Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 11
Trollbátur Farsæll glæsilegur að sjá í Grundarfjarðarhöfn á laugardag.
Morgunblaðið/Alfons Finsson
Bæjarstjórinn Sjávarútvegur virkur þátttakandi í atvinnuháttabreytingum, segir Björg. Bátarnir nýju í baksýn.
Morgunblaðið/Alfons Finsson
Smáir en knáir trollbátar í nýrri höfn
Tveir til Grundarfjarðar Notaðir úr Grindavík Þriðji á morgun Bylting , segir bæjarstjóri
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Útgerðir FISK Seafood og Soff-
aníasar Cecilssonar í Grundarfirði
tóku á laugardaginn við tveimur
bátum sem leysa
eldri skip af
hólmi. Nýju bát-
arnir, Farsæll
SH-30 og Sig-
urborg SH-12,
komu inn til
Grundarfjarðar
laust eftir há-
degi og tók fjöl-
menni þar á móti
skipunum og
áhöfnum þeirra við athöfn sem var
hátíðleg.
Sækja á fleiri mið
Bátarnir, sem keyptir voru af
Gjögri hf., verða gerðir út frá
Grundarfirði og er þeim ætlað að
sinna veiðum á til dæmis sólkola,
skarkola og steinbít. Farsæll, skip
frá 2009, hét í eigu fyrri útgerðar
Áskell EA og er 362 brúttótonn.
Sigurborgin, pólsk smíði frá 2006,
var áður Vörður EA og er 485
brúttótonn.
„Núna erum við að fá smáa en
knáa trollbáta sem vonandi munu
gera okkur kleift að sækja á fleiri
mið en fyrr, fjölga aflategundum
og auka um leið rekstraröryggið,“
segir Friðbjörn Ásbjörnsson út-
gerðarstjóri um skipin nýju.
Reiknað er með að gamli Farsæll
SH og Sigurborg SH, sem nú víkja
fyrir yngri skipum, verði seld og
ef ekki fari þau í pottinn
Stórstígar breytingar
„Engum dylst að það eru tímar
stórstígra breytinga í samfélaginu,
sem eru þegar farnar að hafa mik-
il áhrif. Breytingarnar eru svo víð-
tækar að talað er um fjórðu iðn-
byltinguna,“ sagði Björg
Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grund-
arfirði, í ávarpi sem hún flutti við
móttöku skipanna tveggja. „Þess
vegna er það ánægjulegt að ekki
síst sjávarútvegurinn er virkur
þátttakandi í þeim tækni- og at-
vinnuháttabreytingum sem nú eiga
sér stað. Með því skapar hann sér
einmitt stöðu til að vera áfram
undirstöðuatvinnuvegur þjóð-
arinnar.“
Við þetta er því að bæta að á
morgun, þriðjudag, kemur þriðja
nýja skipið til Grundarfjarðar. Það
er nýr Runólfur SH 135 í eigu
fyrirtækisins Guðmundar Runólfs-
sonar hf. Skipið, sem er 486
brúttótonn, hét áður Bergey VE
544 og var í eigu Bergs-Hugins/
Síldarvinnslunnar.
Fer á Vestfjarðamið
„Mér líkar vel við skipið,“ segir
Guðmundur Kristján Snorrason,
skipstjóri á Farsæli SH. „Við sigld-
um úr Reykjavík hingað til Grund-
arfjarðar í leiðindaveðri aðfara-
nótt laugardags en alls gekk vel.“
Ráðgert er að Farsæll fari til
veiða um næstu helgi og er skip-
stjóranum uppálagt að veiða ýsu,
kola og steinbít á Breiðafirði og
Vestfjarðarmiðum. Níu menn
verða eru í áhöfn Farsæls og hver
túr verður sex dagar hið mesta.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Áhugavert Margir skoðuðu bátana sem breytu miklu í Grundarfirði.
Guðmundur
K. Snorrason
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Lopapeysa
í sveitina
Verið velkomin í nýja og glæsilega
verslun okkar okkar á Laugavegi 4-6
Álafossvegi 23, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Þessi eina sanna sem verður bara betri
eftir því sem þú nota hana meira.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Deigla Hross og fólk. Réttarstörfunum fylgir jafnan stemning og gleði.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hross Hvar er klárinn minn í stóðinu? sagði hestamaðurinn með hattinn.