Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 18
Baráttu mömmu lauk einu og hálfu ári eftir að hún fann hnút í brjóstinu. Hún var fer-tug einstæð móðir og hún skildi eftir sig þrjú börn. Mig, sautján ára, systur mína sem var tíu ára og bróður minn, sjö ára,“ segir Lára. Líf Láru varð aldrei samt eftir að móðir hennar greindist. Æxlið sem var fjarlægt úr brjósti móður hennar var stórt og illvígt og hafði dreift sér um eitlakerfið. Veikindin voru erfið og mesta ábyrgðin hvíldi á Láru. Lyfjameðferðir, geislameðferðir, læknisheimsóknir og barátta við kerfið. Lára svaf uppi í rúmi hjá móður sinni þegar hún var sem veik- ust. Hún þurfti oft að hjálpa henni að kasta upp og tæma ælufötur eftir lyfjameðferðir. Fengu litla hjálp „Mín tilfinning var að finnast við ósköp ein. Áður var ég bara venju- legur unglingur. Eftir að mamma veiktist þá bar ég ábyrgð fullorð- innar manneskju. Ég vann á veit- ingastað niðri í bæ og reyndi eins og ég gat að stunda nám í FB. Rétt rúmlega sextán ára var ég eiginlega orðin fyrirvinnan enda er krabba- mein dýrt. Ég var andvaka flestar nætur að tæma ælufötur, skutla henni í með- ferð og sækja hana. Fyrir mér var það alltaf léttir þegar hún var lögð inn á spítala. Þá var hún á réttum stað. Stundum hugsaði ég með mér: Jæja, nú er hún búin að æla svo mikið að vonandi fær hún hvíldar- innlögn. Það var skrýtið hvað við fengum litla hjálp,“ segir Lára og rifjar upp dagana áður en móðir hennar lést. „Það kom fyrir að ég reyndi að hringja í lækna og leita ráða. Eitt kvöldið var hún með hita og óráði. Einn læknirinn ráðlagði mér að gefa móður minni stíl og hringja svo aftur í fyrramálið. Þetta var tveimur sólarhringum áður en hún dó og sá sem ráðlagði mér þetta var starfandi yfirlæknir á líknardeildinni. Ég átti sem sé, sautján ára gömul, að gefa dauðvona móður minni endaþarms- stíl. Þetta situr í mér, þrátt fyrir að vera aðeins brotabrot af þeim hjúkrunarverkefnum sem ég tók að mér og ég hugsa stundum um hvers vegna kerfið og samfélagið virkaði þannig að öll ábyrgðin lenti á mér, ólögráða einstaklingi. Það eina sem ég vildi var að hún færi upp á spítala og væri hjúkrað því hún var fárveik, en móðir mín átti erfitt með að biðja um aðstoð og það var mér ekki inn- rætt í uppeldinu heldur. Þarna eru fullorðnir fagaðilar að tala við barn samkvæmt lögum. Það tók mig langan tíma að skila þeirri tilfinn- ingu sem ég hafði, að ég hefði getað staðið mig betur í að hugsa um hana, því það var fullorðna fólkið sem átti að grípa þann bolta.“ Lára reyndi, þrátt fyrir erfið veik- indi móður sinnar, að halda í hvers- dagsleikann með því að halda fast í það sem hún taldi vera venjulega rútínu hins venjulega borgara. „Vinnustaðurinn varð mitt annað heimili. Það var gott að eiga sér hlið- arlíf. Maður verður rosalega góður í að skilja vandamálin eftir heima. Þetta var mín leið til að lifa af. Ég fékk frænkur mínar til að koma að líta eftir henni, því undir lokin fór ég auðvitað ekki að heiman nema ég fengi pössun fyrir mömmu. Eitt kvöldið eftir vinnu fæ ég símtal frá einni af frænkum mínum um að hún sé með öndunarerfiðleika og hafi verið send með sjúkrabíl á bráða- móttökuna. Ég held hún hafi vitað það þá að endalokin væru óum- flýjanleg því hún kvaddi mig og mér fannst blæbrigðin í röddinni hennar svo endanleg. Hún sagði einfaldlega: Sjáumst síðar,“ segir Lára og brosir. Hún og ein frænka hennar voru sendar heim að hvíla sig og bíða fregna. Þær voru þó varla komnar heim til sín þegar það var hringt aftur og þær beðnar um að koma skjótt til baka upp á spítala. Láru finnst móttökurnar við endurkomu á bráðamóttökuna lýsandi fyrir það hversu mikla ábyrgð hún var látin taka á veikindum móður sinnar. „Læknirinn sem tekur á móti okkur spyr mig hvort ég sé lækna- nemi, því hann kannist svo við mig. Þegar hann veit að ég er dóttir móður minnar spyr hann mig hvort beita eigi endurlífgun ef hún fari í hjartastopp. Ég hlustaði á hann segja mér að vegna krabbameinsins væru öll líf- færi hennar ónothæf og hún upp- fyllti því ekki kröfur líffæragjafa. Ég þagði bara, horfði á hann og hugsaði með mér hvort hann áttaði sig á því að hann væri að tala við manneskju sem hefði ekkert löglegt ákvörðun- arvald til að svara þessari spurningu. Í sömu andrá fór hún í hjartastopp. Hann hrindir mér frá og hleypur inn. Ég horfði á þetta algjörlega aftengd. Ég er mjög fegin að hafa aldrei þurft að svara þessari spurningu.“ Ein af þessum duglegu Eftir að móðir Láru lést voru þau systkinin samrýmd og ekki dvínaði ábyrgðartilfinningin gagnvart yngri systkinum hennar. Þegar Lára eign- aðist son 25 ára gömul stofnaði hún fyrirtæki og rak um tíma fataverslun og kaffihús. Hún og barnsfaðir henn- ar gerðust einnig fósturforeldrar 16 ára systur Láru á þeim tíma. „Ég var ein af þessum duglegu og datt auðveldlega í þessa brjálæðis- legu keyrslu sem virðist vera fylgi- fiskur þess að tilheyra þessu sam- félagi. Nú er ég á þeirri skoðun að svona dugnaður sé ekki endilega til fyrirmyndar. Alltaf við símann, alltaf til taks, alltaf að kýla áfram yfirvinnu. Þú ert að taka tíma frá Eins og Amasóna Lára Guðrún Jóhönnudóttir var greind með brjóstakrabbamein í vetur og fór í brjóst- nám í mars. Lára missti móður sína úr sama meini sautján ára og þekkir kerfið bæði sem aðstandandi og sjúklingur. Hún vill byltingu í þjónustu til krabbameinsveikra. Þeir beri háan og dulinn kostnað. Þurfi að ganga á milli stofnana og glíma við skrifræðið. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is þér, frá lífinu, framtíðarheilsu. Þú ferð alltaf í skuld andlega og líkam- lega. Það sleppur enginn lifandi frá þeirri skuld. Þetta er eins og að berja grjót með höndunum. Það er einhvern veginn borðleggjandi að fólk fái sjúkdóma sem aukaverkun af dugnaðinum. Ef ekki krabbamein þá t.d. gigt, síþreytu, kvíða og þung- lyndi og það sem verst er, tíminn er ekki endurnýtanleg auðlind og þú getur aldrei upplifað sama augna- blikið aftur. Ég krumpast inni í mér þegar fólk stærir sig af því að vera í hundrað prósent vinnu, með tölvu- póstinn öskrandi á sig allan sólar- hringinn, í fjórum bóka- eða sauma- klúbbum og að reka fyrirtæki líka. Það er ekki kúl að vera svona „dug- legur“. Mig langar ekki að tilheyra samfélagi sem hampar dugnaði sem stelur lífsgæðum frá okkur sjálfum og okkar nánustu. Ég er eiginlega að fara í gegnum seinni gelgjuna eftir að hafa greinst með krabbamein. Ég get tekið betri ákvarðanir, af minni hvatvísi, þó ég sé samt ekki algjörlega laus við hana. Ég er að læra að ég má vera eins og allir hinir. Krabbameinið kenndi mér að ég er líka manneskja. Ég á alveg jafn mikinn þátt í samfélaginu og aðrir. Ég var nefnilega alltaf svolítið fyrir utan samfélagið. Kannski vegna þess að ég upplifði mig annars flokks eftir baráttuna við kerfið. Þetta er það sem hinir gera. Hinir sem fengu eðli- lega uppeldið, góðu æskuna, hugsaði ég stundum um það þegar fólk lét til sín taka í samfélaginu.“ Merki alls staðar Lára greindist með krabbamein þann 14. febrúar á þessu ári og segir innsæið hafa stýrt sér. Hún var nefnilega algjörlega einkennalaus. „Það voru merki alls staðar í kring- um mig. Alls kyns lítil merki sem ég túlkaði í undirmeðvitundinni sem hættumerki. Merki sem ég sagði engum frá, eins og slæmir draumar og alls konar blæbrigði í umhverf- inu sem ég túlkaði sem einhvern fyrirboða um að ég væri í einhvers konar hættu. Þetta voru bara litlir hlutir en það var eitthvað að gerjast innra með mér, það er svo skrítið að líkaminn veit, undirmeðvitundin finnur og hjartað öskrar á heilann að bregðast við. Kannski ekki vís- indalegasta útskýringin. En þetta er mín persónulega upplifun. Og af því í febrúar var meistaramánuður þá krækti ég í það og ákvað að fylgja innsæinu og fara í rannsóknir.“ Lára fór í blettaskoðun hjá húð- sjúkdómalækni og í leghálsskoðun. Þar bað hún um beiðni fyrir brjósta- myndatöku. Hún fékk myndatökuna samþykkta vegna ættarsögu sinnar. „Á þessum tímapunkti var ég enn að reyna að vera svöl. Lét sem ekk- ert væri í gangi. Ég væri bara að taka ábyrgð á eigin heilsu og fara í rann- sóknir. En ég vissi samt undir niðri að ég væri veik þrátt fyrir að hafa sjaldan upplifað mig hraustari, and- lega, líkamlega og fjárhagslega. Ég tók beiðnina um myndatöku og fór með hana sjálf í stað þess að láta lækninn senda hana. Einhvern veginn vissi ég að það þyrfti bara að drífa í þessu. Ég var eiginlega á sjálfstýringu. Ég fékk tíma fljótt og var tveimur vikum seinna komin í skoðun í Krabbameinsfélaginu. Því fylgdu erfiðar tilfinningar. Ég var með tárin í augunum. En hugsaði: Æi, þetta er bara vegna mömmu. Mamma var hér, hún gerði þetta. Hún hlýtur að hafa verið hrædd. Læknirinn var lengi að skoða mig öðrum megin og svo sagði hann við mig að það væri ýmislegt sem þyrfti að ræða og greindi mér frá því sem hann sá. Hnútur í hægra brjósti og kölkun í mjólkurgöngum. Hann tók sýni og bætti við að þau væru í langflestum tilvikum góðkynja. Ég vissi samt að ég væri búin að finna það sem ég var að leita að og sagði við hann: Við vitum það þegar við vitum það.“ KRABBAMEINIÐ KENNDI MÉR AÐ ÉG ER LÍKA MANN- ESKJA. ÉG Á ALVEG JAFN MIKINN ÞÁTT Í SAMFÉLAG- INU OG AÐRIR. 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.