Fréttablaðið - 23.01.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.01.2016, Blaðsíða 28
þar við hann og eiginkonu hans. Virkilega skemmtilegt kvöld, en svo í lokin þegar leiðir skildi fann hann sig knúinn til að segja mér að það hefði komið honum mikið á óvart að stúlka með þennan titil hygðist læra lögfræði og væri svona vel að sér í hinum ýmsu málum. Hann meinti þetta líklega sem hrós og ég var orðin svo meðvituð um þetta að ég lét þetta ekki á mig fá. En fólk fer út í hin ýmsu hlutverk og störf af mismunandi ástæðum, það er ekki hægt að setja fólk alltaf í sama flokk hvað það varðar. Ég sakna þess ekki að hafa þetta hangandi yfir mér en þrátt fyrir það hefði ég aldrei vilj- að fara á mis við þá lífsreynslu sem fylgdi því að vinna þessa keppni.“ Tækifærin alltaf til staðar „Þetta var verkefni sem ég valdi að fara út í og tók að mér, sem ég svo bara kláraði og hélt áfram með mitt. En það er vissulega margt sem ég hef gert eftir þetta tímabil, sem ég hefði kannski ekki fengið tækifæri til að gera nema einmitt vegna þessa. Svo sem að starfa við dagskrárgerð á Stöð 2 og RÚV. Það er eitthvað sem mér fannst einstak- lega skemmtilegt og þegar ég horfi til baka þá er það eitt það skemmti- legasta sem ég hef tekið að mér. Svo starfaði ég fyrir utanríkisráðu- neytið úti í Kína og bjó í Sjanghæ í tæpa 9 mánuði. Þar réð ég mig sem kynningar- og viðburðastjóra íslensku þátttökunnar á heims- sýningunni í Sjanghæ en ég var ein- mitt mikið í Sjanghæ árið sem ég bar titilinn Miss World og hafði þannig bæði reynslu af að vera í borginni og sambönd við fjölmiðla og fleiri. Þetta verkefni hefði ekki komið inn á borð til mín öðruvísi en vegna þeirrar tengingar.“ Ekki verður hjá því komist að spyrja hvort starfið Ungfrú heimur sé vel borgað og hvort líkur séu á að konur verði ríkar af titlinum einum saman. Unnur svarar því að svo sé nú ekki, þær fái greitt mánaðarlega rétt eins og aðrir, en mögulega geti þær aukið við innkomuna með því að taka að sér önnur verkefni samhliða. „Ég valdi mér vel og var bæði andlit og talskona Icelandic Glacial Water og Bláa lónsins á tímabili. Það var það eina sem ég gerði eftir keppnina í rauninni, en ég vildi alltaf að það væri eitthvað meira í þessu en bara að leika í auglýsingu eða sitja fyrir. Þetta er risastór heimur, sem sýnir sig vel í því að ég er enn að fá skila- boð frá alls konar fólki með ýmsar hugmyndir og verkefni. Ég hef þó algjörlega hundsað slíkar beiðnir, en það er líka bara vegna þess að ég hef ekki áhuga á að tengja mig þessu. Það er sennilega æðislegt að nýta þetta til að ferðast víða, en fyrir mér er það ekki þess virði að þurfa að setja mig í þetta hlutverk aftur. Þetta er tímabil í lífi mínu sem er lokið.“ Stimpillinn lífseigur En þótt Unnur hafi staðið sína plikt með sóma, og skilað af sér kórónunni tíu mánuðum síðar, er langur vegur frá því að þar með hafi hún losnað við nafnbótina. „Þetta er mjög mikill stimpill, ef ég get orðað það þannig. Ég hef upplifað þetta í starfi mínu sem lögmaður. Eftir að ég útskrifast með meistara- próf í lögfræði, næ mér í héraðs- dómslögmannsréttindi og byrja að starfa á lögmannsstofu, fannst mér ég enn alltaf þurfa að sanna mig. Að ég væri nú klárari en það að vera bara einhver fegurðardrottning. Mér fannst ég þurfa að sanna mig tvöfalt meira en konan við hliðina á mér,“ bendir hún á. „Þetta er að lagast, ég er alveg róleg yfir þessu í dag og er ekkert að velta því fyrir mér né skynja að fólk sé almennt að spá í þessu núna en ég er svo sem heldur ekki mikið í að hafa mig í frammi í sviðsljósi fjölmiðla. Ég starfa meðal annars í þannig mála- flokkum innan lögfræðinnar, svo sem á sviði barnaréttar og barna- verndar, að mér finnst einfaldlega ekki við hæfi að skjólstæðingar mínir sitji með mér daglangt að ræða mögulega erfiðustu mál lífs síns og sjái mig svo framan á næsta glans- tímariti. Ég fæ ekkert út úr því að viðhalda einhverri frægð á Íslandi.“ Og ekki saknar hún kjaftasagn- anna sem svo oft er býsna lífseigur fylgifiskur frægðarinnar. „Ég hef ekki orðið vör við þær í mörg ár enda snerust þær að miklu leyti um að ég væri að leita mér að mannsefni. Svo þegar ég gekk út, gifti mig og eignað- ist börn þá hefur fólk minni áhuga á þessu. Það er einhvern veginn þannig í íslenskum fjölmiðlum að áberandi og einhleypar konur eru paraðar saman við nánast hvern þann sem þær sjást með. Ég er mjög fegin að þurfa ekki að vera að takast á við þann fylgifisk lengur.“ Ólíkir heimar mætast Unnur ætlaði sér allan tímann að læra lögfræði og starfa við hana, burtséð frá góðu gengi í hinum tryllta heimi fegurðarbransans sem hún nýtir sér þó að ákveðnu leyti. Í dag starfar hún á Íslensku lögfræði- stofunni í Turninum í Kópavogi og hefur gert síðustu fjögur ár. Hún starfar ekki eingöngu á sviði barna- réttar og barnaverndar en meiðyrða-, fasteignagalla- og erfðamál eru jafn- framt fyrirferðarmikil á hennar borði ásamt því sem hún sinnir skipta- stjórn þrotabúa og verjendastörfum. Unnur hefur samhliða lögmennsk- unni unnið ötullega að sjálfsstyrk- ingar- og framkomunámskeiði, sér- sniðnu að ungu fólki í samstarfi við Eskimo umboðsskrifstofu en næsta námskeið hefst í febrúar. „Þetta eru sjálfsstyrkingarnám- skeið fyrir ungt fólk, frá tólf ára og upp úr. Ég vildi óska þess að ég hefði farið á svona námskeið þegar ég var yngri, þar sem við komum inn á svo mörg svið og gerum það á persónu- legan hátt. Við fáum til okkar gesta- kennara, svo sem leiklistar kennara, næringarfræðing, förðunarfræðing og fíkniefnafræðslu og nýtum teng- inguna við Eskimo, á þann hátt að nemendurnir fara í einstaklings- myndatöku og ljúka námskeiðinu með þátttöku í stórri tískusýningu. Þannig reynum við að fá unga fólkið til að stíga út fyrir sinn ramma, og það er stórt skref í sjálfsstyrkingu.“ Segist Unnur miðla sinni reynslu, og fræða krakkana, sem eru aðallega stúlkur, um framkomu, líkamsburð, fyrstu kynni og gefur þeim góð ráð í tengslum við það að tala opinber- lega eða fyrir framan hóp fólks. „Ég er auðvitað enginn sérfræðingur í þessu og nemendurnir fá alveg að vita það, en ég miðla minni reynslu, og því sem ég geri í dag, og nýti til þess að gefa þeim góð ráð. Ég get sagt þeim frá því sem ég hef tekið með mér úr þeirri reynslu sem ég hef aflað mér undanfarin ár og það sem ég hefði gjarnan viljað heyra eða læra þegar ég var á þeirra aldri.“ Unnur reynir utan þess að sinna hlutverkum lögmanns og hafa umsjón með þessum námskeiðum, að nýta tíma sinn vel með fjölskyld- unni. Hún er gift Pétri Rúnari Heimis- syni og saman eiga þau tvö börn, auk þess sem Pétur á fyrir eina dóttur, sem Unnur kallar bónusbarnið sitt, svo nóg er að gera á stóru heimili. Hún segir miklu máli skipta að reyna svo að skilja vinnuna eftir í vinnunni, þó slíkt geti reynst þrautin þyngri. „Þegar ég er að klára erfiða hjalla í mínum málum, erfiða aðalmeðferð eða málflutning og skýrslutökur, reyni ég að hafa fyrir reglu að sækja börnin aðeins fyrr í leikskólana þann daginn og geri eitthvað extra, líklega bæði til að bæta mér og þeim upp samverustundirnar sem við höfðum misst af dagana þar áður. Það virkar fyrir mig eins og hugleiðsla eða jóga- tími. Að fara í göngutúr, gefa önd- unum brauð og fá auka samveru og þá helst áður en úlfatíminn frá fimm til átta hefst, en það er sá tími sem getur tekið á þegar á eftir að fara í búðina, baða, elda og svæfa þreytt leikskólabörn. Þá skiptir máli að hafa átt gæðastund með þeim áður.“ ég veit eiginlega ekkert hvað ég gerði til að vinna þessa keppni. Fyrir mér snerist þetta aðallega um að láta sig hafa það þennan mánuð sem keppnin tók úti, mæta á viðburði og taka þátt í minni keppnum, svo sem tískusýningu, íþrótta- og hæfileika- keppni. Ég endaði svo einhvern veg- inn á að vinna, og ég veit ekki einu sinni hvernig það gerðist. “ Unnur segist hafa vonast til að Ungfrú Ísland legðist af þegar hún féll niður árið 2014. „Það er alltaf verið að minna fólk á mig þegar fjallað er um keppnina, mér finnst óþarfi að það sé alltaf verið að draga mig inn í þetta. Þetta er reyndar nákvæmlega það sem Linda Pé sagði við okkur mömmu þegar ég vann: „Nú geta þeir hætt að tala um mig og fara að tala um þig,“ og nú skil ég hana svo vel,“ segir hún og hlær áður en hún heldur áfram: „Ég græði svo sem ekkert á að tala fegurðarsam- keppnir niður og það mun ég ekki gera þó ég telji þær barn síns tíma. Málið er að ef það er markaður fyrir svona, stúlkur sem vilja taka þátt, styrktaraðilar sem vilja koma að þessu og fólk sem hefur áhuga á að horfa á þetta, þá skilur maður alveg að til séu aðilar sem vilji halda keppn- ina. Eins og Bjössi og Dísa hugsa þetta núna, þá er það mjög eðlilegt. Þó ég sé komin yfir þetta, þá þýðir það ekki að aðrir séu á sama máli.“ Guðsfegin þegar árinu lauk „Við skulum orða það þannig, að ég var mjög fegin að mitt ár var það stysta í sögu Miss World frá upphafi. Ég hlýt titilinn í desember 2005 og krýni svo næstu í september 2006, vegna þess að sú keppni fór fram í Póllandi og þar var orðið of kalt í desember. Ég var gjörsamlega komin með nóg, og ef ég hefði ekki verið búin að skrifa undir samninginn, því þetta var jú atvinna og ég látin skrifa undir ráðningarsamning, þá hefði ég örugglega reynt að koma mér út úr þessu. En maður klárar auðvitað það sem maður kemur sér í og það helst með sóma,“ segir Unnur ákveðin. Blaðamaður spyr hvað hafi haft þau áhrif á hana: „Fordómarnir, sem fylgja titlinum. Að maður sé bara fegurðardrottning og að ekki geti maður verið með mikið vit í koll- inum, verandi í þessu hlutverki. En það var einmitt það sem þetta var, hlutverk sem ég bara lék.“ Hún segist í ófá skiptin hafa komið fólki á óvart með þeim mál- efnum sem hún bryddaði upp á. „Ég sat til að mynda heila kvöldstund með David Cameron, sem þá var ekki orðinn forsætisráðherra Breta, aðeins formaður síns flokks, í sex- tugsafmæli í London, og spjallaði Unnur stóð á sviðinu í Sjanghæ í desember árið 2005, allskostar laus við að hafa hugmynd um hvað biði hennar mánuðina sem fram undan voru, og viðurkennir að hafa alveg vilja losna við titilinn fyrr. Þetta er og var virkilega ekki fyrir mig enda hafði ég ekkert sérstaklega gaman af Þessum prinsessuleik og fæ hroll við Það að hugsa um að Þurfa að krulla á mér hárið á hverjum morgni og vera með gervineglur. ↣ Mynd/Viðar LoGi KriSTinSSon 2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r28 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.