Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 27
EM 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik hefur í dag undankeppni
Evrópumótsins þar sem leikið er um
sæti í lokakeppninni sem fer fram í
Danmörku og Noregi í desember
2020.
Leikið er gegn Króötum í Osijek í
dag en viðureign liðanna hefst
klukkan 16 að íslenskum tíma. Hin
tvö liðin í riðlinum eru Frakkland og
Tyrkland og þau eigast við í Amiens
í Frakklandi í kvöld. Íslenska liðið
tekur síðan á móti Frökkum í Laug-
ardalshöllinni í annarri umferð rið-
ilsins á sunnudaginn kemur.
Arnar Pétursson, fyrrverandi
þjálfari ÍBV, tók við íslenska lands-
liðinu 1. ágúst af Axel Stefánssyni og
stýrir því fyrsta skipti í Osijek í dag.
Verkefnið er erfitt en til að komast á
EM þarf að ná öðru tveggja efstu
sætanna. Frakkar eru langsig-
urstranglegastir í riðlinum, enda
ríkjandi heims- og Evrópumeist-
arar. Króatar hafa verið með á síð-
ustu átta Evrópumótum en ekki
gengið vel og endað í þrettánda til
sextánda sæti í fjórum þeim síðustu.
Króatíska liðið var í umspili um sæti
á HM í sumar og tapaði þar með
fjórum mörkum samanlagt fyrir
Þjóðverjum eftir 24:24 jafntefli á
heimavelli og 21:25 tap í Þýskalandi.
Möguleikar íslenska liðsins til að
komast áfram standa væntanlega og
falla með árangrinum í leikjunum
við Króata.
Þá var Tyrkland styrkleikaflokki
ofar en Ísland þegar dregið var í
riðlana. Ísland vann hinsvegar stór-
sigur, 36:23, þegar liðin mættust í
undankeppni HM á síðasta ári. Ís-
lenska liðið á að hafa alla burði til að
ná í fjögur stig úr innbyrðis leikjum
liðanna.
Arnar er með níu leikmenn frá er-
lendum félagsliðum í sautján manna
hópi, þar af sex sem leika í efstu
deildum Frakklands, Þýskalands,
Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar.
Það eru Hrafnhildur Hanna Þrast-
ardóttir (Bourg-De-Péage), Hildi-
gunnur Einarsdóttir (Leverkusen),
Birna Berg Haraldsdóttir (Neck-
arsulmer), Rut Jónsdóttir (Esbjerg),
Thea Imani Sturludóttir (Oppsal) og
Eva Björk Davíðsdóttir (Skuru). Þá
leika þrjár í B-deildum á Norður-
löndunum og hinar átta á Íslandi.
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen
Knútsdóttir úr Fram eru leikjahæst-
ar í hópnum með 102 og 98 lands-
leiki.
Lykilleikur Íslands í Osijek í dag
Útlit fyrir að Ísland og Króatía berjist um að fylgja Frökkum á EM 2020
Morgunblaðið/Eggert
Reyndust Þórey Rósa Stefánsdóttir er með flesta landsleiki að baki af
íslensku landsliðskonunum sem eru í Króatíu, 102 talsins.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin
Óli Stefán Flóventsson verður
áfram þjálfari karlaliðs KA í knatt-
spyrnu næsta sumar. Sævar Pét-
ursson, framkvæmdastjóri KA, stað-
festi það í samtali við mbl.is í gær.
FH verður án Péturs Viðarssonar
og Brynjars Ásgeirs Guðmundssonar
er liðið mætir Grindavík í lokaumferð
Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta á
laugardag vegna leikbanna. FH tryggir
Evrópusæti með sigri.
Orri Steinn Óskarsson, 15 ára
knattspyrnumaður úr Gróttu, gengur
til liðs við danska stórliðið FC Köben-
havn á næsta ári en fotbolti.net skýrði
frá því að samningar hefðu verið und-
irritaðir fyrr í þessum mánuði. Orri
skoraði fyrsta mark Gróttu í 4:0 sigr-
inum á Haukum á laugardag þegar lið-
ið tryggði sér úrvalsdeildarsæti og
hann gerði sín fyrstu mörk fyrir liðið
aðeins 13 ára gamall í 2. deildinni
sumarið 2018.
Marcus Rashford,
sóknarmaður enska
knattspyrnufélags-
ins Manchester
United verður
frá í ein-
hvern
tíma
þar
sem
hann
er tognaður aftan í
læri. Óvíst er hve-
nær Rashford verð-
ur klár í slaginn á ný,
en þeir Mason
Greenwood og Anthony
Martial eru einnig að
glíma við meiðsli.
Eitt
ogannað
Ísland heldur sæti sínu í A-deild
Þjóðadeildar UEFA í knattspyrnu
en ákveðið var á fundi fram-
kvæmdastjórnar UEFA í Slóveníu í
gær að fjölga liðunum í A-deildinni
úr tólf í sextán.
Ísland féll úr A-deildinni á síð-
asta ári ásamt Þýskalandi, Króatíu
og Póllandi en vegna fjölgunar-
innar halda þjóðirnar sætum sínum
í A-deildinni en keppni í Þjóðadeild-
inni hefst í september á næsta ári.
Svíþjóð, Úkraína, Bosnía og Dan-
mörk koma upp í A-deildina úr B-
deild.
Ísland áfram í
deild þeirra bestu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Efsta Kolbeinn Sigþórsson gæti
spilað stórt hlutverk í A-deildinni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa forráðamenn knatt-
spyrnudeildar Vals rætt við Heimi
Guðjónsson, þjálfara nýkrýndra
bikarmeistara HB í Færeyjum, um
að taka við þjálfun karlaliðs félags-
ins af Ólafi Jóhannessyni. Samn-
ingur Ólafs við Val rennur út um
miðjan næsta mánuð og hafa for-
ráðamenn Vals tjáð honum að þeir
séu að skoða aðra kosti, en Ólafur
hefur stýrt Valsliðinu frá árinu
2014 og undir stjórn hans hefur
Valur unnið tvo Íslandsmeistara-
titla og tvo bikarmeistaratitla.
Valsmenn í við-
ræðum við Heimi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eftirsóttur Heimir Guðjónsson er
eftirsóttur af íslenskum félögum.
Fjölnir/Björninn hrósaði 3:1-sigri
gegn Skautafélagi Reykjavíkur
þegar liðin áttust við í fyrsta leik
Hertz-deildar karla í íshokkíi í
Skautahöllinni í Laugardal í gær-
kvöldi. Miloslav Racansky náði for-
ystunni fyrir SR-inga en Elvar
Ólafsson jafnaði metin fyrir Fjölni/
Björninn áður en fyrsta leikhluta
lauk.
Hilmar Sverrisson kom Fjölni/
Birninum í forystu í öðrum leikhluta
og í þriðja leikhlutanum innsiglaði
Einar Guðnason sigur liðsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ís Fjölnir/Björninn vann sinn fyrsta leik undir nýju nafni gegn SR í gær.
Fjölnir/Björninn byrjar vel