Morgunblaðið - 30.09.2019, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sólin sem kyssti Íslendinga á
vangann vítt og breitt um landið
í gær heldur kossum sínum áfram
eftir morgni og út í vikuna. Sam-
kvæmt spám veðurstofunnar
verður í dag heiðskírt og sólríkt
um landið allt, að undanskildu
Austurlandi þar sem líklega verð-
ur nokkuð þungbúið. Veðurstöðin
á Kárahnjúkum spáir lítilsháttar
slyddu þegar líður á daginn og á
Egilsstöðum rignir um hádegi.
Sólin heldur áfram velli um
nánast allt landið á morgun.
Minnstu sólskini er spáð í höf-
uðborginni og á Suðausturlandi
þar sem að líkindum rignir nokk-
uð.
Svo virðist sem hið milda haust
kveðji svo á fimmtudag þegar
hefðbundið haustveður, rigning
og súld, skellur á með fullum
þunga um allt land. Spáð er rign-
ingu í öllum landshlutum, sér-
staklega mikilli á Vestur- og Suð-
urlandi, og heldur hún áfram
fram á helgi.
Síðustu
haust-
kossar
sólarinnar
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Vilji almennings og fyrirtækja til
að greiða veggjöld hlýtur að ráðast
af því hvort þær framkvæmdir sem
nú verður ráðist í
geri samgöngur
hér á höfuðborg-
arsvæðinu
greiðari. Öllum
er ljóst að grípa
þarf til aðgerða.
Við fögnum því
að ríki og sveit-
arfélög ætli í
tímabærar sam-
göngubætur á
höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Sigurður Hannes-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins.
Samgöngusáttmáli höfuðborgar-
svæðisins sem undirritaður var síð-
astliðinn fimmtudag gerir ráð fyrir
miklum framkvæmdum á
höfuðborgarsvæðinu á næstu tíu ár-
um. Götur verða lagðar í stokk, mis-
læg gatnamót byggð, vegir breikk-
aðir og borgarlínan útbúin. Alls á
þetta að kosta 150 milljarða króna
og þar af verður hlutur vegafar-
enda, sem greiða notendagjöld, um
helmingur. Er þá ónefnt að ýmsar
vegaframkvæmdir úti á landi eru
fyrirhugaðar, og þar er gert ráð
fyrir að gjöld sem vegfarendur
greiða fjármagni verkefnin að
mestu.
„Nú þegar útlit er fyrir minni
umsvif í byggingariðnaði, til dæmis
við framkvæmdir tengdar ferða-
þjónustu og byggingu íbúðarhús-
næðis, er kærkomið að hið opinbera
stuðli að framkvæmdum,“ segir Sig-
urður Hannesson. „Hafa verður í
huga að fjárfesting í innviðum er
fjárfesting í hagvexti framtíðar
enda leggja traustir innviðir grunn
að verðmætasköpun samfélagsins
hvort sem litið er til iðnaðar, sjávar-
útvegs eða ferðaþjónustu.“
Sigurður Hannesson bendir á að
á síðustu árum hafi verið mikið um-
leikis í verktaka- og byggingastarf-
semi. Ný hótel hafi verið reist víða
um land á undanförnum áratug og
hafi kröftum byggingariðnaðar ver-
ið beint í þá átt. Nú hefur dregið úr
fjárfestingu þar samhliða því sem
dregur úr hröðum vexti ferðaþjón-
ustunnar. „Ef við lítum aftur á móti
til byggingar íbúðarhúsnæðis þá
var lítið byggt á árunum eftir 2008
en meira undanfarin ár. Nú eru vís-
bendingar um að minna sé í píp-
unum. Dregið hefur úr sementssölu
og sölu á steypustyrktarjárni auk
þess sem nýleg talning Samtaka
iðnaðarins á íbúðum í byggingu
bendir til minni umsvifa en áður var
talið.“
Nú er rétti tíminn
Byggingariðnaðurinn er mjög
sveigjanlegur, segir Sigurður. Sem
dæmi nefnir hann að þegar mest
var voru ríflega 16 þúsund launþeg-
ar starfandi í byggingariðnaði árið
2007 en voru um 14.500 í júlí síðast-
liðnum. Hafði fjöldinn þá staðið í
stað frá fyrra ári. Iðnaðurinn geti
því sannarlega tekist á við aukin
verkefni.
„Nú er rétti tíminn til opinberra
framkvæmda og brýn verkefni bíða.
Það er slaki í hagkerfinu um þessar
mundir sem stjórnvöld eiga einmitt
að nýta og ráðast í framkvæmdir
sem eru arðbærar á allan mæli-
kvarða.“
Opinberar framkvæmdir kærkomnar
SI fagna samgöngusáttmála Rétti tíminn til verka þegar slaki er í hagkerfinu Fjárfest í hagvexti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð Framkvæmdir við samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu á
næstu árum eiga meðal annars að losa um margvíslegar teppur og tafir.
Sigurður
Hannesson
Köld böð gætu hægt á stækkun
vöðva að því er ný rannsókn sem
birtist í Journar of Applied Physio-
logy hefur leitt í ljós. Að henni stóðu
sérfræðingar úr Deakin University
og Victoria University í Melbourne í
Ástralíu auk annarra fræðimanna.
16 sjálfboðaliðar, heilsuhraustir
karlmenn sem voru óvanir að stunda
lyftingar, tóku þátt í rannsókninni og
var þeim skipt í tvo hópa. Annar hóp-
urinn sat í 10 gráða köldu baði að
þol- og styrktaræfingum loknum,
sem fóru að jafnaði fram þrisvar í
viku, en hinn ekki. Eftir sjö vikur
höfðu allir þátttakendur rannsókn-
arinnar aukinn vöðvamassa en hóp-
urinn sem slapp við kalt bað að æf-
ingu lokinni státaði af stærri vöðvum
með meira vaxtapróteini en raunin
varð hjá fyrri hópnum.
Rannsóknum á köldum böðum er
ábótavant en þó hefur tekist að sýna
fram á það að kuldinn hægi á end-
urheimtarferli líkamans, sem fer af
stað eftir styrktar- eða þolæfingu.
Þórarinn Sveinsson, prófessor í
lífeðlisfræði við Háskóla Íslands,
segir að slíkar niðurstöður séu sífellt
að koma betur í ljós en hann álíti
sjálfur að kæling hljóti að hafa nei-
kvæð áhrif á einhverja þætti endur-
heimtarferlis líkamans.
„Það sem kælingin gerir fyrst og
fremst er að deyfa sársauka og auka
vellíðan. Hún hefur einnig sálræn
áhrif og minnkar sársaukaboð til
heilans en þar af leiðandi losnar líka
um vellíðanarefni í heilanum. Það er
það sem íþóttamenn upplifa,“ sagði
Þórarinn.
Hann telur að þegar sársaukinn sé
minni telji íþróttamenn sig tilbúna í
næstu átök. Þá segir hann rannsókn-
ir benda til þess að fari íþróttamenn í
kalt bað að átökum loknum verði
þeir sprækari daginn eftir.
Köld böð hægja á stækkun vöðva
Lífeðlisfræðingur segir niðurstöður nýbirtrar rannsóknar
ekki koma á óvart Neikvæð áhrif á endurheimtarferli
Morgunblaðið/Valgarður Gíslason
Kalt Íþróttamenn hafa lengi stund-
að köld böð til að bæta árangur.