Fréttablaðið - 23.11.2015, Síða 13
Nýr Volkswagen Caddy kostar frá: 2.760.000 kr. (án vsk. 2.225.806 kr.)
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl á Íslandi undanfarin ár.
Enn meiri staðalbúnaður, aukið öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera hinn
nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu
með nálgunarvara og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými.
Við bjóðum þér að líta við í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynnast honum betur.
Nýr Volkswagen Caddy
Nýr Caddy!
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag Forseti Íslands minnti á það í kjölfar hryðjuverkanna í París að hatursfullt tal um íslam og
múslima almennt væri einungis
vatn á myllu ódæðismannanna og
til marks um að þeim hefði tekist
ætlunarverk sitt. Fáir lögðu eyrun
við þeim tímabæru varnaðarorðum,
hvorki andstæðingar forsetans né
aðdáendur. Þeim mun meiri athygli
vakti hins vegar annað sem hann
sagði af þessu tilefni í viðtölum hér
og þar.
Það var eitthvað á þá leið að öfga-
fullt íslam sé „mesta vá okkar tíma“
og sá vandi verði ekki leystur með
„barnalegri einfeldni“ eða „aðgerðum
á sviði umburðarlyndis og félagslegra
umbóta“.
Umburðarlyndi er dyggð
Við þessi orð er ýmislegt að athuga.
Fyrst orðalagið: Forseti lýðveldisins
á helst ekki að nota orð eins og
„umburðarlyndi“ í neikvæðri
merkingu. Það mætti meira að segja
hæglega rökstyðja það að eitt helsta
hlutverk forseta sé einmitt að hvetja
landsmenn sína til umburðarlyndis
gagnvart hver öðrum, en ekki að etja
þeim saman. Kannski erfitt að vera
„sameiningartákn“ nú á dögum en
samt óþarfi að tala eins og „sundr-
ungartákn“. Forseti lands, „ábyrgðar-
laus gagnvart stjórnarathöfnum,“ á
helst ekki að tala inn í hugarfar eins
hluta þjóðarinnar, og alls ekki þess
hluta sem andvígur er „umburðar-
lyndi“. Umburðarlyndi er megin-
dyggð.
Óheppilegt og hálfleiðinlegt er líka
orðalagið um „barnalega einfeldni“;
þar höfðar forsetinn til þeirra sem
tíðrætt er um „naívisma“, sem lýsi
sér til dæmis í meintu andvaraleysi
gagnvart innflytjendum, eins og
þeir séu stjórnmálaflokkur en ekki
bara alls konar fólk. Forseti Íslands
mætti minnast þess að hann er líka
forseti innflytjendanna og honum
ber að koma í veg fyrir að þeir verði
fyrir aðkasti að ósekju. Svona tal er
ekki til þess fallið, nema síður sé. Og
almennt talað: Það er ósiður að nota
orð sem tengjast börnum og hinu
barnalega í neikvæðri merkingu eða
sem skammaryrði. Þar eimir eftir
af gamalla íslenskri barna-andúð.
Það sýnir leiðinlegan þankagang og
skilningsleysi á því mikla dýrmæti
sem felst einmitt í tærum og frjóum
barnshuganum og hinu barnslega
viðhorfi. Ætli orðið „fréttabörn“ sé
ekki ljótasta orð íslenskrar tungu?
Hatur er ódyggð
Það er eðlilegt að óttast hið ókunna
og ekki endilega til marks um
heimsku eða illt innræti. Það er
mannlegt viðbragð, og óþarfa sjálfs-
upphafning að saka það fólk um
„rasisma“ sem stendur beygur af
ljótum og ankannalegum hugmynd-
um og þeim sem þær aðhyllast.
Öfgafullt íslam er raunveruleg og
hrikaleg vá þó að hún sé auðvitað
ekki „mesta vá okkar tíma“. Eigi
á annað borð að standa í slíkum
jöfnuði – sem er afar hæpið að gera
– er ýmislegt sem mannkyni stendur
meiri hætta af en íslamskir öfga-
menn. Þar má nefna loftslagsvána, og
gjörtækt hæfileikaleysi mannkyns til
að horfast í augu við afleiðingarnar
sem lífshættir þess hafa fyrir lífið á
Jörðinni og framtíð mannkyns. Þessi
vandi er miklu stærri þáttur í ófriðar-
blikum en nokkurn tímann rausið
í Múhameð spámanni í sjálfu sér.
Önnur ógn sem þarf að hafa í huga er
sú ægilega misskipting auðs sem lýsir
sér í eignarhaldi æ færri á æ stærri
auðlindum og verðmætum; sú hug-
mynd að ranglætið borgi sig ævinlega
en réttlæti verði aldrei við komið af
því að það sé svo óhagkvæmt – hún
getur ekki ekki annað en leitt stór-
felldan ófarnað yfir mannkynið, stríð
og hörmungar.
Og svo eru það vondu og spillandi
hugmyndirnar: hatrið sem grasserar í
skúmaskotum umræðu og samfélaga.
Öfgafullt íslam er ein af hrikalegustu
birtingarmyndum þess en alls ekki sú
eina: þar sem ungt fólk (oft karlmenn)
kemur sér saman um að búa sér til
andstæðing sem ekki hafi sama rétt
til að lifa og þeir sjálfir; og þeir sjálfir
séu á guðs vegum þegar þeir taki sér
rétt til að binda enda á líf annarra.
Við sjáum þetta í mönnum eins
og Breivik í Noregi. Við sjáum þetta
í Svíþjóð og Finnlandi og fyrrum
kommúnistaríkjum þar sem fasísk-
um hreyfingum vex fiskur um hrygg.
Við sjáum þetta í vopnavæðingu
hatursfullra manna í Bandaríkjunum.
Rugluð ungmenni ganga þar inn í
skólastofur og skjóta allt sem fyrir
verður. Framferði þeirra er hryllilegt
og óskiljanlegt en ég er samt ekki í
þriðju heimsstyrjöldinni við þau.
Og það er rangt að taka sérstak-
lega út eina tegund öfgamanna og
segja þá hættulegri en aðra: Maður er
alveg jafn dauður þó að maður hafi
verið skotinn af hægri öfgamanni af
þeirri tegund sem meira hafa látið að
sér kveða með sprengjum en mús-
limar í Evrópu. Öfgar eru vá. Hatur er
ódyggð. Vanþekking, vanmetakennd,
andleg fátækt, iðjuleysi, ranghug-
myndir … Ekki er víst að aðgerðir „á
sviði umburðarlyndis og félagslegra
umbóta“ nái ævinlega að uppræta
þetta allt saman og hatrið og dauða-
dýrkunina en vandséð er að aðgerðir
á nokkrum öðrum sviðum séu væn-
legri til árangurs.
„Barnaleg einfeldni“
Forseti Íslands mætti minnast
þess að hann er líka forseti inn-
flytjendanna og honum ber að
koma í veg fyrir að þeir verði
fyrir aðkasti að ósekju. Svona
tal er ekki til þess fallið, nema
síður sé.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 2 3 . n ó v e M B e R 2 0 1 5