Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Misty
FULL BÚÐ AF
GEGGJUÐUM
SUNDFÖTUM
Lokað laugardaginn
28. september
vegna framkvæmda.
„ENGIN FURÐA AÐ ÞÚ SÉRT GJALDÞROTA. ÞÚ
ERT RUKKAÐUR UM YFIRFLUGSGJÖLD Í HVERT
SKIPTI SEM ÞÚ FERÐ YFIR LANDAMÆRI.”
„RÆÐAN ER GÓÐ! ÞAÐ ER HVERNIG ÞÚ
FLYTUR HANA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja vita hvort
hann elskar þig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ER KAFFIÐ OF
STERKT?
JÓN HEFUR VERIÐ TRYGGUR OG
HUGRAKKUR LIÐSMAÐUR OKKAR
TIL FJÖLDA ÁRA!
ÚPS
NÚ VIÐ STARFSLOK VIL ÉG ÞAKKA
HONUM MEÐ ÞESSARI MEDALÍU!
ÉG HEF HEYRT AÐ ÞAÐ SÉ
HEILSUSPILLANDI AÐ SETJAST Í
HELGAN STEIN …
Símonardóttir, f. 7.4. 1954, d. 14.10.
1999, leikskólakennari.
Dóttir Þorbjarnar og Lísu Karól-
ínu er Jóhanna María Þorbjarn-
ardóttir, f. 3.8. 1975, ferðamálafræð-
ingur. Hennar sambýlismaður er
Erlingur Guðjón Kristinsson og þau
eru búsett í Reykjavík. Börn þeirra
eru tvíburarnir Karólína Ósk og
Tómas Arnar, f. 3.10. 2003. Stjúp-
börn Þorbjarnar eru Katrín Björk,
Bryndís Ísfold og Árni Rúnar.
Alsystkini Þorbjarnar eru Pétur
Guðmundsson, f. 1945, fv. hús-
vörður í Reykjavík; Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, f. 1948, bóndi á Sauða-
nesi, A-Hún, og Eyjólfur
Guðmundsson, f. 1953, starfsmaður
sambýlis á Blönduósi. Hálfsystkini
Þorbjarnar samfeðra: Óskar Ey-
vindur Guðmundsson, f. 1932, d.
1954; Sigfús Guðmundsson, f. 1934,
d. 2008, vörubílstjóri á Blönduósi;
Jón Guðmundsson, f. 1935, d. 2004,
rafvélavirkjameistari í Kópavogi;
Guðmunda Guðmundsdóttir, f. 1937,
fv. skrifstofumaður í Hafnarfirði;
Erlingur Guðmundsson, f. 1939,
kranastjórnandi í Kópavogi; Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, f. 1948,
bóndi á Marbæli í Skagafirði, og
Sóley Guðmundsdóttir, f. 1950,
vinnur á Heilbrigðisstofnun Austur-
lands á Egilsstöðum.
Foreldrar Þorbjarnar voru hjónin
Guðmundur Sigfússon, f. í Bólstað-
arhlíð, 20.5. 1906, d. 27.3. 1993, og
Sólborg Þorbjarnardóttir, f. í Flat-
ey 25.7. 1914, d. 15.9. 1963. Þau
voru bændur á Eiríksstöðum.
Þorbjörn
Guðmundsson
Pétur Sigfússon bóndi í
Álftagerði í Skagafirði
Gísli, Óskar, Pétur og
Sigfús Péturssynir,
Álftagerðisbræður
Margrét Gunnarsdóttir
vinnukona í Flatey
Guðmundur Guðmundsson
bókbindari áAkranesi
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja á Skálanesi í
Gufudalssveit og í Flatey
Sólborg Þorbjarnardóttir
bóndi á Eiríksstöðum
Þorbjörn Magnússon
skósmiður í Flatey
Guðrún Eiríksdóttir
húsfreyja á Hesti
Magnús Sigurðsson
bóndi á Hesti íAndakíl
Kristín Magnúsdóttir húsfreyja í
Rauðsdal á Barðaströnd
Björg Jónsdóttir húsfeyja í Haga á
Barðaströnd, seinni kona Hákonar
Kristóferssonar alþingismanns
Úr frændgarði Þorbjörns Guðmundssonar
Jósef J. Björnsson skólastjóri
Búnaðarskólans á Hólum í Hjaltadal
Soffía Björnsdóttir
húskona á Syðri-Kárastöðum, síðar
vinnukona í Hjaltadal í Skagafirði
Kristvin Guðlaugsson
húsmaður á Syðri-
Kárastöðum á Vatnsnesi
Kristvina Kristvinsdóttir
húsfreyja á Eiríksstöðum
Sigfús Eyjólfsson
bóndi á Eiríksstöðum, sá eini úr
systkinahópi sem fór ekki til Vesturheims
Ingibjörg Andrésdóttir
húskona í Valadal, fór til
Vesturheims
Eyjólfur Stefánsson
húsmaður í Valadal á Skörðum, fór til Vesturheims
Guðmundur Sigfússon
bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal
Davíð Hjálmar í Davíðshagaskrifaði í Leirinn á sunnudag:
Langflestar beygjurnar tók ég á tveim,
á troginu ferðina jók ég
og yfir þrjá ketti með bröndur og breim
á bíllausa deginum ók ég.
Á laugardaginn skrifaði Pétur
Stefánsson á leir – „Gangan“:
Haustsins litir hugann fanga,
hér er allt með sama brag.
Mín er ævin gleðiganga
gegnum lífsins bjarta dag.
Út í daginn held ég hljóður,
úr holdsins þjálfun lítt ég dreg.
Þó að fölni gras og gróður
geng ég kátur lífsins veg.
Sólargeislar bjartir baða
og bjarma ljá mér enn um skeið,
þó ævi mín með ógnarhraða
áfram haldi sína leið.
Fía á Sandi brást fljótt við:
Í austri stendur fjallið í indígóbláum lit
efst á því er harðangurinn hvíti.
Í hlíðinni er lyngið líkt og saumað glit
á litinn eins og glóðirnar í Víti.
Pétur Stefánsson heldur vana sín-
um og er drjúgur við morgunverkin:
Korter í sjö var ég kominn á stjá,
keikur frá draumanna gleðskap.
Sjóðheitu kaffi ég sötraði á,
settist svo niður við kveðskap.
Ingólfur Ómar lítur til veðurs:
Vindar gjalla viknar jörð
varmi allur þrýtur,
blikna hjallar hlíð og skörð
hærast fjallastrýtur.
Hallmundur Guðmundsson segir á
Boðnarmiði; „Í dag fór ég fótgang-
andi til fjalla og þangað teymdi mig,
fótafúið gamalmennið, Gísli nokkur
Einarsson, landabruggari og far-
arstjóri hjá Bændaferðir.is. Hann
bað Guðs blessunar að fjallaferð lok-
inni“:
Í hægðum sínum Gísli gekk
og gætti lítt að meinum.
Hann á þessu flandri fékk
fullt af smáum skeinum.
Hagyrðingar hafa haft gaman af
því að snúa afa mínum á honum
Rauð á ýmsa vegu. Indriði á Skjald-
fönn er í þeim hópi, – en þykir meira
til „afrekskonunnar“ koma en gam-
als bónda:
Amma mín fór á honum Rauð
er afi kvaddi sviðið,
að ýta þessum ógnarsauð
inn fyrir Gullna hliðið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á bíllausa deginum
og glóðirnar í Víti