Morgunblaðið - 30.09.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.09.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Marokkó 24. október - 9 nætur Verð frá kr. 89.995 Agadír Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta er heillitur veðhlaupari, ekki satt? Ég er bara með hvítan,“ heyr- ist úr einu horni. „Ég er með bleik- an gyðing. Hann þarf bara smáljós og þá verður hann góður,“ heyrist úr öðru. Þetta var á meðal þess sem mátti heyra þegar pottaplöntuunnendum var boðið að koma með blóm og græðlinga sína til að skiptast á við aðra ræktendur í Borgarbókasafn- inu Árbæ í gær. Þar kenndi ýmissa grasa, í orðanna fyllstu merkingu, og mátti fljótt sjá að blóm og græð- lingar geta gefið lífinu mikinn lit ef rétt er farið að. Hertaka helming hússins „Ég hætti að drekka og vantaði eitthvað að gera,“ segir Viðar Örn Pálsson, einn plöntuunnenda, þegar blaðamaður spyr hann hvernig áhuginn fyrir pottaplöntum hafi kviknað. Viðar sökkti sér í plöntu- ræktina fyrir um tveimur árum og hafa plönturnar síðan þá „hertekið hálft húsið“. „Konan er sem betur fer ekki búin að henda mér út,“ bætir hann við og glottir. Á meðal þess sem hann býður til skipta eru piparplöntur, sætur og sterkur pip- ar, sem hann notar sjálfur gjarnan í matargerð, sem dæmi til sósu- og sultugerðar. Annar blómaunnandi, Nilsína Larsen Einarsdóttir, er búinn að skipta stórum hluta ræktunar sinn- ar þegar blaðamaður kemur við hjá henni. „Ég er komin með freknulauf og indíánafjöður,“ segir hún og blaðamaður rekur upp stór augu, enda alger nýgræðingur þegar kem- ur að grasafræði. „Veðhlaupari, frið- arliljur og gangandi gyðingur,“ seg- ir hún svo spurð um hvað hún hafi komið með til skiptanna. Aðspurð segir hún að plönturæktin hafi átt hug hennar og hjarta síðasta eina og hálfa árið og segir ástæðuna fyr- ir áhuganum vera að henni þyki gott að hafa lifandi hluti í kringum sig. Plöntuunnandi í tugi ára Í samtali segir Katrín Guðmunds- dóttir, deildarstjóri Borgarbóka- safnsins Árbæ, að plöntuskiptin hafi verið haldin í bókasafninu í annað skipti í gær. Þau hafi fyrst verið haldin í vor, þá hafi margir komið með útiblóm líka, en inniblómin hafi verið í forgrunni í gær. Segir hún að plöntuskiptin séu hluti af því fjölbreytta starfi sem staðið er að á bókasafninu. Aðspurð segir hún að ívið fleiri hafi mætt í gær en í vor og áhugi á pottaplöntum sé greinilega mikill hjá sumum. Hún hafi sjálf verið mikill pottaplöntuunnandi lengi, jafnvel þegar færri gáfu slíku gaum, upp úr 1980-90. „Það var bara eitthvert gamaldags fólk eins og ég sem var með pottaplöntur þá,“ bætir hún við og hlær. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markaðurinn Plöntuunnendur voru þægilegustu viðsemjendur og skiptust bróðurlega á plöntum og græðlingum. Hætti að drekka og fór að safna plöntum  Plöntuunnendur skiptu á gyðingum og veðhlaupurum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skoðað Fólk með græna fingur athugar plönturnar hvað hjá öðru. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Upplýsingaöflun um akstursferðir landsmanna til innheimtu veggjalda gæti brotið í bága við persónuverndarlög. Verði gjöldin innheimt með því að greina bílnúmer bifreiða væru stjórnvöld að safna persónugreinanlegum upp- lýsingum, að sögn Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar. „Þetta er stórt atriði í nýrri persónuvernd- arlöggjöf, hversu mikið við viljum láta rekja okkar ferðir,“ sagði Helga. Séu upplýsingarnar persónugreinanlegar þurfi að tryggja að heim- ild sé til vinnslu upplýsinganna og öryggi þeirra sé tryggt svo fátt eitt sé nefnt. Helga segir þó að yfirvöld geti skoðað hvort slík vinnsla persónuupplýsinga sé heimil á grundvelli almannahagsmuna. „Ef þessar upplýsingar eru taldar nauðsyn- legar í þágu samgöngumála í Reykjavík þá þarf sá sem vinnur upplýsingarnar að hafa skýra heimild til þess,“ sagði hún til útskýr- ingar. Sé hún til staðar þá gæti jafnframt verið nauðsynlegt að fræða fólk um hvað felist í upp- lýsingasöfnuninni. Sem dæmi nefnir Helga að í Kína reki stjórnvöld ferðir einstaklinga óspart og safni gögnum fyrir svokallað „credit-score“ sem fel- ur meðal annars í sér stigagjöf fyrir hvern íbúa. „Þá er spurningin hvernig samfélagi við vilj- um lifa í. Við höfum skilning á því að fleiri og fleiri skref borgara séu skráð en sá skilningur á sér ákveðin takmörk,“ sagði hún. Ekki er enn ljóst með hvaða hætti veggjöld- in verða innheimt en búast má við því að gjald- heimtan verði rafræn og muni hafa takmörkuð áhrif á umferðarhraða. Því er ekki gert ráð fyr- ir því að sett verði upp gjaldhlið líkt og við Hvalfjarðargöngin. Áætlað er að gjaldtakan hefjist árið 2022. Veggjöld standist persónuverndarlög  Gæta þarf þess að nýtilkomin veggjöld standist persónuverndarlög  Innheimtan verður líklega rafræn  Upplýsingar um akstur eru persónugreinanlegar sé þeirra aflað með því að greina bílnúmer Morgunblaðið/Hari Gjöld Innheimta þeirra verður líklega rafræn en hún þarf að standast persónuverndarlög. Um 18% grunnnema við Háskóla Ís- lands þjást af miklum tannlæknaótta, -kvíða og -fælni og 19,2% hafa slíkan ótta á miðstigi, að því er fram kemur í BS-lokaverkefni Ölrúnar Bjarkar Ingólfsdóttur í tannsmíði við Tann- læknadeild Háskóla Íslands. „Það er hætta á því að vítahringur myndist hjá þeim sem upplifir þenn- an ótta. Til eru dæmi um það að fólk leiti ekki til tannlæknis fyrr en allt er komið í það mikið óefni að fólk getur ekki tuggið mat af sársauka. Þá tek- ur við mikil meðferð sem felur í sér mikinn sársauka og getur jafnvel aukið kvíðann,“ sagði Ölrún. Rafræn könnun var send á alla nemendur á aldrinum 20-25 ára, skráða í grunnnám við Háskóla Ís- lands í febrúar 2019 og voru þeir spurðir um líðan sína gagnvart ýms- um aðstæðum tengdum tann- læknaheimsóknum. Af niðurstöð- unum má ætla að umfang tannlæknaótta sé sambærilegt í öðr- um kimum samfélagsins, að því er ályktað er í lokverkefninu. Tannlæknaótti, -kvíði eða -fælni getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir tannheilsu þeirra sem þjást af slíku og forðast tannlæknaheimsóknir af þeim sökum. Ölrún segir að erlendar rannsóknir bendi til þess. Þó höfðu 88% þátttakenda rann- sóknarinnar sótt sér tannlæknaþjón- ustu síðastliðin tvö ár, sem bendir til þess að kvíðinn aftri ekki öllum þeim sem af honum þjást. „Þessi 12% hafa kannski ekki farið einmitt vegna kvíða,“ sagði Ölrún. Kostnaður vegna tannlæknaþjónustu var aðalástæða þess að þátttakendur fóru ekki eins oft til tannlæknis og þeir myndu helst vilja, en 73,2% þátt- takenda tóku ekki undir það. Efnisval Ölrúnar er ekki tilviljun þar sem hún hefur sjálf glímt við tannlæknaótta frá unga aldri. Hún lenti í miður skemmtilegri reynslu hjá tannlækni sem gerði það að verk- um að hún hefur ávallt kviðið fyrir því að setjast í tannlæknastólinn. Þá var tannlæknirinn of harðhentur og hugaði lítið að þægindum og nær- gætni. „Ef ég myndi halda áfram með rannsóknina þá myndi mig langa til að vita hvaða ástæða liggi að baki hræðslunni, hvort sem það er vond reynsla, uppeldi eða annað,“ sagði hún. Hún tekur fram að viðhorf og viðmót tannlækna hafi þó breyst til hins betra með árunum, hvað þessi mál varðar. Margir þjást af tannlæknaótta  Kvíðinn kemur niður á tannheilsu Morgunblaðið/Árni Sæberg Kvíði Margir háskólanemar óttast að setjast í tannlæknastólinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.