Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 13

Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 13
Nýr Volkswagen Caddy kostar frá: 2.760.000 kr. (án vsk. 2.225.806 kr.) www.volkswagen.is AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl á Íslandi undanfarin ár. Enn meiri staðalbúnaður, aukið öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera hinn nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu með nálgunarvara og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými. Við bjóðum þér að líta við í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynnast honum betur. Nýr Volkswagen Caddy Nýr Caddy! Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Forseti Íslands minnti á það í kjölfar hryðjuverkanna í París að hatursfullt tal um íslam og múslima almennt væri einungis vatn á myllu ódæðismannanna og til marks um að þeim hefði tekist ætlunarverk sitt. Fáir lögðu eyrun við þeim tímabæru varnaðarorðum, hvorki andstæðingar forsetans né aðdáendur. Þeim mun meiri athygli vakti hins vegar annað sem hann sagði af þessu tilefni í viðtölum hér og þar. Það var eitthvað á þá leið að öfga- fullt íslam sé „mesta vá okkar tíma“ og sá vandi verði ekki leystur með „barnalegri einfeldni“ eða „aðgerðum á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta“. Umburðarlyndi er dyggð Við þessi orð er ýmislegt að athuga. Fyrst orðalagið: Forseti lýðveldisins á helst ekki að nota orð eins og „umburðarlyndi“ í neikvæðri merkingu. Það mætti meira að segja hæglega rökstyðja það að eitt helsta hlutverk forseta sé einmitt að hvetja landsmenn sína til umburðarlyndis gagnvart hver öðrum, en ekki að etja þeim saman. Kannski erfitt að vera „sameiningartákn“ nú á dögum en samt óþarfi að tala eins og „sundr- ungartákn“. Forseti lands, „ábyrgðar- laus gagnvart stjórnarathöfnum,“ á helst ekki að tala inn í hugarfar eins hluta þjóðarinnar, og alls ekki þess hluta sem andvígur er „umburðar- lyndi“. Umburðarlyndi er megin- dyggð. Óheppilegt og hálfleiðinlegt er líka orðalagið um „barnalega einfeldni“; þar höfðar forsetinn til þeirra sem tíðrætt er um „naívisma“, sem lýsi sér til dæmis í meintu andvaraleysi gagnvart innflytjendum, eins og þeir séu stjórnmálaflokkur en ekki bara alls konar fólk. Forseti Íslands mætti minnast þess að hann er líka forseti innflytjendanna og honum ber að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir aðkasti að ósekju. Svona tal er ekki til þess fallið, nema síður sé. Og almennt talað: Það er ósiður að nota orð sem tengjast börnum og hinu barnalega í neikvæðri merkingu eða sem skammaryrði. Þar eimir eftir af gamalla íslenskri barna-andúð. Það sýnir leiðinlegan þankagang og skilningsleysi á því mikla dýrmæti sem felst einmitt í tærum og frjóum barnshuganum og hinu barnslega viðhorfi. Ætli orðið „fréttabörn“ sé ekki ljótasta orð íslenskrar tungu? Hatur er ódyggð Það er eðlilegt að óttast hið ókunna og ekki endilega til marks um heimsku eða illt innræti. Það er mannlegt viðbragð, og óþarfa sjálfs- upphafning að saka það fólk um „rasisma“ sem stendur beygur af ljótum og ankannalegum hugmynd- um og þeim sem þær aðhyllast. Öfgafullt íslam er raunveruleg og hrikaleg vá þó að hún sé auðvitað ekki „mesta vá okkar tíma“. Eigi á annað borð að standa í slíkum jöfnuði – sem er afar hæpið að gera – er ýmislegt sem mannkyni stendur meiri hætta af en íslamskir öfga- menn. Þar má nefna loftslagsvána, og gjörtækt hæfileikaleysi mannkyns til að horfast í augu við afleiðingarnar sem lífshættir þess hafa fyrir lífið á Jörðinni og framtíð mannkyns. Þessi vandi er miklu stærri þáttur í ófriðar- blikum en nokkurn tímann rausið í Múhameð spámanni í sjálfu sér. Önnur ógn sem þarf að hafa í huga er sú ægilega misskipting auðs sem lýsir sér í eignarhaldi æ færri á æ stærri auðlindum og verðmætum; sú hug- mynd að ranglætið borgi sig ævinlega en réttlæti verði aldrei við komið af því að það sé svo óhagkvæmt – hún getur ekki ekki annað en leitt stór- felldan ófarnað yfir mannkynið, stríð og hörmungar. Og svo eru það vondu og spillandi hugmyndirnar: hatrið sem grasserar í skúmaskotum umræðu og samfélaga. Öfgafullt íslam er ein af hrikalegustu birtingarmyndum þess en alls ekki sú eina: þar sem ungt fólk (oft karlmenn) kemur sér saman um að búa sér til andstæðing sem ekki hafi sama rétt til að lifa og þeir sjálfir; og þeir sjálfir séu á guðs vegum þegar þeir taki sér rétt til að binda enda á líf annarra. Við sjáum þetta í mönnum eins og Breivik í Noregi. Við sjáum þetta í Svíþjóð og Finnlandi og fyrrum kommúnistaríkjum þar sem fasísk- um hreyfingum vex fiskur um hrygg. Við sjáum þetta í vopnavæðingu hatursfullra manna í Bandaríkjunum. Rugluð ungmenni ganga þar inn í skólastofur og skjóta allt sem fyrir verður. Framferði þeirra er hryllilegt og óskiljanlegt en ég er samt ekki í þriðju heimsstyrjöldinni við þau. Og það er rangt að taka sérstak- lega út eina tegund öfgamanna og segja þá hættulegri en aðra: Maður er alveg jafn dauður þó að maður hafi verið skotinn af hægri öfgamanni af þeirri tegund sem meira hafa látið að sér kveða með sprengjum en mús- limar í Evrópu. Öfgar eru vá. Hatur er ódyggð. Vanþekking, vanmetakennd, andleg fátækt, iðjuleysi, ranghug- myndir … Ekki er víst að aðgerðir „á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta“ nái ævinlega að uppræta þetta allt saman og hatrið og dauða- dýrkunina en vandséð er að aðgerðir á nokkrum öðrum sviðum séu væn- legri til árangurs. „Barnaleg einfeldni“ Forseti Íslands mætti minnast þess að hann er líka forseti inn- flytjendanna og honum ber að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir aðkasti að ósekju. Svona tal er ekki til þess fallið, nema síður sé. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 2 3 . n ó v e M B e R 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.