Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Störfum á vegum ríkisins hefur fjölgað á hverju ári á umliðnum ár- um og fjölgaði stöðugildum hjá rík- inu um 1,9% á seinasta ári. Frá árinu 2013 hefur ríkisstörfunum fjölgað um 2.101 mælt í fjölda stöðugilda eða um 9,3%. Þetta kemur fram í nýbirtri könn- un Byggðastofnunar á staðsetningu starfa á vegum ríkisins í lok hvers árs en stofnunin hefur gert slíkar kannanir allt frá árunum 2013-2014. Núna liggja fyrir tölur um fjölda stöðugilda til seinustu áramóta þar sem fram kemur að heildarfjöldi stöðugilda á vegum ríkisins var þá kominn í 24.755 og hafði þá aukist um 465 á einu ári. Mun fleiri konur en karlar starfa á vegum ríkisins, í stjórnsýslunni, opinberum hlutafélögum og hjá stofnunum þess. Hefur kynjahlut- fallið verið eins á milli ára en stöðu- gildi kvenna telja um 63% ár hvert. „Á heilbrigðisstofnunum og hjúkr- unar- og dvalarheimilum eru um 10 þúsund stöðugildi árið 2018. Konur eru þar í 83% stöðugilda,“ segir í um- fjöllun Byggðastofnunar. Fram kemur í skýrslunni Hvar eru ríkis- störfin – Fjöldi ríkisstarfa 31.12. 2018 að störfum á vegum ríkisins fjölgaði á öllum landsvæðum í fyrra en í mjög mismunandi miklum mæli. Í ýmsum minni byggðarlögum átti sér stað fækkun en allir stærstu þéttbýlisstaðirnir á landsbyggðinni í hverjum landshluta bættu við sig stöðugildum í fyrra. Voru til dæmis Skorradalshreppur og Akranes einu sveitarfélögin á Vesturlandi þar sem stöðugildum fjölgaði á milli ára. „Stöðugildum fjölgaði um 371 eða um rúm 2% á höfuðborgarsvæðinu á milli áranna 2017 og 2018. Í Hafn- arfirði fækkaði stöðugildum um 49 eða tæp 8%. Er það helst vegna fækkunar hjá Íslandspósti, í aðstoð við hælisleitendur og í Flensborgar- skóla. Í Kópavogi fjölgar störfum um 66 eða 8,6% þá helst vegna fjölgunar hjá Landsrétti og tilfærslu starfs- stöðvar Útlendingastofnunar frá Reykjavík,“ segir í úttektinni. Ríkisstörfum fjölgaði um fimm stöðugildi í fyrra á Ísafirði. Einnig varð smávægileg fjölgun í Kaldrana- neshreppi, í Strandabyggð og í Súða- víkurhreppi, en störfum fækkaði í Bolungarvík og Vesturbyggð. Á Akureyri fjölgar stöðugildum um 26 eða 1,7%. Fækkun varð í Skútu- staðahreppi, í Fjallabyggð, í Þing- eyjarsveit og í Dalvíkurbyggð, en stöðugildum fjölgaði um 52 á Suður- landi í fyrra eða um 3,7% svo dæmi séu nefnd. Fjarðabyggð á Austur- landi var eina sveitarfélagið í lands- hlutanum þar sem störfum á vegum ríkisins fjölgaði á milli ára, eða um 11 stöðugildi. Hins vegar fækkaði um sjö stöðugildi á Seyðisfirði og munar þar helst um fækkun sem átti sér stað hjá Heilbrigðisstofnun Austur- lands. 17.500 á höfuðborgarsvæðinu Langflest störfin á vegum ríkisins eða um 17.500 stöðugildi eru á höf- uðborgarsvæðinu en þar er hlutfall stöðugilda á vegum ríkisins 70,7% af öllum ríkisstörfum. Hlutfall stöðu- gilda hjá ríkinu af íbúafjölda lands- hlutanna er 7,75 á höfuðborgarsvæð- inu en þetta hlutfall er lægst eða 5% af íbúafjölda bæði á Vesturlandi og Suðurlandi. Ríkisstörfum fjölgar ár frá ári  Stöðugildum á vegum ríkisins fjölgaði um 2.101 frá árinu 2013 eða um 9,3% samkvæmt nýbirtri könn- un Byggðastofnunar á staðsetningu starfa á vegum ríkisins  Fjölgaði á öllum landsvæðum í fyrra Fjölda stöðugilda hjá ríkinu 2013-2018 Stöðugildi í árslok 2018 Heildarfjöldi stöðugilda 26 25 24 23 22 21 Konur Karlar Heimild: Byggðastofnun Fjöldi stöðugilda í árslok Breyting milli ára Konur Karlar Samtals Fjöldi % 2013 14.192 8.463 22.655 2014 14.192 8.499 22.691 38 0,2% 2015 14.441 8.610 23.051 359 1,6% 2016 14.907 8.748 23.655 604 2,6% 2017 15.340 8.949 24.289 635 2,7% 2018 15.662 9.093 24.755 465 1,9% Þúsundir Alls 24.755 stöðugildi 63% 37% 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Guðni Einarsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í málefnum lögreglunnar hefur Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, dómsmálaráðherra, falið ráðuneytinu að fara yfir vinnu sem þegar hefur verið unnin varðandi skipulag lögreglunnar og er í því sambandi vísað til skýrslu frá árinu 2009. Leggja á mat á hvort frekari skipulagsbreyt- inga sé þörf. Þetta kemur fram í bréfi ráð- herrans til lögreglunnar frá 20. september 2019. Dómsmálaráðherra leggur áherslu á að vinnunni verði flýtt og segir að horfa þurfi til líklegrar samfélagsþróunar og breytinga á starfsumhverfi lögreglu með sífellt flóknari brotastarfsemi, innlendri og alþjóðlegri, auknu alþjóðasamstarfi og breyttum ógnum, sem m.a. má rekja til breytinga á tækni og sam- skiptum. „Ráðherra leggur jafnframt mikla áherslu á að við vinnuna verði kortlagt í hvaða skrefum rétt kann að vera að gera breytingar á skipulagi lögreglu og hvaða skref, ef einhver, væri unnt að stíga strax til að bregðast við þeim vanda sem nú er uppi.“ Leitað verður til forystumanna lögreglu og annarra haghafa á næstu vikum vegna vinnunnar. Rifjað er upp hvernig núverandi skipulag lögreglunnar varð til sem afrakstur langrar þróunar. Þáverandi dómsmálaráðherra skip- aði starfshóp í júní 2009 til að fara yfir stofn- anauppbyggingu innan lögreglunnar, ásamt umdæma- og verkefnaskiptingu. Sérstaklega var metið hvort unnt væri að vinna að nýju skipulagi út frá þremur forsendum. Það er að lögregluumdæmi landsins yrðu stækkuð (þau voru þá 15) og yrðu 6-8 og störfuðu undir for- ystu umdæmisstjóra. Að umdæmisstjórar yrðu undir stjórn eins lögreglustjóra á lands- vísu og að embættin yrðu sameinuð í eitt lög- reglulið. Það var mat starfshópsins að ekki væri raunhæft að ráðast í svo umfangsmiklar skipulagsbreytingar þegar árið 2010 en mikil áhersla var á að ná hratt fram hagræðingu. Þá blasti við stórfelldur samdráttur í fjárveiting- um úr ríkissjóði. Minna má á að þetta var skömmu eftir bankahrunið. Úr varð að stækka umdæmin en ekki sameina þau í eitt lögreglu- embætti. Starfshópurinn lagði til að skilja lög- gæslu frá embættum sýslumanna og fækka lögregluumdæmum í sex. Frumvarp til laga- breytinga í þessa átt var loks samþykkt 2014. „Þeim fyrirætlunum að færa einstök löggæslu- verkefni á landsvísu til umdæmanna frá rík- islögreglustjóra í framhaldi af stækkun þeirra var hins vegar ekki fylgt eftir,“ segir í bréfinu. Talsverð reynsla er komin á núverandi skipulag lögreglu. Margt bendir þó til að enn sé mörgu ábótavant. „Stækkun umdæmanna hefur án vafa leitt til hagkvæmari reksturs lögreglunnar en sú breyting virðist þó hafa dregið enn frekar fram þann vanda sem við er að etja í skipulagi lögreglunnar í stað þess að leysa hann,“ segir í bréfinu. Ráðherra á fund þingnefndar í dag Dómsmálaráðherra mun sitja fyrir svörum um yfirstjórn löggæslumála á fundi stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag. Áslaug Arna átti fund með Haraldi Johann- essen ríkislögreglustjóra í gærmorgun. Hún sagði eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun að hún gerði ráð fyrir að vinnu við skipulags- breytingar innan lögreglunnar lyki innan ör- fárra vikna. Lögreglan verði ein samhent heild  Dómsmálaráðherra skrifaði lögreglunni  Far- ið yfir skipulag lögreglu Morgunblaðið/Hari Dómsmálaráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á leið á ríkisstjórnarfund í gærmorgun. Í þriggja daga opinberri heimsókn til Grænlands sem nú stendur yfir átti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í gær fundi með Kim Kilsen forsætisráherra um málefni land- anna og viðræður við nemendur há- skólans í Nuuk. Málefni norðurslóða, barnaverndarmál og stöðuna í mál- efnum fatlaðs fólks á Íslandi bar þar á góma. „Grænlendingar bera hlýhug til Íslendinga og líta til okkar þegar þeir vinna að því að þróa sitt sam- félag í rétta átt,“ segir Guðni í sam- tali við Morgunblaðið. „Báðum þjóð- um er hagur í auknu samstarfi. Grænlendingar horfa nú til þess að efla ferðaþjónustu og má þar nefna að flugvallargerð er nú í undirbún- ingi í Nuuk, Ilulissat Qaqortoq. Auk- in samvinna við Íslendinga þar ligg- ur í augum uppi. Jafnframt horfa Grænlendingar til þess að efla sigl- ingar milli Íslands og Grænlands.“ Í gærkvöldi áttu forseti Íslands og Eliza Reid eiginkona hans fund með landstjóra Dana, Mikaelu Eng- ell, og sátu hátíðarkvöldverð í boði forsætisráðherra. Í dag heimsækja þau miðstöð loftslagsrannsókna og eiga fund með borgarstjóra Nuuk. sbs@mbl.is Þjóðunum hagur í samstarfi Ljósmynd/Forsetaembættið Heimsókn Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Kim Kilsen forsætis- ráðherra Grænlands í siglingu í gær á firði við höfuðstaðinn Nuuk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.