Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 6

Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 6
Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði. Jólabæklingurinn er kominn út. Sjá nánar á sminor.is. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is SIEMENS Þvottavél WM 14E477DN Tekur 7 kg, vindur upp í 1400 sn. Mjög stutt kerfi (15 mín.). Orkuflokkur A+++. Fullt verð: 104.900 kr. Jólaverð: 84.900 SIEMENS Bakstursofn HB 23AB221S (hvítur) Hagkvæmur með 67 lítra ofnrými. Fimm ofnaðgerðir. Fullt verð: 119.900 kr. Jólaverð: 89.900 kr. SIEMENS Kæli- og frystiskápur KG 36VUW20 (hvítur) Orkuflokkur A+. „crisperBox“-skúffa. LED-lýsing. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Fullt verð: 94.900 kr. Jólaverð: 74.900 kr. Palma Gólflampi 19901-xx Fáanlegur í antíklit og stáli. Fullt verð: 18.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Les sér til fyrir heimsókn páfa LögregLumáL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu er svo illa tækjum búin að það stendur henni  fyrir þrifum í rannsóknum á umfangs- m i k l u m s a ka m á l u m . Þ e tt a staðfestir Aldís Hilmarsdóttir, aðstoðar yfirlögregluþjónn og yfir- maður fíkniefnabrotadeildar lög- reglunnar. „Ég myndi segja að það vanti nokkuð mikið upp á að við séum með þann búnað, eða höfum náð að uppfæra þann búnað, sem við þurfum. Þetta gerir það að verkum að gæði rannsóknanna verða minni en ella, málsmeðferðartími verður lengri og í raun er þetta oft meira íþyngjandi fyrir sakborninga,“ segir Aldís. Mikill niðurskurður til lögregl- unnar hefur valdið því að embættið hefur dregist aftur úr nágrannalönd- unum þegar kemur að tækjabúnaði. Aldís segir að íslenska lögreglan sé nánast aðhlátursefni vegna þessa hjá samstarfsfólki ytra. „Við vitum hvaða lausnir þetta eru og erum búin að biðja um sum þessi tæki. Sum þeirra eru jafn- vel ekki mjög dýr,“ segir Aldís og nefnir tæki sem kostar tvær millj- ónir. Tækið gerir afritun á gögnum úr símum og spjaldtölvum margfalt fljótlegri og aðgengilegri. Þannig séu tækin ekki tekin af sakborningum lengi. „Það eru allir með þetta í kringum okkur. Það er búið að vera á innkaupalistanum að mér skilst í tvö ár, og búið að samþykkja það en það hefur ekki enn komið pen- ingur.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er eftirfylgni-tæki lög- reglunnar (e. tracker) klunnalegt og áberandi tæki sem er langt frá því að standast þær kröfur sem lögreglan gerir. Það er með öðrum orðum ekkert líkt örflögum í James Bond- myndum sem senda nákvæm GPS- hnit til rannsakenda. Aldís segir að lögreglan sé háð símafyrirtækjunum þegar kemur að því að fá upplýsingar um sím- talaskrá fólks. Þá þurfi að treysta því að gögnin séu rétt. Lögregla hafi ekki úrræði til að kanna símtala- skrár sjálf. „Við erum ekkert að tala um byssur. Þegar ég tala um tækjakostn- að þá er ég að tala um síma, mynda- vélar, hlustunarbúnað og tæki til að afrita tölvubúnað. Með það litla sem við höfum náð að endurnýja höfum við þurft að reiða okkur á velvilja Lionsklúbba,“ segir Aldís. Lions- klúbburinn EIR gaf fíkniefnadeild- inni 400 þúsund krónur í febrúar á þessu ári. snaeros@frettabladid.is Lögreglan illa búin tækjum til rannsókna Niðurskurður til lögreglunnar hefur valdið því að embættið á ekki búnað sem heldur í við nútímatækni. Endurnýjun tækja er háð velgjörðarfélögum. Rannsóknir eru minni að gæðum og taka lengri tíma. Við erum búin að biðja um sum tækin, segir lögreglustjóri. Lögreglumenn á vettvangi ásamt tækni- deild. Búnaður lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu er nánast aðhlátursefni hjá kollegum á Norðurlöndunum. FréttaBLaðið/aNtoNBriNk Ferðaþjónusta Landeigendur hafa ákveðið að skoða til hlítar þá hug- mynd að nota bílastæðagjöld til fjármögnunar á uppbyggingu á fjöl- sóttum stöðum á suðurströndinni og fara sameiginlega í viðræður við aðila um heildarlausn þeirrar hugmyndar. Þetta var ákveðið á fundi á fimmtu- daginn. Jafnframt verður unnið að gerð þjónustusamninga milli ferða- þjónustuaðila og landeigenda, segir í tilkynningu. Nokkrir landeigendur og ferðaþjónustuaðilar á fjölsóttum ferðamannastöðum á suðurströnd- inni boðuðu til fundar með sveitar- stjórum til að ræða aðbúnað og þjón- ustu við ferðamenn á svæðinu. Fundargestir töldu brýnt að fara í mikla uppbyggingu á svæðinu öllu til að hægt væri að taka á móti öllum þeim ferðamönnum sem sækja svæð- in heim. Landeigendur töldu sig geta ekki beðið lengur eftir úrlausn þessara mála. - sg Bílastæðagjöld fyrir ferðamenn Seljalandsfoss á Suðurlandi er vinsæll viðkomustaður. Fréttablaðið/Vilhelm Maður í Naíróbí í Kenía les kaþólskt dagblað í aðdraganda komu Frans páfa til landsins. Páfinn mun halda messu í Kangemi sem er eitt fátækasta hverfið í Naíróbí. NordicphotoS/aFp 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m á n u D a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.