Fréttablaðið - 23.01.2016, Side 112

Fréttablaðið - 23.01.2016, Side 112
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Pawels Bartoszek Bakþankar Ef einhver hefði myrt annan mann í Íran fyrir 15 árum væri þessi maður löngu dauður sjálfur. Í Bandaríkjunum væri hann að bíða eftir því að vera tekinn af lífi. Í Tyrklandi væri hann enn fangelsi. Í Belgíu væri hann að losna úr fangelsi. En á Íslandi er maður í þessari stöðu búinn að vera frjáls í fimm ár og var að fá full borgaraleg réttindi að nýju. Það er mannlegt að finnast ósanngjarnt að maður sem meinaði öðrum um réttinn til að lifa lífinu til fulls vilji fá að gera það sjálfur. Auðvitað er það ekki sanngjarnt. Ekki fyrir fimm aura. En „sann- gjarnt“ er ekki í boði. Við sem sam- félag getum bara reynt að gera það sem er skást. Þegar einhver fremur glæp, jafn- vel hinn versta glæp, er skárra að hann setjist niður og hugsi: „Það er von. Ég á mér von ef ég geri allt rétt. Jafnvel verstu morðingjar eiga von.“ Það er skárra en að hann hugsi bara: „Lífið er búið.“ Til- gangur með betrunarkerfum á, jú, að vera sá að gera fólk betra. Í Flórída eru 1,6 milljónir manna án kosningaréttar. Þetta eru fyrr- verandi fangar. Þeir þurfa að sækja um að fá kosningarétt til ríkis- stjórans. Á seinustu fjórum árum hafa rúm tíu þúsund gert það en aðeins um 1.500 fengið samþykki. Í Flórída er endurheimt borgaralegra réttinda því undantekning. Hér á landi er hún regla. Orðin „uppreist æru“ hljóma kannski fyrir sumum eins og samfélagið sé búið að gleyma og fyrirgefa. Það er ekki þannig enda er það ekki samfélagsins að gera það. Samfélagið tekur hins vegar af mönnum réttindi og veitir þau svo aftur. Ekki eftir geðþótta heldur að ákveðnum fyrirframþekktum skilyrðum uppfylltum. Því þannig gerum við þetta. Í mannvænum réttarríkjum. Svona gerum við Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka KÍKIÐ Á SUMARBÆKLINGINN SEM FYLGIR BLAÐINU Í DAG SUMAR 2016 RAUÐIR DAGAR! TILBOÐ Á VÖLDUM BROTTFÖRUM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.