Morgunblaðið - 30.09.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Mussila ehf. hefur samið við Net-
Ease Games, einn stærsta framleið-
anda og dreifingaraðila tölvuleikja í
Kína, um útgáfu á Mussila-
tónlistarskólanum þar í landi. „Við
höfum markvisst unnið að því að
koma Mussila inn á Kínamarkað.
Þessi markaður er í miklum og ör-
um vexti og Mussila fær þar mjög
háa notendaeinkunn og góða spilun.
Hins vegar er þetta erfiður mark-
aður að komast inn á og varla hægt
að gera það nema í samstarfi við
sterkan útgefanda eða dreifingar-
aðila. Við erum mjög ánægð með að
hafa náð þessu samkomulagi við
NetEase, fyrirtæki sem hefur að-
gengi að hundruðum milljóna not-
enda og er eitt þeirra fyrirtækja
sem eru leiðandi á þessu sviði.
Þetta eru mjög spennandi tímar og
við hlökkum til að sjá Mussila í
höndum kínverskra barna.“
Þannig mælir Margrét Júlíana
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Mussila ehf., við Morgunblaðið.
Samningur Mussila er liður í áform-
um Mussila um aukna sókn á As-
íumarkaði. „Hann er liður í því að
auka aðgengi barna að tónlistar-
kennslu um allan heim. Mussila-
tónlistarskólinn er nú fáanlegur á
35 tungumálum á App Store og Go-
ogle Play og það gleður okkur að
geta nú loksins tilkynnt að hann er
einnig fáanlegur hjá NetEase í
Kína,“ segir Margrét.
Gríðarlegir möguleikar
Jón Gunnar Þórðarson, markaðs-
stjóri Mussila, segir um gríðarlega
möguleika að ræða fyrir íslenska
sprotafyrirtækið. „Kínamarkaður-
inn er risastór og fer ört stækk-
andi. Í Kína er að finna einn
stærsta tölvuleikjamarkað heims og
fræðsluleikir eru þar í sérstaklega
mikilli sókn, samhliða aukinni net-
væðingu landsins. Streymisveita
NetEase, sem verður opnuð í næsta
mánuði, er liður í því að skapa
öruggara net- og tölvuumhverfi fyr-
ir börn. Í dag eru fleiri en 800 millj-
ónir manna tengdir netinu og 98%
þeirra eru með farsíma. Gert er ráð
fyrir 25 milljónum notenda á þess-
ari nýju streymisveitu og sá fjöldi á
að aukast töluvert á næstunni. Með
samstarfinu við NetEase opnast
fyrir okkur dyr að gífurlega stórum
markaði sem er náttúrlega bara
stórkostlegt fyrir íslenskt nýsköp-
unarfyrirtæki sem kennir börnum
tónlist og tónfræði,“ segir Jón
Gunnar.
NetEase er á meðal stærstu net-
og tölvufyrirtækja og sér um dreif-
ingu margra af vinsælustu net-
leikjum heims í Kína, m.a. Pokemon
Go, World of Warcraft og Minec-
raft. NetEase hefur áður farið í
samstarf við íslenskt fyrirtæki en
það sér um farsímaútgáfu á Eve
Online í samstarfi við CCP.
Lofa fagmennsku
Elaine Zhang, yfirmaður á þró-
unarsviði hjá NetEase, segir að
ástæðan fyrir því að Mussila varð
fyrir valinu sé sú að stjórnendum
finnist efnið vera unnið af mikilli
fagmennsku. Það sé fremur sjald-
gæft að finna stafrænt fræðsluefni
fyrir börn í þessum gæðaflokki.
„Við teljum Musilla gjöfulan og fag-
legan að innihaldi og þessi tegund
gæðaleikja er enn sem komið er fá-
gæt á markaði fyrir stafrænt
fræðsluefni fyrir börn,“ segir
Zhang.
Margrét Júlíana Sigurðardóttir
og Hilmar Þór Birgisson og Jón
Gunnar Þórðarson frá Mussila fóru
ásamt sendinefnd norrænna leikja-
framleiðanda og skoðuðu höfuð-
stöðvar NetEase í Kína í nóvember
í fyrra. Var Mussila áberandi á kín-
versku hátækni- og menningar-
ráðstefnunni sem fram fór um sama
leyti í Shenzhen.
Tilurð Mussila-forritsins má
rekja aftur til ársins 2012 þegar
Margrét Júlíana fór að hanna hug-
myndina að Mussila og tók þátt í
Gullegginu það árið, árið 2014 sam-
einuðu hún og tölvufræðingurinn
Hilmar Þór Birgisson krafta sína
og saman fengu þau styrk frá
Tækniþróunarjóði til þess að þróa
hugmyndina á bakvið Mussila-
tónlistarskólann. Hefur skólinn ver-
ið í stöðugri þróun síðan. Hóf
sprotafyrirtækið sölu á áskriftar-
leiðum í maí síðastliðnum og hefur
sala þeirra farið fram úr vænt-
ingum.
Hróður berst víða
Hróður Mussila hefur borist víða
og hefur nýjasta uppfærslan vakið
sérstaka athygli. Mussila hlaut m.a.
á dögunum verðlaun sem besta app-
ið á foreldraverðlaununum í Banda-
ríkjunum (Parents’ Choice Award).
Snemma þessa árs sýndi svo Net-
Ease áhuga á að fá umboð fyrir
Mussila í Kína og er nú komið að
útgáfunni.
Samningur Mussila við stærri og
öflugri dreifingaraðila er í samræmi
við áform Mussila um aukna sókn á
Asíumarkaði. Hann er liður í því að
auka aðgengi barna að tónlistar-
kennslu um allan heim. Smáforritið
kennir börnum í gegnum leik að
þekkja fjölda hljóðfæra, spila lög og
lesa nótur í gegnum tónlistar-
námskeið á frægum verkum. „Nám-
skeiðin fylgja markvissri náms-
áætlun og geta foreldrar fylgst með
árangri barnanna jafnt og þétt.
Leiknum hefur verið vel tekið út
um allan heim, enda er tónlist al-
þjóðlegt tungumál. Í maí síðast-
liðnum hófum við sölu áskriftarleiða
og spilarinn gerist þá áskrifandi að
tónlistarnámskeiðum á borð við
Svanavatnið, Töfraflautuna eða
jafnvel afmælissönginn, lærir
grunnatriðin í tónfræði og einnig að
spila lagið á píanó,“ segir Margrét
Júlíana.
Strandhögg í Kína
Á Kínamarkað Margrét Júlíana Sigurðardóttir, Hilmar Þór Birgisson og
Jón Gunnar Þórðarson frá Mussila heimsóttu höfuðstöðvar NetEase í Kína.
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mussila er komið með fótinn inn fyrir þrösk-
uld kínverska tölvuleikjamarkaðarins Samið við einn helsta risann í geiranum
Gæðaefni Web NetEase segir fremur sjaldgæft að finna stafrænt fræðslu-
efni fyrir börn í sama gæðaflokki og tónlistarskóla Musilla. 30. september 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.81 124.41 124.11
Sterlingspund 152.16 152.9 152.53
Kanadadalur 93.34 93.88 93.61
Dönsk króna 18.108 18.214 18.161
Norsk króna 13.626 13.706 13.666
Sænsk króna 12.635 12.709 12.672
Svissn. franki 124.64 125.34 124.99
Japanskt jen 1.1444 1.151 1.1477
SDR 168.72 169.72 169.22
Evra 135.22 135.98 135.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2198
Hrávöruverð
Gull 1496.15 ($/únsa)
Ál 1722.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.48 ($/fatið) Brent
Bretland verður
lágskattaríki með
sveigjanlegt hag-
kerfi eftir að það
yfirgefur Evr-
ópusambandið
(ESB).
Þetta sagði Liz
Truss, við-
skiptaráðherra
Bretlands, á
flokksþingi Íhaldsflokksins í Man-
chester í gær.
Truss hélt því einnig fram í ræðu
sinni að Bretland yrði mun „sam-
keppnisfærara“ og „sjálfsöruggara“
er landið skilur sig frá ESB, sem
ráðgert er að eigi sér stað 31. októ-
ber nk. að öllu forfallalausu. Sagði
hún að sem lágskattaríki með sveigj-
anlegt atvinnulíf yrðu Bretar leið-
andi í veröldinni. agas@mbl.is
Lágir
skattar
eftir brexit
Liz Truss
Bandarísk loftferðayfirvöld hafa
skipað Boeing-flugvélaverksmiðj-
unum að rannsaka sprungumyndun
í nokkrum 737 NG-farþegaþotum.
Flugmálastjórnin (FAA) segir
sprungur hafa fundist við endur-
bætur á „mjög mikið“ notaðri far-
þegaþotu. Sambærilegar sprungur
fundust síðan í nokkrum flugvélum
til viðbótar.
Sprunguleitin nær ekki til 737
Max-vélanna sem verið hafa í flug-
banni frá í mars síðastliðnum. Haft
hefur verið samband við alla
rekstraraðila 737 NG véla en frá
engum þeirra hafa borist fregnir af
vandamálum.
Boeing hefur ekki gefið upp hvað
sprunguleitin nái til margra NG-
flugvéla. Hefur fyrirtækið sömu-
leiðis varist fregna af því hvar í
flugvélunum sprungurnar fundust.
Undir leitina falla módel á borð við
737-700, 737-800 og 737-900. Aero-
flot, American Airlines, Ryanair og
United Airlines eru meðal flug-
félaga sem brúka 737 NG, sam-
kvæmt heimasíðu Boeing. Þar segir
jafnframt að Icelandair sé meðal
kaupenda 737 NG-þotunnar.
agas@mbl.is
Sprungur
í Boeing
737 NG
Skipa rannsókn Sprungur fundust
í Boeing 737 NG-farþegaþotum.