Fréttablaðið - 16.11.2015, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Hauks Viðars
Alfreðssonar
Bakþankar
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
King Koil - Qu
een stærð
„Warehouse Cl
earance“-
dýna með botn
og fótum
á aðeins 83.05
3 kr.
King Koil - King stærð
„Warehouse Clearance“-
dýna með botn og fótum
á aðeins 120.707 kr.
A
R
G
H
!!!
1
71
11
5
Við erum stolt af því að vera
fyrsta umhverfisvottaða prent-
smiðjan á Íslandi frá árinu 2000.
Vistvæn framleiðsla alla leið.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Það er með ólíkindum að geta ekki skellt sér á rokktónleika án þess að eiga það á hættu
að verða myrtur af samvisku-
lausum vitfirringum með vélbyssur.
Bataclan-leikhúsið í París var stút-
fullt af ungu fólki á föstudagskvöld.
Fólki sem var komið til að dilla
sér við taktfasta tónlist, drekka,
hlæja, klappa og kela. Meinlausum
einstaklingum sem höfðu ekki hug-
mynd um að þeim yrði fórnað fyrir
málstað ókunnugs fólks áður en
kvöldið væri á enda.
Ég tók þessi voðaverk inn á mig
eins og líklegra flestir sem þetta
lesa. En svo var einn og einn sem
notaði tækifærið og benti á önnur
sambærileg voðaverk sem fengu
ekki jafn mikla umfjöllun í fjöl-
miðlum. Sumir gerðu það kurteis-
lega á meðan aðrir settu sig á háan
hest. Gott og vel.
Það er hins vegar vel þekkt að
sumir atburðir snerta meira við
okkur en aðrir. Landfræðileg og
menningarleg nálægð skiptir til
dæmis máli. Í fyrra fór ég á nokkra
rokktónleika í Frakklandi og gekk
um stræti Parísar í fyrsta sinn,
áhyggjulaus og kátur. Kannski
tengdi ég þess vegna meira við
hörmungaratburði helgarinnar
en annars, ég veit það ekki. Við
tengjum meira við það sem gerist í
Noregi en Pakistan. Ekki út af því
að við séum vondar manneskjur
heldur einmitt, út af því að við erum
manneskjur. Ófullkomnar og fullar
af mótsögnum og tvískinnungi.
Ég hef unnið á vefmiðli og get
alveg deilt því með ykkur að frétt
um sprengjuárás í Jemen fær minni
lestur en frétt um ráðningu einhvers
nóboddís yfir mjólkurbúi á Suður-
landi. Sumum kann að þykja það
sorglegt en kannski er þetta aðferð
heilans til þess að forða okkur frá því
að bókstaflega deyja úr sorg yfir öllu
því hörmulega sem gerist alls staðar.
Heilinn og
hörmungar