Fréttablaðið - 23.11.2015, Side 10
Mannbjörg varð í erfiðri og flókinni
björgunaraðgerð á vegum breska
sjó- og flughersins við Falklands-
eyjar á miðvikudag. Þá kviknaði í
vélarrúmi Le Boréal – 10.000 tonna
fransks skemmtiferðaskips í eigu
fyrirtækisins Compagnie du Pon-
ant – sem krafðist þess að farþegar
og áhöfn þurftu að yfirgefa skipið
við mjög erfiðar aðstæður. Atvikið
er áminning um mikilvægi þess að
öflug björgunarmiðstöð sé til staðar
fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland,
en skipið hefur nokkur undanfarin
sumur verið í siglingum við Íslands-
strendur með erlenda farþega og gert
út frá Hafnarfirði, en frá Reykjavík
síðastliðið sumar.
Litlu mátti muna
Í fréttatilkynningu frá breska varnar-
málaráðuneytinu kemur fram að
mikill eldur kom upp í vélarrúmi
skipsins sem varð vélarvana og tók
þegar að reka að austurströnd Falk-
landseyja og var um tíma aðeins þrjár
sjómílur frá landi. Þegar voru tvær
björgunarþyrlur breska flughersins
af Sea King gerð sendar í loftið ásamt
tveimur aðstoðarþyrlum, C-130
Hercules-flugvél og Voyager-flugvél
til að annast fjarskipti og stjórnun á
slysstað. Miklu virðist þó hafa skipt
að breska freigátan HMS Clyde, sem
er með þyrlu um borð, var á svæð-
inu. Eins voru tveir stórir hollenskir
dráttarbátar þegar sendir af stað til
að fyrirbyggja að skipið ræki upp í
klettótta strönd Falklandseyja og til
að reyna að koma skipinu til hafnar.
Alls voru 90 farþegar hífðir um
borð í þyrlur frá skipinu og björgun-
arbátum á sjó. HMS Clyde bjargaði á
þriðja hundrað manns úr björgunar-
bátum.
Breski varnarmálaráðherrann,
Michael Fallon, segir í fréttatilkynn-
Sagðir hafa komið
í veg fyrir harmleik
Skemmtiferðaskip sem hefur verið fastagestur á Íslandi varð vélarvana og var
rétt rekið upp í land á Falklandseyjum. Stór björgunaraðgerð sjó- og flughers
Breta tókst giftusamlega. Minnir á mikilvægi samstarfs um leit og björgun.
Le Boréal er 10.000 lestir, smíðað árið 2010 – farþegar og áhöfn getur mest talið 400 manns. mynd/EPA/BRITISH mInISTRy OF dEFEnCE
Mikilvægi Þórs mikið
„Það væri á svipuðum nótum sem
yrði unnið hér. Þyrlurnar okkar yrðu
notaðar til að koma fólki um borð í
varðskip eða önnur skip sem kæmu
á svæðið, þ.e.a.s. ef staðsetning
atviks væri innan viðráðanlegrar
vegalengdar frá landi. Munurinn
er hins vegar sá að þyrlurnar gætu
ekki lent með fólkið á þilfari varð-
skipanna. Gætu tyllt sér hugsanlega
þannig að fólk gæti stokkið út en
annars þyrfti að hífa það niður líka.
Það munar um tímann. Mikilvægt
yrði því að kalla til t.d. dönsku varð-
skipin sem eru með þyrlu um borð
sum hver,“ segir Ásgrímur.
Ef skip yrði fyrir skakkaföllum
lengra frá ströndinni þar sem
þyrlum yrði ekki komið við
segir Ásgrímur að stefna þyrfti sem
flestum skipum á svæðið og nota
allt sem tiltækt er til að koma fólki
á milli. „Það yrði að láta sum skipin
mynda skjól á meðan önnur væru
að taka fólk um borð. Aðstæður
hverju sinni hafa svo mikið að segja
hvernig björgun yrði framkvæmd.
Fjarlægð frá landi er stór þáttur
í þessu líka,“ segir Ásgrímur og
ítrekar mikilvægi þess að hér sé til
staðar viðbragðsgeta, t.d. varð-
skipið Þór sem hefur dráttargetu til
að bjarga skipi eins og Le Boréal.
ingunni að samhæfðar aðgerðir flota
og flughers hafi bjargað fjölmörgum
mannslífum og „komið í veg fyrir
harmleik“.
Fréttablaðið greindi frá því í lok
október þegar Ísland, Bandaríkin,
Rússland, Kanada, Danmörk, Finn-
land, Noregur og Svíþjóð undirrituðu
samning um víðtækt samstarf um leit
og björgun á norðurskautssvæðinu.
Samtökin, The Arctic Coast Guard
Forum, eru sögð mikilvægt skref í átt
til alþjóðlegrar samvinnu á svæðinu
og undirstriki framtíðarmikilvægi
þess. Þá má minna á hugmyndir um
stofnun alþjóðlegrar björgunarmið-
stöðvar á Íslandi
Alvarleg áminning
Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Land-
helgisgæslunni, segir björgunina á
miðvikudaginn minna sterklega
á hversu mikilvægt það er að hafa
tækjabúnað, þjálfaðan mannskap,
áætlanir og alþjóðlegt samstarf til
að bregðast við svona atviki því að
þrátt fyrir að skemmtiferðaskipin
séu í góðu ástandi, nýleg og með við-
eigandi öryggisbúnað þá geti atvik
sem þessi átt sér stað hvenær sem er
og hvar sem er.
„Þetta sýnir að samstarfssamningar
um leit og björgun á norðurslóðum,
samæfingar, eins og haldnar hafa
verið undanfarin ár með það að
markmiði að æfa viðbrögð við því að
skip með fjöldann allan af farþegum
verði fyrir skakkaföllum, eru nauð-
synlegar og eiga fullan rétt á sér. Þær
æfingar hafa m.a. sýnt fram á nauð-
syn þess að á hafsvæðinu umhverfis
Ísland, á milli Íslands, Grænlands og
Svalbarða, er nauðsynlegt að til staðar
sé öflug björgunarmiðstöð sem tekið
getur á móti og þjónustað björgunar-
tæki, björgunarlið og e.t.v. í framhald-
inu skipbrotsfólk sem þarf að koma
fyrir áður en hægt er að koma því til
síns heima,“ segir Ásgrímur og bætir
við að margt megi læra af björgun
fólksins um borð í Le Boréal.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Þyrlurnar okkar
yrðu notaðar til að
koma fólki um borð í
varðskip eða önnur skip sem
kæmu á svæðið, þ.e.a.s. ef
staðsetning atviks
væri innan
viðráðanlegrar
vegalengdar frá
landi.
Ásgrímur L. Ásgrímsson
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð