Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 20
saman. Ég var örmagna úr skrif- ræðisþreytu. Ég held ég sé að segja rétt frá því að í Noregi er félagsráðgjafi sem segir bara: Hæ, ég er aðstoðarmað- ur þinn í þessari krabbameinsmeð- ferð. Ég óska þess að það sé þannig líka hér. Það væri þörf og dýrmæt breyting. Það þarf auðvitað bylt- ingu, en þetta, ásamt því að hætta að láta krabbameinssjúka taka upp veskið, er góð byrjun.“ Hún bendir líka á að fólk sem veikist hafi afar misjafnan rétt eftir stétt og stöðu í íslensku samfélagi. „Ef þú ert námsmaður þá ertu bara í vondum málum til dæmis. Ég á vini sem hafa veikst af krabbameini og hafa bara átt í verulegum vandræð- um með að eiga fyrir meðferðinni. Eins hugsa ég oft til móður minnar, hún gat örugglega ekki sótt sér alla þá hjálp sem hún átti skilið vegna stöðu sinnar. Þeir sem eru með lélega samningsstöðu í samfélaginu eru með enn verri samningsstöðu þegar þeir veikjast,“ segir Lára og segir jafnræði í íslensku heilbrigðis- kerfi blekkingu. „Ef fjölskyldan mín og mannsins míns stæði ekki við bakið á mér, þá gæti ég þetta ekki. Og við erum að tala um lágmarks lífsgæði. Það er margt sem er ekki talað um í þessu samhengi. Frjósam- ar konur sem huga á frekari barn- eignir þurfa að fara í eggheimtu fyrir lyfjameðferð, þar sem hætta er á að lyfjameðferðin geri þig ófrjóa eða að þú farir í varanleg ótímabær tíða- hvörf. Það er mjög dýrt. Eins er dýrt að kaupa alls kyns sérsaumaðan fatnað og útbúnað. Ég þarf að kaupa sérstaka brjóstahaldara, sundföt og íþróttatoppa. Hvert stykki kostar um tíu þúsund krónur. Fólkið sem stendur að kerfinu heldur greini- lega að krabbameinssjúkir séu að misnota kerfið. Það eru ótrúlegustu hlutir sem mæta þér. Fyrir suma eru það óyfirstíganlegar hindranir. Fólk leyfir sér ekki sjálfsagða hluti í með- ferð. Ég fæ niðurgreidd gervibrjóst, en ég þarf að kaupa allan nauðsyn- legan rándýran fatnað til þess að geta notað gervibrjóstið. Eins og að selja manni klósett án vatnskassa, eða ísskáp án rafmagns. Sem er algjörlega óásættanlegt.“ Fárveik að sannfæra kerfið Lára og maðurinn hennar, Kristleifur Daðason, sóttu um heimaþjónustu frá Reykjavíkurborg á meðan hún var í meðferð. „Við vorum rosalega heppin að fá heimaþjónustu. Það kom indæl kona í heimsókn til okkar til þess að taka út aðstæður okkar eins og venjan er og okkur var sagt að þegar það er heilbrigður einstaklingur á heimilinu þá sé þjónustan ekki veitt. Ég fann hversu mikið hendur Lára með systkinum sínum, Vigdísi Hlíf og Jóni Sigmari. Lára ræðir málin við son sinn á spítalanum, daginn eftir brjóstnámið. Lára með móður sinni og nýfæddri litlu systur sem hún tók seinna í fóstur. Kristleifur, kærasti Láru, með Þorvaldi Herði, syni hennar. Lára með systkinum sínum sem hafa stutt hana í meðferðinni. Lára í rannsóknum á Landspítalanum. Kristleifur, Lára og Þorvaldur Hörður. hennar voru bundnar í kerfinu. Hún sem manneskja sá enga fyrirstöðu þess að við myndum fá aðstoð, en því miður er kerfið ekki byggt upp fyrir manneskjur. Ég sagði henni að það væri kannski hægt að leggja þetta svona upp á fundi: Sérð þú einhvers staðar heilbrigðan einstakling hér inni? Það er enginn heilbrigður ein- staklingur á heimili krabbameins- veikrar manneskju. Veikindin bitna á öllum á heimilinu. Við fengum á endanum samþykkt. En það er frekar fjarstæðukennt að þurfa að færa rök fyrir máli sínu þar sem maður situr með umbúðir yfir brjóstinu, dren og slöngur sem koma úr bringunni á þér og blóðvökva í poka. Að þurfa fárveikur að sannfæra kerfið um að veita grunnþjónustu. En við vorum mjög þakklát, þetta var ómetanlegt fyrir okkur að fá þessa aðstoð.“ Tvíeggjað sverð Lára ákvað að fara ekki í uppbyggingu á brjóstinu. „Ég gerði fljótt upp hug minn og afþakkaði tafarlausu brjósta- uppbygginguna, enda mikil aðgerð og ég ekki með stór brjóst fyrir. Ég ætla að vera „one tit wonder“,“ segir Lára og brosir. „Þetta skiptir mig ekki máli út frá fagurfræðilegum ástæðum. Brjóst eru ofmetin, þetta eru sekkir fullir af gulri fitu. Tvíeggjað sverð, fæða líf og geta tekið líf. Ég er bara eins og Amasóna. Kannski er ég bara með enn betra mið núna og ætti bara að fara og æfa bogfimi,“ segir hún glettin. „Ég er vön því að horfa á líkama konu brjóstalausan. Bæði brjóstin voru tekin af mömmu. Maðurinn minn er alltaf jafn tryllingslega ást- fanginn af mér, sama hversu mörg brjóst ég er með. Þetta er svo einstaklingsbundið samt. Maður tengist líkamanum á mismunandi hátt. Ég var stressaðri fyrir því að missa hárið en brjóstið. Maður veit aldrei hvað gerist í fram- tíðinni, ef sjúkdómurinn kemur aftur þá bara kemur hann aftur og ég tækla það. Eitt brjóst í einu,“ segir Lára þó að horfurnar séu góðar. „Allt þetta ferli hefur mér þótt vera svo fallegt. Að sjá hvað líkaminn er sterkur og magnað fyrirbæri. Að kynnast öllum þessum dásamlegu manneskjum sem vinna að því að bæta líf okkar. Sam- band okkar mannsins míns hefur dýpkað og ástin hefur stækkað svo mikið. Ég er orðin miklu nánari fjöl- skyldu minni og vinum. Lærdómur- inn er ómetanlegur. Ég myndi aldrei vilja taka reynsluna til baka.“ Ferðalag að veikjast Láru finnst mikilvægt að koma þeirri þekkingu sem hún býr yfir til skila og hún vonar að þótt vissir ráð- herrar séu í sumarfríi þá hlusti þeir og finni hjá sér baráttuþrek til að breyta stöðunni. „Það er ferðalag að veikjast. Fólk hefur ekki orku til þess að miðla, það er í slæmri samnings- stöðu. En ég get það og finnst það beinlínis skylda mín. Mér finnst ömurlegt að sjá kröfurnar sem eru gerðar á krabbameinsveika, ábyrgð- ina sem þeir og aðstandendur bera. Mér finnst líka ömurlegt að fylgjast með hraða og keyrslu samfélagsins. Horfa á veikindin verða til. Ég vil byltingu. Af hverju gerum við ekki bara minna og verum meira til?“ ALLT ÞETTA FERLI HEFUR MÉR ÞÓTT VERA SVO FALLEGT. AÐ SJÁ HVAÐ LÍKAMINN ER STERKUR OG MAGNAÐ FYRIRBÆRI. 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.