Fréttablaðið - 23.01.2016, Síða 6
Viðskipti Verslun Rauða krossins
við Laugaveg 12b verðu á næstunni
flutt í húsnæði við Skólavörðustíg
11. Þar var Blómaverkstæði Binna
áður til húsa. Áætlað er að opna
nýju verslunina í febrúar.
Laugavegur 12b sem og Lauga-
vegur 16 eru í eigu Center Hotels.
Laugavegur 16 hýsir Hótel Skjald-
breið sem var opnað 1998 og nú
ætlar fyrirtækið að breyta aðliggj-
andi húsum á Laugavegi 12b og
bæta við um þrjátíu herbergjum.
„Við erum búin að vera í löngu
ferli núna með byggingarfulltrúa
og fleirum. Það á að gera upp húsin
að hluta til, en þau eru ekki í góðu
standi núna,“ segir Eva Silvernail,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.
Eva segir ekki vitað hvenær fram-
kvæmdir hefjast. „Þetta er í ferli
núna því húsin eru viðkvæm. Það er
verið að vinna þetta í sátt við borg-
ina þannig að það komi út fegurri
bygging fyrir vikið sem væri í sam-
ræmi við götumyndina á Laugaveg-
inum,“ segir Eva. Hún segir standa
til að stækka Hótel Skjaldbreið
þannig að hótelið verði rúm 60 her-
bergi. Verkið sé unnið í samstarfi við
Minjastofnun, Minjavernd, Reykja-
víkurborg og byggingar fulltrúa.
Til stendur að breyta
verslun Rauða krossins við
Laugaveg í allt að þrjátíu
herbergja hótel.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
3mm gúmmídúkur fínrifflaður
1.990pr.lm.
Gúmmímottur margar
gerðir og stærðir,
verðdæmi 66x99cm
2.190
25%
Útsölu afsláttur
af gúmmí-
takka- og gata-
mottum
1.643
1.492Gúmmí takkamottur
61x81cm 3.590 2.693
81x100cm 5.990 4.493
91x183cm 8.990 6.743 Gúmmí gatamottur
66x99cm 2.190 1.643
100x100cm 3.390 2.543
100x150cm 6.990 5.423
PVC motta
100x150cm 5.590 4.193
Forsala hefst
á miðvikudag kl. 10
Rauði krossinn flytur
af Laugaveginum
Center Hotels breyta verslun Rauða krossins við Laugaveg 12b í hótel. Reka nú
þegar sex hótel. Unnið er að verkinu í samstarfi við Minjastofnun, Minjavernd,
byggingarfulltrúa og Reykjavíkurborg. Rauði krossinn flytur á Skólavörðustíg.
478 herbergi Center
Hotels á sex stöðum
Nú þegar rekur Center Hotels
sex hótel miðsvæðis í Reykjavík.
Herbergin eru samtals 478 talsins
en þeim mun fjölga í rúm 500 með
tilkomu viðbyggingarinnar á Lauga-
vegi. Flest eru þau í hótelinu Cen-
ter Hotel Plaza sem stendur við
Ingólfstorg.
Plaza við Ingólfstorg
200 herbergi
Þingholt við Þingholtsstræti
52 herbergi
Skjaldbreið við Laugaveg 16
33 herbergi
Klöpp á Klapparstíg
46 herbergi
Arnarhvoll við Ingólfsstræti
104 herbergi
Miðgarður við Laugaveg 120
43 herbergi
Frostið bítur Kínverja
Kona skefur snjó af þaki gróðurhúss í borginni Hangzhou í gær á meðan sögulegt frost beit Kínverja. Kuldinn
sem nú ríkir í stórum hluta ríkisins er sá mesti í þrjá áratugi og hefur hann farið allt niður í þrjátíu gráðu frost
í sumum héruðum. Nordicphotos/AFp
til stendur að breyta verslun rauða
krossins við Laugaveg 12b í hótel.
FréttAbLAðið/GVA
„Enda lítum við svo á að miðborgin
sé okkar auðlind og það sé afar
mikilvægt að allar breytingar taki
mið af því.“
saeunn@frettabladid.is
thorgnyr@frettabladid.is
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð