Morgunblaðið - 30.09.2019, Side 12

Morgunblaðið - 30.09.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mussila ehf. hefur samið við Net- Ease Games, einn stærsta framleið- anda og dreifingaraðila tölvuleikja í Kína, um útgáfu á Mussila- tónlistarskólanum þar í landi. „Við höfum markvisst unnið að því að koma Mussila inn á Kínamarkað. Þessi markaður er í miklum og ör- um vexti og Mussila fær þar mjög háa notendaeinkunn og góða spilun. Hins vegar er þetta erfiður mark- aður að komast inn á og varla hægt að gera það nema í samstarfi við sterkan útgefanda eða dreifingar- aðila. Við erum mjög ánægð með að hafa náð þessu samkomulagi við NetEase, fyrirtæki sem hefur að- gengi að hundruðum milljóna not- enda og er eitt þeirra fyrirtækja sem eru leiðandi á þessu sviði. Þetta eru mjög spennandi tímar og við hlökkum til að sjá Mussila í höndum kínverskra barna.“ Þannig mælir Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mussila ehf., við Morgunblaðið. Samningur Mussila er liður í áform- um Mussila um aukna sókn á As- íumarkaði. „Hann er liður í því að auka aðgengi barna að tónlistar- kennslu um allan heim. Mussila- tónlistarskólinn er nú fáanlegur á 35 tungumálum á App Store og Go- ogle Play og það gleður okkur að geta nú loksins tilkynnt að hann er einnig fáanlegur hjá NetEase í Kína,“ segir Margrét. Gríðarlegir möguleikar Jón Gunnar Þórðarson, markaðs- stjóri Mussila, segir um gríðarlega möguleika að ræða fyrir íslenska sprotafyrirtækið. „Kínamarkaður- inn er risastór og fer ört stækk- andi. Í Kína er að finna einn stærsta tölvuleikjamarkað heims og fræðsluleikir eru þar í sérstaklega mikilli sókn, samhliða aukinni net- væðingu landsins. Streymisveita NetEase, sem verður opnuð í næsta mánuði, er liður í því að skapa öruggara net- og tölvuumhverfi fyr- ir börn. Í dag eru fleiri en 800 millj- ónir manna tengdir netinu og 98% þeirra eru með farsíma. Gert er ráð fyrir 25 milljónum notenda á þess- ari nýju streymisveitu og sá fjöldi á að aukast töluvert á næstunni. Með samstarfinu við NetEase opnast fyrir okkur dyr að gífurlega stórum markaði sem er náttúrlega bara stórkostlegt fyrir íslenskt nýsköp- unarfyrirtæki sem kennir börnum tónlist og tónfræði,“ segir Jón Gunnar. NetEase er á meðal stærstu net- og tölvufyrirtækja og sér um dreif- ingu margra af vinsælustu net- leikjum heims í Kína, m.a. Pokemon Go, World of Warcraft og Minec- raft. NetEase hefur áður farið í samstarf við íslenskt fyrirtæki en það sér um farsímaútgáfu á Eve Online í samstarfi við CCP. Lofa fagmennsku Elaine Zhang, yfirmaður á þró- unarsviði hjá NetEase, segir að ástæðan fyrir því að Mussila varð fyrir valinu sé sú að stjórnendum finnist efnið vera unnið af mikilli fagmennsku. Það sé fremur sjald- gæft að finna stafrænt fræðsluefni fyrir börn í þessum gæðaflokki. „Við teljum Musilla gjöfulan og fag- legan að innihaldi og þessi tegund gæðaleikja er enn sem komið er fá- gæt á markaði fyrir stafrænt fræðsluefni fyrir börn,“ segir Zhang. Margrét Júlíana Sigurðardóttir og Hilmar Þór Birgisson og Jón Gunnar Þórðarson frá Mussila fóru ásamt sendinefnd norrænna leikja- framleiðanda og skoðuðu höfuð- stöðvar NetEase í Kína í nóvember í fyrra. Var Mussila áberandi á kín- versku hátækni- og menningar- ráðstefnunni sem fram fór um sama leyti í Shenzhen. Tilurð Mussila-forritsins má rekja aftur til ársins 2012 þegar Margrét Júlíana fór að hanna hug- myndina að Mussila og tók þátt í Gullegginu það árið, árið 2014 sam- einuðu hún og tölvufræðingurinn Hilmar Þór Birgisson krafta sína og saman fengu þau styrk frá Tækniþróunarjóði til þess að þróa hugmyndina á bakvið Mussila- tónlistarskólann. Hefur skólinn ver- ið í stöðugri þróun síðan. Hóf sprotafyrirtækið sölu á áskriftar- leiðum í maí síðastliðnum og hefur sala þeirra farið fram úr vænt- ingum. Hróður berst víða Hróður Mussila hefur borist víða og hefur nýjasta uppfærslan vakið sérstaka athygli. Mussila hlaut m.a. á dögunum verðlaun sem besta app- ið á foreldraverðlaununum í Banda- ríkjunum (Parents’ Choice Award). Snemma þessa árs sýndi svo Net- Ease áhuga á að fá umboð fyrir Mussila í Kína og er nú komið að útgáfunni. Samningur Mussila við stærri og öflugri dreifingaraðila er í samræmi við áform Mussila um aukna sókn á Asíumarkaði. Hann er liður í því að auka aðgengi barna að tónlistar- kennslu um allan heim. Smáforritið kennir börnum í gegnum leik að þekkja fjölda hljóðfæra, spila lög og lesa nótur í gegnum tónlistar- námskeið á frægum verkum. „Nám- skeiðin fylgja markvissri náms- áætlun og geta foreldrar fylgst með árangri barnanna jafnt og þétt. Leiknum hefur verið vel tekið út um allan heim, enda er tónlist al- þjóðlegt tungumál. Í maí síðast- liðnum hófum við sölu áskriftarleiða og spilarinn gerist þá áskrifandi að tónlistarnámskeiðum á borð við Svanavatnið, Töfraflautuna eða jafnvel afmælissönginn, lærir grunnatriðin í tónfræði og einnig að spila lagið á píanó,“ segir Margrét Júlíana. Strandhögg í Kína Á Kínamarkað Margrét Júlíana Sigurðardóttir, Hilmar Þór Birgisson og Jón Gunnar Þórðarson frá Mussila heimsóttu höfuðstöðvar NetEase í Kína.  Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mussila er komið með fótinn inn fyrir þrösk- uld kínverska tölvuleikjamarkaðarins  Samið við einn helsta risann í geiranum Gæðaefni Web NetEase segir fremur sjaldgæft að finna stafrænt fræðslu- efni fyrir börn í sama gæðaflokki og tónlistarskóla Musilla. 30. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.81 124.41 124.11 Sterlingspund 152.16 152.9 152.53 Kanadadalur 93.34 93.88 93.61 Dönsk króna 18.108 18.214 18.161 Norsk króna 13.626 13.706 13.666 Sænsk króna 12.635 12.709 12.672 Svissn. franki 124.64 125.34 124.99 Japanskt jen 1.1444 1.151 1.1477 SDR 168.72 169.72 169.22 Evra 135.22 135.98 135.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2198 Hrávöruverð Gull 1496.15 ($/únsa) Ál 1722.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.48 ($/fatið) Brent Bretland verður lágskattaríki með sveigjanlegt hag- kerfi eftir að það yfirgefur Evr- ópusambandið (ESB). Þetta sagði Liz Truss, við- skiptaráðherra Bretlands, á flokksþingi Íhaldsflokksins í Man- chester í gær. Truss hélt því einnig fram í ræðu sinni að Bretland yrði mun „sam- keppnisfærara“ og „sjálfsöruggara“ er landið skilur sig frá ESB, sem ráðgert er að eigi sér stað 31. októ- ber nk. að öllu forfallalausu. Sagði hún að sem lágskattaríki með sveigj- anlegt atvinnulíf yrðu Bretar leið- andi í veröldinni. agas@mbl.is Lágir skattar eftir brexit Liz Truss Bandarísk loftferðayfirvöld hafa skipað Boeing-flugvélaverksmiðj- unum að rannsaka sprungumyndun í nokkrum 737 NG-farþegaþotum. Flugmálastjórnin (FAA) segir sprungur hafa fundist við endur- bætur á „mjög mikið“ notaðri far- þegaþotu. Sambærilegar sprungur fundust síðan í nokkrum flugvélum til viðbótar. Sprunguleitin nær ekki til 737 Max-vélanna sem verið hafa í flug- banni frá í mars síðastliðnum. Haft hefur verið samband við alla rekstraraðila 737 NG véla en frá engum þeirra hafa borist fregnir af vandamálum. Boeing hefur ekki gefið upp hvað sprunguleitin nái til margra NG- flugvéla. Hefur fyrirtækið sömu- leiðis varist fregna af því hvar í flugvélunum sprungurnar fundust. Undir leitina falla módel á borð við 737-700, 737-800 og 737-900. Aero- flot, American Airlines, Ryanair og United Airlines eru meðal flug- félaga sem brúka 737 NG, sam- kvæmt heimasíðu Boeing. Þar segir jafnframt að Icelandair sé meðal kaupenda 737 NG-þotunnar. agas@mbl.is Sprungur í Boeing 737 NG Skipa rannsókn Sprungur fundust í Boeing 737 NG-farþegaþotum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.