Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 49
Þ ETTA G E R Ð I ST 2 9 . J Ú L Í 1 9 8 1 Brúðkaup í beinni en óhamingjusamt hjónaband Þann 29. júlí árið 1981 fór fram brúðkaup Karls Bretaprins og lafði Díönu Spencer að viðstöddum 3.500 gestum í St. Pauls dómkirkj- unni í Lundúnum og í beinni sjón- varpsútsendingu um allan heim og er áætlað að 750 milljón manns hafi fylgst með útsendingunni. Sumarið eftir brúðkaupið fæddist fyrsta barn þeirra hjóna, drengurinn Vilhjálmur, en Harry bróðir hans um haustið 1984. Hjónaband þeirra Karls og Díönu var alla tíð undir stöðugu eftirliti fjölmiðla sem fylgdu þeim um hvert fótmál eins og þeim framast var unnt. Á þeim tíma ávann Díana sér miklar vinsældir á meðal al- þýðufólks, ekki aðeins í Bretlandi heldur víða um veröldina, og var hún af því tilefni oft kölluð prins- essa fólksins. Frjálsleg og óþvinguð framkoma hennar var grunnurinn að þessum vinsældum en þessi sama hegðun leiddi hins vegar af sér töluverðar óvinsældir og óánægju innan konungsfjölskyld- unnar. Þessi togstreita vakti mikinn áhuga fjölmiðla um allan heim og jók enn á álagið í hjónabandi sem fyrir var líkast til allt annað en far- sælt og hamingjuríkt. Almennt er talið að Karl Breta- prins hafi frá því snemma í hjóna- bandi þeirra Díönu átt vingott við Camillu Parker Bowles, en hún er núverandi eiginkona hans. Þetta hafi leitt til þess að Díana hafi einn- ig átt vingott við menn utan hjóna- bandsins og leiddi þetta ástand til þess að hjónabandið var í molum undir lok níunda áratugarins. Á þessum árum einbeitti Díana sér að góðgerðarstarfi og var meðal annars ötul baráttukona fyrir því að jarðsprengjur yrðu bannaðar með öllu í hernaði. Þetta starf Díönu jók enn á vinsældir hennar á meðal al- mennings en á sama tíma naut hún alls annars en vinsælda á meðal bresku konungsfjölskyldunnar. Skilnaður Karls og Díönu varð þó ekki formlegur fyrr en árið 1996 en í ágúst árið 1997 lenti Díana í bílslysi í París síðla kvöld, ásamt elskhuga sínum Dodi Al Fayed, og létust þau bæði samstundis. Lafði Díana var harmdauði milljónum manna um allan heim enda bauð hún alla tíð af sér einkar góðan þokka og vann að auki ötullega að ýmsum góðgerðar- málum fyrir þá sem minna mega sín. Sumir hafa gengið svo langt að setja fram vafasamar samsæris- kenningar um dauða Díönu og hafa einkum fyrrverandi eiginmaður hennar og tengdafaðir, Filip prins, verið nefndir í því samhengi. – mg Díana prinsessa af Wales og Karl Bretaprins eftir brúð- kaup þeirra í St. Paul’s dómkirkjunni. NORDICPHOTOS /GETTY Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þuríður Þórarinsdóttir Lækjargötu 26, Hafnarrði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi þann 26. júlí sl. Útförin verður auglýst síðar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir alúð og hlýju við umönnun í veikindum hennar. Fyrir hönd aðstandenda, Ingi Þór Þorgrímsson Margrét Jóna Jónsdóttir Sigrún Björg Þorgrímsdóttir Helgi Marteinn, Guðlaugur, Jóhann Óli, Elísabet María og Katrín Þórey Ingabörn, Húnbogi Bjartur, Hulda Rún, Sóley Rut, Þorgrímur Lee og Thea Willis Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, a og langa , Magnús Ingvi Vigfússon lést 20. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Skógarbæ, sími 510 2141. Kristín Samúelsdóttir Svavar Magnússon Margrét Harðardóttir Samúel Páll Magnússon Inga Erna Hermannsdóttir Ingvi Magnússon Helga Tómasdóttir Hrund Magnúsdóttir Sigþór Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Ingunn Sigurðardóttir frá Vestmannaeyjum, Hlíðarhúsum 7, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 11. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 2. ágúst klukkan 15. Sigrún Þorsteinsdóttir Ólafur Sigurðsson Þorsteinn Ingi Kristjánsson Kristín Eva Kristjánsdóttir Arnar Berent Sigrúnarson Katla Dimmey Þorsteinsdóttir Daníel Berent Rink Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra Gunnsteins Magnússonar ugumferðarstjóra, Fróðengi 5, áður Sörlaskjóli 32, Reykjavík. Ingibjörg Bjarnadóttir Hannes Erlendsson Ágúst Bjarnason Guðrún C. Emilsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Valur Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir og ölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Skarphéðins Valdimarssonar Sóltúni 9. Starfsfólki Landspítalans og Landakots þökkum við kærlega fyrir góða umönnun og hlýju. Hildur Ágústsdóttir Ragna Dúfa Skarphéðinsd. Guðmundur Kjalar Jónsson Ágúst Skarphéðinsson Jóhann Þröstur Skarphéðinsson afabörn og langafabörn. Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall móður okkar, Sigríðar B. Pálsdóttur Vallargerði 39, Kópavogi. Sérstakar þakkir til þeirra er heimsóttu hana að sjúkrabeði, starfsfólks deildar A-6, prestsins sr. Gunnars Sigurjónssonar, tónlistarfólks og útfararstofu Svafars og Hermanns er gerðu útförina að fallegri og e€irminnilegri stund. Fyrir hönd ölskyldunnar, Ólöf Guðmundsdóttir Huber Kristín Helga Guðmundsdóttir Guðmundur Páll Guðmundsson tengdabörn og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Sigríðar Jóhönnu Sigurðardóttur Skálahlíð 13, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 12B og 14E/G á Landspítalanum fyrir einstaka umhyggju og elskulegheit. Ásthildur Sigurðardóttir Snorri Sigurðsson Sjöfn Friðriksdóttir Jón Sigurðsson Arndís Sigurðardóttir Benóný Benónýsson frændsystkini. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Guðmundar Þórhallssonar bókbindara. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu Reykjavík, Miklatorgi, fyrir góða umönnun. Magnea Guðmundsdóttir Kjartan Ólafsson Guðjón Guðmundsson Elísabet Sigurðardóttir Rannveig S. Guðmundsdóttir Þorgrímur Guðmundsson Þórhallur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartanlegar þakkir til ykkar allra fyrir auðsýnda samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför dóttur okkar, dótturdóttur, systur og mágkonu, Lilju Sturludóttur Bólstaðarhlíð 16. Sturla Þórðarson Ásta Garðarsdóttir Lilja Jónsdóttir Kjartan Sturluson Kristín Gunnarsdóttir Halldór Sturluson Heba Eir Jónasdóttir Kjeld Elskulegur eiginmaður minn, Kristján Jóhann Ólafsson húsgagnabólstrari, lést á heimili sínu þann 26. júlí síðastliðinn. Jórunn Anna Sigurjónsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. 551 3485 • udo.is Davíð útfararstjóri Óli Pétur útfararstjóri Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, a og langa , Guðjón Gísli Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, lést að morgni sunnudagsins 16. júlí. Útför hans fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 31. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Karitas, heimahlynningar. Halldóra Kristín Þorláksdóttir Gyl Guðbjörn Guðjónsson Þorbjörg Magnúsdóttir Guðjón Guðjónsson Guðrún Soía Pétursdóttir Hjálmfríður Guðjónsdóttir Sævar Berg Ólafsson Bryndís Björk Guðjónsdóttir Gunnar Þór Gunnarsson Anna Dröfn Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. T Í M A M Ó T T T A ∙ F R É B L A Ð I Ð 29L A U G A R D A G U R 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.