Morgunblaðið - 30.09.2019, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Flugfarþegi sem var að koma frá
Newark-flugvelli í Bandaríkjunum
tilkynnti flugstöðvardeild lögregl-
unnar á Suðurnesjum í liðinni viku
að stolið hefði verið úr tösku hans.
Fannst honum taskan létt þegar
hann tók hana af færibandinu í
Leifsstöð.
Jón Þór Karlsson, aðalvarðstjóri
hjá flugstöðvardeildinni, sagði í
samtali við mbl.is að mál af þessu
tagi gætu verið erfið úrlausnar.
„Það er alls ekki auðvelt að leysa
þetta. Við höfum ýmis úrræði hérna
á svæðinu til þess að kynna okkur
þetta og fylgjast með farangri.
Stóra vandamálið er náttúrlega ef
þetta gerist ekki hérna á okkar
svæði,“ sagði hann.
Skömmuðust sín
Þá var lögreglu tilkynnt að
myndavél hefði verið stolið af far-
þega í flugstöðinni. Í myndavéla-
kerfi flugvallarins sást að farþeg-
inn hafði misst litla tösku með
myndavélinni án þess að taka eftir
því. Skömmu síðar bar að tvo menn
sem skoðuðu það sem var í töskunni
og hirtu myndavélina. Lögreglan
hafði uppi á þeim fingralöngu sem
skömmuðust sín og skiluðu mynda-
vélinni.
Flókið þeg-
ar stolið er
úr farangri
Morgunblaðið/Frikki
Stuldur Taskan léttist á leiðinni.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjöldi skóladaga á Íslandi á grunn-
og framhaldsskólastigi er 180 dag-
ar á ári, sem er sama og meðaltal
fjölda skóladaga í Evrópulöndum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
Eurydice-rannsóknar þar sem
gerður var samanburður á lengd
skólaársins 2019/2020 og fjölda
frídaga á grunn- og framhalds-
skólastigi í 38 Evrópulöndum.
Menntamálastofnun (mms.is)
kynnti niðurstöður rannsókn-
arinnar.
Á Norðurlöndunum fimm eru
fæstir skóladagar í Svíþjóð þar
sem þeir eru 178 á ári. Næst kem-
ur Ísland með 180 daga, í Noregi
og Finnlandi eru skóladagar rétt
um eða innan við 190 á ári. Danir
eru með flesta skóladaga, 200 á
ári, en þeir og Ítalir eru með
lengstu skólaárin í Evrópu.
Skólaárið er styst í flæmska hluta
Belgíu þar sem það er 157,5 dag-
ar.
Misjafnlega löng sumarfrí
Sumarfrí í skólum á Norð-
urlöndum eru lengst 9-11 vikur og
á það við um Ísland, Svíþjóð og
Finnland. Sumarfrí í norskum
skólum eru 7-9 vikna löng. Dansk-
ir nemendur þurfa hins vegar að
sætta sig við sumarfrí sem er inn-
an við sjö vikna langt.
Sé litið til allra landanna 38 sem
rannsóknin náði til er ljóst að
skólafrí eru mislöng milli landa en
samt er skólaárið svipað að lengd í
Evrópulöndum þegar heildarfjöldi
skóladaga er skoðaður. Skólaárið
hefst yfirleitt í ágúst í tíu löndum
eða svæðum. Danir og Finnar eru
fyrstir til að hefja kennslu hvert
skólaár. Skólaárið hófst hins veg-
ar 2. september í átján löndum/
svæðum og víða í Suður-Evrópu,
Búlgaríu og Lúxemborg er al-
gengt að skólaárið hefjist um miðj-
an september.
Öll löndin eiga það sameiginlegt
að gefin eru tveggja vikna löng frí
um jól og áramót í skólum. Þó eru
dæmi um vikulöng jólafrí eins og í
Slóveníu og Serbíu og allt upp í
þriggja vikna löng frí í Þýska-
landi. Einnig er algengt að gefin
séu haustfrí, páskafrí og vetrarfrí
nálægt föstubyrjun.
Eurydice, sem gerði rannsókn-
ina, er upplýsinganet Evrópusam-
bandsins um menntamál í Evrópu.
Það nær til 38 landa sem taka þátt
í Erasmus+-áætluninni en í þeim
hópi eru m.a. EFTA-ríkin. Ísland
hefur tekið þátt í Eurydice frá
1994.
Skólaárið á Íslandi er meðallangt
Næstfæstir skóladagar hér á Norðurlöndum Rannsókn á lengd skólaárs og skólafríum í Evrópu
Björgunarsveitarmenn björguðu í
gær fólki sem lenti í sjálfheldu í
brattlendi við Tröllafoss í Mosfells-
dal. Útkall barst skömmu eftir há-
degi og fannst fólkið skömmu síðar.
Björgunarmenn létu sig síga nið-
ur til fólksins og aðstoðuðu það við
að komast niður brattann.
Fólkið var óslasað, en skelkað. Í
tilkynningu frá Landsbjörg segir að
aðgerðin hafi gengið vel og fólkið
verið ánægt að komast niður.
Bjargað úr
sjálfheldu við
Tröllafoss
Aðgerð Björgunarsveitarmenn
láta sig síga við Tröllafoss.