Morgunblaðið - 30.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Styrmir Gunnarsson skrifar umsundrungaraflið ESB: „Fólk
horfir agndofa til Bretlands og
þeirra miklu átaka, sem þar
standa yfir um þá einföldu aðgerð
að framfylgja vilja
meirihluta brezku
þjóðarinnar í þjóð-
aratkvæðagreiðslu
um útgöngu úr
ESB. Það virðist
ekkert lát á mark-
vissum og skipuleg-
um aðgerðum
Brussel til að koma í veg fyrir að
sá lýðræðislegi vilji þjóðarinnar
nái fram að ganga.
Bretland er að sjálfsögðu skýr-
asta dæmið um það hvílíkt sundr-
ungarafl Evrópusambandið er
orðið, sem í upphafi fór af stað
sem viðleitni Evrópuþjóða til að
binda enda á styrjaldir þeirra í
milli.
Jafnvel hér á Íslandi hefur þettasundrungarafl skilið eftir sig
spor. Innan Sjálfstæðisflokksins
ríkti mikil samstaða allt kalda
stríðið og þau ágreiningsmál sem
upp komu voru smávægileg sbr.
aronskuna.
En ólík afstaða til ESB hefur
þegar leitt til klofnings þess
flokks sem á ríkan þátt í því að
hann er ekki svipur hjá sjón miðað
við það sem áður var. Og jafnvel
raddir um að hann gæti klofnað
aftur vegna sama máls.
Er ekki kominn tími til að Evr-ópuþjóðir horfist í augu við
að það sem átti að sameina þær er
að sundra þeim?“
Vissulega er mikið áhyggjuefnihve ókjörnir embættismenn
ESB hafa náð að valda miklum
skaða með ofsafenginni fram-
göngu. Lýðræðislega kjörnir
fulltrúar almennings verða að
grípa í taumana ef ekki á verr að
fara. Líka hér á landi.
Styrmir
Gunnarsson
Sundrandi
sameiningarafl
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
„Lítil og meðalstór ríki, sem reyndar
eru þorri aðildarríkja Sameinuðu
þjóðanna, ættu ekki að skorast und-
an því að láta meira að sér kveða á al-
þjóðavettvangi,“ sagði Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra
þegar hann ávarpaði allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna aðfaranótt
laugardags og bætti við að Ísland
væri fyrir sitt leyti reiðubúið til að
axla ábyrgð og hefði jafnt og þétt
bætt í framlag sitt til Sameinuðu
þjóðanna.
Guðlaugur Þór sagði í ræðunni að
loftslagsbreytingar væru ein mesta
áskorun okkar tíma, ef ekki sú
mesta. Þær hefðu áhrif á öryggi
heimsins, sjálfbæra þróun, heilbrigði
umhverfisins og þegar upp væri
staðið siðmenningu okkar.
„Á norðurslóðum, þar á meðal í
landi mínu, sjáum við jökla hverfa og
bráðna og höfin og lífið í höfunum
tekur hröðum breytingum,“ sagði
hann og lagði áherslu á að Ísland
væri staðráðið í að ná markmiðum
Parísarsamkomulagsins 2030.
Hann lagði einnig áherslu á mann-
réttindi og sagði að þar sem á næsta
ári yrði 75 ára afmælis Sameinuðu
þjóðanna minnst væri rétt að hafa í
hávegum arfleifð þeirrar kynslóðar,
sem stofnaði þær eftir hrylling
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Lítil og meðalstór ríki láti að sér kveða
Utanríkisráðherra ræddi loftslagsmál
og mannréttindi á allsherjarþingi SÞ
Á allsherjarþingi Guðlaugur Þór
Þórðarson ávarpar SÞ.
Verslunarmiðstöðin Kringlan var
verðlaunuð á alþjóðlegri verð-
launahátíð alþjóðlegra samtaka
verslunarmiðstöðva, sem á ensku
heita International Council of
Shopping Centers (ICSC).
Verðlaun Kringlunnar voru veitt á
föstudag í flokknum þjónusta fyrir
rafræna aðstoð við viðskiptavini í
jólagjafaleit síðustu dagana fyrir jól,
að því er kemur fram í fréttatilkynn-
ingu.
Verkefnið hét Neyðarpakkatakk-
inn og var hann hannaður eins og
sos-merki og auglýstur á fé-
lagsmiðlinum Facebook. Með því að
ýta á takkann fékkst samband við
þjónustufulltrúa hjá Kringlunni í
gegnum samskiptaforritið Messen-
ger. Fengu yfir eitt þúsund við-
skiptavinir aðstoð með þessum
hætti.
Í tilkynningunni segir einnig að
keppt hafi verið í 10 flokkum. Í þjón-
ustuflokknum voru einnig tilnefnd
verkefni frá Danmörku, Ítalíu,
Portúgal, Danmörku, Belgíu og
Lettlandi. Kringlan hefur tvisvar áð-
ur hlotið verðlaun frá samtökunum,
árið 2012 fyrir Miðnætursprengju
og árið 2014 fyrir leikinn Kringlu-
kröss.
Kringlan fær
alþjóðleg verðlaun
Verðlaun Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, og Bald-
vina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, taka við verðlaununum.