Fréttablaðið - 23.01.2016, Síða 28
þar við hann og eiginkonu hans.
Virkilega skemmtilegt kvöld, en svo
í lokin þegar leiðir skildi fann hann
sig knúinn til að segja mér að það
hefði komið honum mikið á óvart
að stúlka með þennan titil hygðist
læra lögfræði og væri svona vel að
sér í hinum ýmsu málum.
Hann meinti þetta líklega sem
hrós og ég var orðin svo meðvituð
um þetta að ég lét þetta ekki á mig fá.
En fólk fer út í hin ýmsu hlutverk og
störf af mismunandi ástæðum, það
er ekki hægt að setja fólk alltaf í sama
flokk hvað það varðar. Ég sakna þess
ekki að hafa þetta hangandi yfir mér
en þrátt fyrir það hefði ég aldrei vilj-
að fara á mis við þá lífsreynslu sem
fylgdi því að vinna þessa keppni.“
Tækifærin alltaf til staðar
„Þetta var verkefni sem ég valdi að
fara út í og tók að mér, sem ég svo bara
kláraði og hélt áfram með mitt. En það
er vissulega margt sem ég hef gert eftir
þetta tímabil, sem ég hefði kannski
ekki fengið tækifæri til að gera nema
einmitt vegna þessa. Svo sem að starfa
við dagskrárgerð á Stöð 2 og RÚV. Það
er eitthvað sem mér fannst einstak-
lega skemmtilegt og þegar ég horfi
til baka þá er það eitt það skemmti-
legasta sem ég hef tekið að mér.
Svo starfaði ég fyrir utanríkisráðu-
neytið úti í Kína og bjó í Sjanghæ í
tæpa 9 mánuði. Þar réð ég mig
sem kynningar- og viðburðastjóra
íslensku þátttökunnar á heims-
sýningunni í Sjanghæ en ég var ein-
mitt mikið í Sjanghæ árið sem ég bar
titilinn Miss World og hafði þannig
bæði reynslu af að vera í borginni og
sambönd við fjölmiðla og fleiri. Þetta
verkefni hefði ekki komið inn á borð
til mín öðruvísi en vegna þeirrar
tengingar.“
Ekki verður hjá því komist að
spyrja hvort starfið Ungfrú heimur
sé vel borgað og hvort líkur séu á að
konur verði ríkar af titlinum einum
saman. Unnur svarar því að svo sé nú
ekki, þær fái greitt mánaðarlega rétt
eins og aðrir, en mögulega geti þær
aukið við innkomuna með því að
taka að sér önnur verkefni samhliða.
„Ég valdi mér vel og var bæði andlit
og talskona Icelandic Glacial Water
og Bláa lónsins á tímabili. Það var
það eina sem ég gerði eftir keppnina
í rauninni, en ég vildi alltaf að það
væri eitthvað meira í þessu en bara
að leika í auglýsingu eða sitja fyrir.
Þetta er risastór heimur, sem sýnir
sig vel í því að ég er enn að fá skila-
boð frá alls konar fólki með ýmsar
hugmyndir og verkefni. Ég hef þó
algjörlega hundsað slíkar beiðnir, en
það er líka bara vegna þess að ég hef
ekki áhuga á að tengja mig þessu. Það
er sennilega æðislegt að nýta þetta til
að ferðast víða, en fyrir mér er það
ekki þess virði að þurfa að setja mig
í þetta hlutverk aftur. Þetta er tímabil
í lífi mínu sem er lokið.“
Stimpillinn lífseigur
En þótt Unnur hafi staðið sína plikt
með sóma, og skilað af sér kórónunni
tíu mánuðum síðar, er langur vegur
frá því að þar með hafi hún losnað
við nafnbótina.
„Þetta er mjög mikill stimpill, ef ég
get orðað það þannig. Ég hef upplifað
þetta í starfi mínu sem lögmaður.
Eftir að ég útskrifast með meistara-
próf í lögfræði, næ mér í héraðs-
dómslögmannsréttindi og byrja að
starfa á lögmannsstofu, fannst mér
ég enn alltaf þurfa að sanna mig.
Að ég væri nú klárari en það að vera
bara einhver fegurðardrottning. Mér
fannst ég þurfa að sanna mig tvöfalt
meira en konan við hliðina á mér,“
bendir hún á.
„Þetta er að lagast, ég er alveg róleg
yfir þessu í dag og er ekkert að velta
því fyrir mér né skynja að fólk sé
almennt að spá í þessu núna en ég er
svo sem heldur ekki mikið í að hafa
mig í frammi í sviðsljósi fjölmiðla. Ég
starfa meðal annars í þannig mála-
flokkum innan lögfræðinnar, svo
sem á sviði barnaréttar og barna-
verndar, að mér finnst einfaldlega
ekki við hæfi að skjólstæðingar
mínir sitji með mér daglangt að ræða
mögulega erfiðustu mál lífs síns og
sjái mig svo framan á næsta glans-
tímariti. Ég fæ ekkert út úr því að
viðhalda einhverri frægð á Íslandi.“
Og ekki saknar hún kjaftasagn-
anna sem svo oft er býsna lífseigur
fylgifiskur frægðarinnar. „Ég hef
ekki orðið vör við þær í mörg ár enda
snerust þær að miklu leyti um að ég
væri að leita mér að mannsefni. Svo
þegar ég gekk út, gifti mig og eignað-
ist börn þá hefur fólk minni áhuga á
þessu. Það er einhvern veginn þannig
í íslenskum fjölmiðlum að áberandi
og einhleypar konur eru paraðar
saman við nánast hvern þann sem
þær sjást með. Ég er mjög fegin að
þurfa ekki að vera að takast á við
þann fylgifisk lengur.“
Ólíkir heimar mætast
Unnur ætlaði sér allan tímann að
læra lögfræði og starfa við hana,
burtséð frá góðu gengi í hinum
tryllta heimi fegurðarbransans sem
hún nýtir sér þó að ákveðnu leyti. Í
dag starfar hún á Íslensku lögfræði-
stofunni í Turninum í Kópavogi og
hefur gert síðustu fjögur ár. Hún
starfar ekki eingöngu á sviði barna-
réttar og barnaverndar en meiðyrða-,
fasteignagalla- og erfðamál eru jafn-
framt fyrirferðarmikil á hennar borði
ásamt því sem hún sinnir skipta-
stjórn þrotabúa og verjendastörfum.
Unnur hefur samhliða lögmennsk-
unni unnið ötullega að sjálfsstyrk-
ingar- og framkomunámskeiði, sér-
sniðnu að ungu fólki í samstarfi við
Eskimo umboðsskrifstofu en næsta
námskeið hefst í febrúar.
„Þetta eru sjálfsstyrkingarnám-
skeið fyrir ungt fólk, frá tólf ára og
upp úr. Ég vildi óska þess að ég hefði
farið á svona námskeið þegar ég var
yngri, þar sem við komum inn á svo
mörg svið og gerum það á persónu-
legan hátt. Við fáum til okkar gesta-
kennara, svo sem leiklistar kennara,
næringarfræðing, förðunarfræðing
og fíkniefnafræðslu og nýtum teng-
inguna við Eskimo, á þann hátt að
nemendurnir fara í einstaklings-
myndatöku og ljúka námskeiðinu
með þátttöku í stórri tískusýningu.
Þannig reynum við að fá unga fólkið
til að stíga út fyrir sinn ramma, og
það er stórt skref í sjálfsstyrkingu.“
Segist Unnur miðla sinni reynslu,
og fræða krakkana, sem eru aðallega
stúlkur, um framkomu, líkamsburð,
fyrstu kynni og gefur þeim góð ráð
í tengslum við það að tala opinber-
lega eða fyrir framan hóp fólks. „Ég er
auðvitað enginn sérfræðingur í þessu
og nemendurnir fá alveg að vita það,
en ég miðla minni reynslu, og því
sem ég geri í dag, og nýti til þess að
gefa þeim góð ráð. Ég get sagt þeim
frá því sem ég hef tekið með mér úr
þeirri reynslu sem ég hef aflað mér
undanfarin ár og það sem ég hefði
gjarnan viljað heyra eða læra þegar
ég var á þeirra aldri.“
Unnur reynir utan þess að sinna
hlutverkum lögmanns og hafa
umsjón með þessum námskeiðum,
að nýta tíma sinn vel með fjölskyld-
unni. Hún er gift Pétri Rúnari Heimis-
syni og saman eiga þau tvö börn, auk
þess sem Pétur á fyrir eina dóttur,
sem Unnur kallar bónusbarnið sitt,
svo nóg er að gera á stóru heimili.
Hún segir miklu máli skipta að reyna
svo að skilja vinnuna eftir í vinnunni,
þó slíkt geti reynst þrautin þyngri.
„Þegar ég er að klára erfiða hjalla í
mínum málum, erfiða aðalmeðferð
eða málflutning og skýrslutökur,
reyni ég að hafa fyrir reglu að sækja
börnin aðeins fyrr í leikskólana þann
daginn og geri eitthvað extra, líklega
bæði til að bæta mér og þeim upp
samverustundirnar sem við höfðum
misst af dagana þar áður. Það virkar
fyrir mig eins og hugleiðsla eða jóga-
tími. Að fara í göngutúr, gefa önd-
unum brauð og fá auka samveru og
þá helst áður en úlfatíminn frá fimm
til átta hefst, en það er sá tími sem
getur tekið á þegar á eftir að fara í
búðina, baða, elda og svæfa þreytt
leikskólabörn. Þá skiptir máli að hafa
átt gæðastund með þeim áður.“
ég veit eiginlega ekkert hvað ég
gerði til að vinna þessa keppni. Fyrir
mér snerist þetta aðallega um að láta
sig hafa það þennan mánuð sem
keppnin tók úti, mæta á viðburði og
taka þátt í minni keppnum, svo sem
tískusýningu, íþrótta- og hæfileika-
keppni. Ég endaði svo einhvern veg-
inn á að vinna, og ég veit ekki einu
sinni hvernig það gerðist. “
Unnur segist hafa vonast til að
Ungfrú Ísland legðist af þegar hún
féll niður árið 2014. „Það er alltaf
verið að minna fólk á mig þegar
fjallað er um keppnina, mér finnst
óþarfi að það sé alltaf verið að draga
mig inn í þetta. Þetta er reyndar
nákvæmlega það sem Linda Pé sagði
við okkur mömmu þegar ég vann:
„Nú geta þeir hætt að tala um mig
og fara að tala um þig,“ og nú skil ég
hana svo vel,“ segir hún og hlær áður
en hún heldur áfram: „Ég græði svo
sem ekkert á að tala fegurðarsam-
keppnir niður og það mun ég ekki
gera þó ég telji þær barn síns tíma.
Málið er að ef það er markaður
fyrir svona, stúlkur sem vilja taka
þátt, styrktaraðilar sem vilja koma
að þessu og fólk sem hefur áhuga á að
horfa á þetta, þá skilur maður alveg
að til séu aðilar sem vilji halda keppn-
ina. Eins og Bjössi og Dísa hugsa þetta
núna, þá er það mjög eðlilegt. Þó ég sé
komin yfir þetta, þá þýðir það ekki að
aðrir séu á sama máli.“
Guðsfegin þegar árinu lauk
„Við skulum orða það þannig, að
ég var mjög fegin að mitt ár var það
stysta í sögu Miss World frá upphafi.
Ég hlýt titilinn í desember 2005 og
krýni svo næstu í september 2006,
vegna þess að sú keppni fór fram
í Póllandi og þar var orðið of kalt í
desember. Ég var gjörsamlega komin
með nóg, og ef ég hefði ekki verið
búin að skrifa undir samninginn, því
þetta var jú atvinna og ég látin skrifa
undir ráðningarsamning, þá hefði ég
örugglega reynt að koma mér út úr
þessu. En maður klárar auðvitað það
sem maður kemur sér í og það helst
með sóma,“ segir Unnur ákveðin.
Blaðamaður spyr hvað hafi haft
þau áhrif á hana: „Fordómarnir, sem
fylgja titlinum. Að maður sé bara
fegurðardrottning og að ekki geti
maður verið með mikið vit í koll-
inum, verandi í þessu hlutverki. En
það var einmitt það sem þetta var,
hlutverk sem ég bara lék.“
Hún segist í ófá skiptin hafa
komið fólki á óvart með þeim mál-
efnum sem hún bryddaði upp á. „Ég
sat til að mynda heila kvöldstund
með David Cameron, sem þá var
ekki orðinn forsætisráðherra Breta,
aðeins formaður síns flokks, í sex-
tugsafmæli í London, og spjallaði
Unnur stóð á sviðinu í Sjanghæ í desember árið 2005, allskostar laus við að hafa hugmynd um hvað biði hennar mánuðina sem fram undan voru, og viðurkennir að hafa alveg vilja losna við titilinn fyrr.
Þetta er og var
virkilega ekki fyrir
mig enda hafði ég
ekkert sérstaklega
gaman af Þessum
prinsessuleik og fæ
hroll við Það að hugsa
um að Þurfa að krulla
á mér hárið á hverjum
morgni og vera með
gervineglur.
↣
Mynd/Viðar LoGi KriSTinSSon
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r28 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð