Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 22
Staða Narendra Modi, for-sætisráðherra Indlands, styrktist þegar Ram Nath Kovind tók formlega við embætti forseta Indlands í vikunni. Gerði hann það
fyrir hönd Indverska þjóðarflokksins
er nefnist Bharatiya Janata á hindí og
er gjarnan kallaður BJP. Fékk Kovind
stuðning 66 prósenta kjörmanna.
„Til hamingju, Ram Nath Kovind,
með að vera kjörinn forseti Indlands!
Ég óska þér góðrar forsetatíðar. Mikill
stuðningur margra flokka við Kovind
gleður mig og ég þakka kjörmönnum
innilega,“ sagði forsætisráðherrann,
og forsprakki BJP, um leið og úrslit
kosninganna lágu fyrir.
Kjör Kovind, sem kemur úr lægstu
stétt indverska stéttakerfisins, er
talið styrkja stöðu Modi. Embætti
forseta á Indlandi svipar til íslenska
forsetaembættisins og fer það ekki
með mikil völd. Helsta hlutverk Ind-
landsforseta er að ráða úr stjórnar-
kreppum.
Á Indlandi kýs þingið forsetann og
var kjör Kovind því næstum gulltryggt
áður en kosningarnar fóru fram. Er
styrkur Modi á þinginu gríðarlegur.
Olli kjör Kovind því stjórnarand-
stæðingum vonbrigðum. „Barátta
mín fyrir aðskilnaði ríkis og trúar sem
og hina kúguðu heldur áfram,“ sagði
mótframbjóðandinn Meira Kumar.
Vísaði hún þar til svokallaðrar hind-
utva-stefnu BJP-flokksins sem þykir
umdeild.
Hinn umdeildi Modi
Í mars síðastliðnum skrifaði Mihir
Sharma, pistlahöfundur Bloomberg
á Indlandi, grein um að Modi væri
orðinn valdamesti leiðtogi Indlands
í marga áratugi. Hann væri jafnframt
vel á veg kominn með að breyta Ind-
landi í ríki þar sem hindúar njóta
forgangs. Væri fjölmennasta lýðveldi
heims því orðið stærsti leikvöllur
þjóðernishyggjuöfgamanna á heims-
vísu.
Ýmsir hafa tekið undir þessi orð
Sharma. Í grein sem birtist í Inde-
pendent í sama mánuði segir að Modi
sé eins og öfgafyllri útgáfa af Donald
Trump Bandaríkjaforseta. Í greininni
segir að ástæða fyrir hinum miklu
völdum Modi felist í vangetu stærsta
stjórnarandstöðuflokksins, Congress.
Leiðtogi Congress, Rahul Gandhi, hafi
hvorki persónutöfrana né hungrið
sem þurfi til að stýra Indlandi.
Modi og flokksmenn hans hafa
einkum sætt gagnrýni á alþjóðavísu
fyrir svokallaða hindutva-stefnu.
Byggir stefnan á því að hindúasiður
eigi að vera í kjarna indversks stjórn-
arfars og að Indland sé land hindúa.
Þannig sagði Giriraj Singh, leiðtogi
BJP í Bihar-ríki, að múslimar og aðrir
andstæðingar Modi ættu að flytja til
Pakistan.
Pistlahöfundar The New York
Times, The Independent, The
Guardian og fleiri fjölmiðla á Ind-
landi hafa ítrekað haldið því fram
að Modi hvetji til, eða geri ekki neitt,
til að draga úr ofbeldi gegn lægstu
stéttum hindúa sem og múslimum.
Á meðal röksemdafærslna fyrir því
líta þeir til morðsins á Mohammad
Akhlaq í Dadri í október 2015. Réðst
þá hópur manna á Akhlaq þar sem
hann var grunaður um að hafa drepið
kálf og borðað hann. Þar sem kýr eru
heilagar í hindúasið þótti múgnum
Akhlaq hafa framið helgispjöll.
Nánir samstarfsmenn Modi for-
dæmdu morðið ekki. Mahesh
Sharma, menningarmálaráðherra
Indlands, sagði til að mynda að atvik-
ið hefði einungis verið óhapp. Morðið
kom í kjölfar banns við slátrun naut-
gripa og áti á kjöti þeirra sem Modi
lagði fram fyrr sama ár.
Modi hefur hins vegar sjálfur for-
dæmt sams konar morð. Í síðasta
mánuði sagði hann til að mynda
óásættanlegt að maður hefði verið
myrtur vegna gruns um að hann væri
með nautakjöt í bíl sínum.
Þá hefur Modi verið gagnrýndur
fyrir aðgerðir ríkisstjórnar hans sem
miðuðu að því að banna starfsemi um
11.000 erlendra góðgerðarsamtaka. Í
mars síðastliðnum var bandarískum
góðgerðarsamtökum, Compassion
International, til að mynda meinað
að starfa í Indlandi eftir 48 ára starf-
semi á þeim grundvelli að samtökin
hefðu snúið hindúum til kristni.
Þá hafa skipanir Modi á helstu
embættismönnum einnig sætt mikilli
gagnrýni. Til að mynda þegar hann
skipaði Yogi Adityanath sem leiðtoga
Uttar-ríkis. Adityanath þessi hefur
sjálfur verið gagnrýndur fyrir hug-
myndir sínar um að múslimar leggi
á ráðin í laumi um að tæla hindú-
akonur og útrýma þannig hindúum
hægt og rólega.
Taka lögin í sínar hendur
Um síðustu mánaðamót birtist
umfjöllun á BBC um stóra hópa á
Indlandi sem hafa tekið lögin í sínar
hendur og ásækja múslima og hind-
úa af lægri stéttum. Segir í henni frá
morði Junaid Khan, fimmtán ára
múslima.
Hópur hindúa veittist að Khan
Narendra
Modi talinn
ýmist hetja
eða skúrkur
Forsætisráðherra Indlands er umdeildur á
alþjóðavísu. Lofaður fyrir baráttu sína gegn
spillingu en lastaður fyrir að hafa leyft of-
beldi gegn múslimum að grassera á Indlandi.
Narendra
Modi er vin-
sæll, einkum
á meðal
indverskra
hindúa.
Hann er þó
umdeildari
á alþjóða-
vettvangi
og á meðal
múslima í
heimaland-
inu. MYNDIR/
NORDIC-
PHOTOS/AFP
Stuðningmenn Congress brenndu líkneski af Modi.
Mótmælaganga í Mumbai gegn ofbeldi gegn múslimum.
og þremur systkinum hans með
hnífum í lest í Haryana-ríki. Í við-
tali við sjónvarpsfréttamann á
svæðinu sagði einn mannanna
að ástæðan fyrir árásinni væri sú
að múslimar borðuðu nautakjöt.
Shaqir Khan, bróðir Junaids, sagði
við fréttamenn er hann var kominn
á spítala að árásarmennirnir hefðu
gengið í skrokk á systkinunum og
sagt að það væri uppskeran af því
að borða kýr. Svipaði árásinni mikið
til morðsins á fyrrnefndum Akhlaq.
Undir stjórn Modi og BJP-flokks-
ins hefur kýrin orðið æ mikilvægara
tákn í indversku samfélagi, að því
er BBC greinir frá. Segir í umfjöllun
BBC að bilið á milli hindúa og mús-
lima fari breikkandi og að æ harðari
bönn við sölu og slátrun nautgripa
valdi upplausnarástandi. Stórir
hópar hindúa gangi um göturnar og
myrði múslima fyrir að flytja, selja
og borða nautgripi.
„Það er ótrúlegt að sú forna lífs-
speki hindúa að það sé rangt að
taka líf annarrar veru, speki sem
Mahatma Gandhi hafði í hávegum,
sé nú notuð til að réttlæta morð,“
skrifaði rithöfundurinn Aatish
Taseer í aðsendri grein sem birtist í
The New York Times.
Hinn vinsæli Modi
En Modi nýtur augljóslega ágætis
stuðnings á Indlandi. Annars væri
hann ekki forsætisráðherra. Fékk
BJP-flokkurinn til að mynda 31 pró-
sent atkvæða í þingkosningunum
árið 2014.
Þá greindi The Times of India
frá því í júní að samkvæmt nýrri
könnun væru Indverjar afar sáttir
við fyrstu þrjú ár forsætisráðherr-
ans í embætti. Tók rúm milljón
þátt í könnun The Times of India
og sögðu 77 prósent aðspurðra að
Modi stæði sig vel eða mjög vel í
embætti.
Töldu 76 prósent aðspurðra að
vinsældir Modi hefðu aukist á kjör-
tímabilinu en tólf prósent að þær
hefðu dvínað.
Samkvæmt könnun Hindustan
Times fyrr á árinu þótti 60 prósent-
um Indverja Modi standa sig vel.
Bentu stuðningsmenn hans einkum
á minnkandi spillingu, samskipti
við Pakistan, bætta ímynd Indlands
á heimsvísu og bætta innviði.
Aðspurðum þótti hins vegar heil-
brigðiskerfinu hafa hrakað, staða
atvinnumála óásættanleg, verðlag of
hátt og glæpum gegn konum fjölga.
12,5 prósenta
sveifla
Sigur BJP-flokks Modi í þing-
kosningum ársins 2014 var
afgerandi. Fyrir kosningar hafði
flokkurinn 116 þingsæti en fékk
282 í kosningunum.
Stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, Congress, fór hins vegar úr
206 sætum niður í 44 og er BJP
þar með langstærsti flokkurinn á
þingi. Rúmlega sexfalt stærri en
Congress.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð