðu sér jólatré sem vakti athygli. Nú framleiða þau trén auk kertastjaka undir heitinu Hafnir. MyNd/ErNir Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík S: 58 58 900- www.jarngler.is Fyrirtæki - Húsfélög ————————— Við bjóðum upp á sjálfvirkan hurða- opnunarbúnað ásamt uppsetningu og viðhaldi Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir aðgengi fatlaðra. Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin. Nánari upplýsingar á minirmenn.is og á Facebook Jólahlaðborð Minna manna hafa verið vinsæl síðustu ár, enda ódýr en einstak- lega girnileg. Þau eru sérsniðin til að bjóða upp á í jólagleðinni á vinnustaðnum, heima eða í veislusal án nokkurrar fyrirhafnar. Verðið hefur verið það sama árum saman – aðeins 1.990 kr. á mann! Pantanir hjá: Magnúsi Inga Magnússyni í síma 696-5900 og á magnusingi@gmail.com. JÓLAHLAÐBORÐ 1.990 kr. HEITT OG KALT JÓLAHLAÐBORÐ • Síldarréttir • Djúpsteiktar rækjur • Kjúklingur • Purusteik • Hangikjöt • Heit sósa • Brúnaðar kartöflur • Kartöflujafningur • Fjölbreytt grænmeti • Brauðkossar • Súrsæt sósa 1.990 kr. á mann

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.