Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 14
Hvað gerði Gylfi?
Gylfi Þór Sigurðsson hóf leikinn
á bekknum að þessu sinni. Hann
spilaði síðustu 20 mínútur leiksins
en náði ekki að setja mark sitt á
leikinn gegn Bournemouth.
Stærstu úrslitin Jürgen
Klopp virðist þegar
vera farinn að
setja mark sitt á
lið Liverpool sem
lék eins og Dort-
mund undir stjórn
Klopp er það sótti
Man. City heim. City sá aldrei til
sólar og Liverpool vann sinn besta
sigur á leiktíðinni.
Hetjan Man. Utd virtist vera að mis-
stíga sig gegn Watford er Bastian
Schweinsteiger steig upp og
tryggði þeim sigur með marki sem
verður reyndar líklega skráð sem
sjálfsmark.
Kom á óvart Jamie Vardy er eigin-
lega hættur að koma á óvart en það
er samt óvænt að hann sé búinn
að skora í tíu leikjum í röð og jafna
þar með með Hollendingsins Ruud
Van Nistelrooy sem lék þann leik
fyrstur allra er hann spilaði með
Man. Utd.
Í dag
19.50 C. Palace - Sunderl. Sport 2
22.00 Messan Sport 2
Olís-deild karla
18.00 ÍBV - Afturelding Eyjar
FRáBæR LeiKUR HJá HaUKUM
Haukar komu mörgum á óvart
í gær er þeir stóðu upp í hárinu
á einu besta liði Frakklands, St.
Raphael.
Haukarnir voru mest sex
mörkum undir í fyrri hálfleik og
munurinn á liðunum var fimm
mörk í hálfleik, 10-15. Síðari hálf-
leikur var aftur á móti frábær hjá
Haukunum sem hófu að saxa á
forskot franska liðsins og náðu að
jafna, 26-26, þegar þrjár mínútur
voru eftir. Mikil spenna var á loka-
sekúndunum en
Frakk-
arnir
tryggðu
sér
sigurinn
með marki
nokkrum
sekúndum fyrir
leikslok. Hauk-
arnir grátlega
nálægt jafnt-
efli.
Síðari leikur
liðanna fer
fram ytra eftir
viku.
Nýjast
Tottenham 4 –1 West Ham
Watford 1 –2 Man. Utd
Swansea 2 – 2 Bournemouth
Southampton 0 – 1 Stoke City
WBA 2 – 1 Arsenal
Chelsea 1 – 0 Norwich
Newcastle 0 – 3 Leicester
Everton 4 – 0 Aston Villa
Man. City 1 – 4 Liverpool
Efst
Leicester 28
Man. Utd 27
Man. City 26
Arsenal 26
Tottenham 24
Neðst
Norwich 12
Newcastle 10
Bournemouth 9
Sunderland 6
Aston Villa 5
Enska úrvalsdeildin
EHF-bikarinn
Haukar 28–29 St.Raphael
Haukar: Janus Daði Smárason 7/2, Heimir Óli
Heimisson 5, Elías Már Halldórsson 5.
St. Raphael: Alexandru Simicu 8, Arnór
Atlason 6, Adrien Dipanda 5.
mma Helgin var heldur betur góð
fyrir keppnislið Mjölnis sem tók þátt
á evrópumeistaramóti áhugamanna í
MMa eða blönduðum bardagalistum.
Íslenska liðið kemur heim frá
englandi með þrenn verðlaun í
dag. Sunna Rannveig Davíðsdóttir
og Bjarki Þór Pálsson urðu bæði
evrópu meistarar og Pétur Jóhannes
Óskarsson fékk brons í sínum flokki.
Þetta var í fyrsta sinn sem evrópu-
mót áhugamanna í MMa er haldið
og voru skráðir keppendur 130 frá
þrjátíu löndum.
Bjarki Þór lagði Búlgarann og
heimsmeistarann Dorian Dermend-
zhiev í mögnuðum bardaga í veltivigt
sem fór alla leið. allir dómararnir
voru sammála um að Bjarki hefði
haft betur en hann var ekki fjarri því
að klára bardagann í lokalotunni.
Yfirburðir hans leyndu sér þó ekki
en Búlgarinn hafði klárað alla aðra
andstæðinga sína í fyrstu lotu.
Sunna Rannveig mætti hinni
sænsku Önju Saxmark í úrslitum og
kláraði hana með tæknilegu rothöggi
í annarri lotu. Frábær árangur.
„Ég er alveg í skýjunum núna. Þetta
er búin að vera ótrúleg vika hjá okkur
öllum. Ég er ótrúlega ánægð og stolt,“
segir Sunna Rannveig en hún var enn
að ná sér niður á jörðina er íþrótta-
deild heyrði í henni. árangurinn kom
henni ekki á óvart. „Ég kom hingað til
þess að vinna þetta mót.“
Sunna Rannveig segist hafa verið
svolítið stressuð fyrir fyrsta bardag-
ann sinn í mótinu en í gær var ekkert
slíkt uppi á teningnum.
„Ég var minnst stressuð fyrir
úrslitabardagann. Mér leið betur með
hverjum deginum og leið bara virki-
lega vel fyrir úrslitin. Þessi sænska
stelpa er mjög góð í búrinu og einnig
utan þess. Ég hef spjallað mikið við
hana og kann afar vel við hana. Ég
hafði bara betur að þessu sinni.“
Þessi þrítuga bardagakona segist
seint munu gleyma stundinni er hún
steig upp á verðlaunapallinn og svo
var íslenski þjóðsöngurinn leikinn
henni til heiðurs.
„Það var alveg mögnuð stund. Þetta
var óraunverulegt en samt svo fallegt.
Það tók tíma að gera sér grein fyrir
þessu og ég er enn að því en þó með
gleði í hjarta,“ segir Sunna. Hún á ell-
efu ára gamla dóttur, Önnu Rakel, og
fyrsta verk eftir verðlaunaafhending-
una var að heyra í dótturinni.
„Ég heyrði í henni alveg um leið og
ég var farin af pallinum. Ég heyri líka
alltaf í henni fyrir bardaga og röddin
hennar er venjulega það síðasta sem
ég heyri áður en ég fer í hringinn.
Mér líður alltaf vel þegar ég hef heyrt
í henni.“
Sunna Rannveig ætlar ekki að láta
hér við sitja enda á hún sér stærri
drauma.
„Ég hef lengi verið að velta fyrir
mér að fara í atvinnumennsku. Ég
held að það verði bara næsta skref
hjá mér. Þetta hefur verið mjög erfitt.
Ég er að vinna mikið með æfingunum
sem eru líka í rauninni full vinna. Það
væri frábært að fá styrktaraðila sem
gætu gert mér það kleift að einbeita
mér algjörlega að íþróttinni,“ segir
Sunna og bætir við að hún sé afar
þakklát fyrir þá styrktaraðila sem
hafa hjálpað henni á síðustu árum.
„Stóra markmiðið er síðan að kom-
ast inn í UFC. Ég er staðráðin í því að
fara alla leið.“ henry@frettabladid.is
EVRÓPU-
MEISTARAR
Ísland eignaðist tvo Evrópumeistara í blandaðri bar-
dagalist, MMA, í gær. Sunna Rannveig Davíðsdóttir
og Bjarki Þór Pálsson unnu bæði sína úrslitabardaga.
Stoltir Evrópumeistarar með verðlaunin sín í gær. MyNd/kjARtAN Páll SæMuNdSSON
2 3 . n ó v E m b E r 2 0 1 5 m Á n U D a G U r14 S p o r t ∙ F r É t t a b L a ð i ð
sport