Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 14

Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þegar efna-hagshremm-ingar gengu yfir heiminn fyrir rúmum áratug og íslensku bankarnir féllu í kjölfarið ákváðu nokkrir miður vandaðir áróðurs- og stjórn- málamenn hér á landi að grípa tækifærið og gera atlögu að stjórnarskrá landsins samhliða því að freista þess að koma landinu inn í Evrópusambandið. Ýmsar fjarstæðukenndar ályktanir voru dregnar af falli bankanna, bæði í pólitískum til- gangi og til að dreifa athyglinni frá þeim sem ábyrgðina báru, en ein þeirra sem er fjærst veruleikanum hlýtur að vera sú kenning að stjórnarskráin hafi brugðist og að eitt af því sem læra verði af þessum miklu at- burðum sé að stjórnarskráin sé ónothæf og að henni verði að breyta. Það féll í hlut vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar fljót- lega eftir fall bankanna að ráð- ast í brýn verkefni sem tengd- ust endurreisn bankanna og efnahagslífsins og að tryggja að áfallið yrði sem minnst fyrir al- menning í landinu og að þjóð- arbúið sigldi sem fyrst upp úr öldudalnum. Í stað þess að setja alla orkuna í þessi brýnu verk- efni var mikil orka sett í þau tvö óþurftarverkefni sem nefnd voru hér að ofan, að ráðast á stjórnarskrána og að koma Ís- landi inn í Evrópusambandið. Árið 2010 var efnt til kosningar til stjórnlagaþings þar sem áhugi almennings, þrátt fyrir mikinn áróður í aðdraganda kosningarinnar, var ekki meiri en svo að aðeins rúmur þriðj- ungur sá ástæðu til að taka þátt. Reyndist þetta lélegasta kosn- ingaþátttaka í sögu lýðveldisins. Þessum óförum vinstristjórn- arinnar fylgdi svo að kosningin var dæmd ógild í hæstarétti, sem er auðvitað líka einstakt. Þetta dugði ríkisstjórninni ekki til að hætta við árásirnar á stjórnarskrána og einbeita sér að brýnum verkefnum. Þess í stað var ákveðið að hafa dóm hæstaréttar að engu og skipa í það sem kallað var stjórnlaga- ráð þá sem engan stuðning höfðu fengið í ógildri kosningu til stjórnlagaþings. Þessi ótrú- legi farsi hélt svo áfram með öðru þjóðaratkvæði árið 2012, þá um tillögur hins ógilda stjórnlagaráðs. Í þeirri at- kvæðagreiðslu kom aftur í ljós að minnihluti landsmanna hafði áhuga á þessu brölti vinstri- stjórnarinnar. Þessi endurteknu áföll and- stæðinga stjórnarskrárinnar urðu ekki til að eyða rang- hugmyndum þeirra um að nauðsynlegt væri vegna falls bankanna að endur- skrifa stjórn- arskrána og hefur þeirri umræðu ver- ið haldið áfram all- ar götur síðan af litlum en háværum hópi. Nú á enn að leggja á djúpið og ráðast í breytingar á stjórnar- skránni. Til undirbúnings að þessu sinni ákvað ríkisstjórnin að láta gera skoðanakönnun um afstöðu almennings til stjórn- arskrárinnar. Eftir allar árás- irnar undanfarinn rúman ára- tug hefði mátt ætla að mikil óánægja væri með stjórn- arskrána, en svo er ekki. Ein- ungis 8% þeirra sem svöruðu sögðust mjög óánægðir með stjórnarskrána og aðeins 19% til viðbótar voru frekar óánægð- ir. Stærri er vandinn ekki. Um 3⁄4 eru ekki óánægðir með stjórnarskrá Íslands og mun fleiri eru beinlínis ánægðir en óánægðir. Í ljósi sögunnar, meðal ann- ars þess litla áhuga sem þjóðin hefur á undanförnum árum sýnt á þátttöku í breytingum á stjórnarskránni, kemur þessi niðurstaða ekki á óvart. Allir vita, nema ef til vill nokkrir há- værir áróðursmenn, að stjórn- arskráin hefur reynst Íslandi vel. Og stjórnarskrá er þess eðl- is að það er ekki ókostur að hún sé komin nokkuð til ára sinna og hafi ekki tekið miklum breyt- ingum, að ekki sé talað um grundvallarbreytingnum. Þvert á móti er það kostur að stjórn- arskráin var ekki sett í gær og að komin er góð reynsla á hana. Vissulega hefur henni nokkr- um sinnum verið breytt í ein- stökum atriðum, jafnvel all- mikið, en það hefur ekki verið gert í andrúmslofti ófriðar og atlögu að stjórnarskránni þar sem reynt hefur verið að knýja í gegn vafasamar breytingar eða jafnvel að lauma þeim í gegn eins og nú stendur til með hug- myndum um að „taka upp nýtt ákvæði um alþjóðasamstarf“. Þar er um að ræða ákvæði sem þeir sem reyndu að nýta fall bankanna til að koma Íslandi inn í Evrópusambandið styðja af miklum ákafa. Með því á að auðvelda þeim að þoka landinu enn nær Evrópusambandinu en þegar hefur verið gert. Ef til vill er þetta einmitt ástæða þess að árásin á stjórnarskrána var sett af stað eftir fall bankanna sam- hliða tilrauninni til að koma Ís- landi inn í ESB og því miður er ekki hægt að útiloka að þetta sé einnig ástæðan fyrir því að enn er unnið að því að breyta stjórn- arskránni, þrátt fyrir augljóst áhugaleysi þjóðarinnar. Atlagan að stjórn- arskránni ætlar engan enda að taka þrátt fyrir afstöðu almennings og áhugaleysi } Enn er unnið óþurftarverk Þ að þótti undarleg sú mikla leynd sem var yfir samkomulagi sem forsætis-, fjármála- og sam- gönguráðherra undirrituðu með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu í liðinni viku. Þörfin fyr- ir leyndina varð þó öllum ljós þegar undir- ritað plaggið birtist loks sl. fimmtudag. Fyrstu viðbrögð undirritaðs þegar plöggin voru birt voru að hugsa „Hvað ætli Eyþór hafi gert Bjarna?“en eftir að hafa lesið sam- komulagið vandlega situr eftir spurningin „Hvað hafa skattgreiðendur gert ríkisstjórn- inni?“ Í samkomulaginu, sem væri réttara að kalla viljayfirlýsingu, tekst á sex blaðsíðum að færa ríkinu skyldur upp á rúma 100 millj- arða – eitt hundrað þúsund milljónir! En skyldur sveitarfélaganna eru sáralitlar. Það verður sérstakt rannsóknarverkefni að finna út úr því hvernig samningamenn ríkisins létu plata sig með þessum hætti. Höfuðið var svo bitið af skömminni með því að ramma fullnaðarsigur borgarstjóra inn með því að sleppa borginni við að takast á hendur skuldbindingar um legu Sundabrautar og yfirhöfuð að því mikilvæga verkefni verði sleppt úr gíslingu borgaryfirvalda. Staðreyndin er sú að engin þeirra framkvæmda sem ætlunin er að vinna að á stofnbrautakerfi höfuðborgar- svæðisins er ný af nálinni, nema ef vera skyldi að setja hluta Sæbrautar í stokk. Öll önnur verkefni voru á áætl- un en höfðu liðið fyrir samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 2012 um stórframkvæmdastopp á höfuðborgarsvæð- inu. Viðbótin í „pakkanum“ felst í verkefnum tengdum hinni mjög svo óskilgreindu borgar- línu. Vegna hennar skal sækja 60 milljarða (nettó) í vasa bifreiðaeigenda. Gjaldtökuhugmyndirnar eru jafnvel enn verr skilgreindar en þessi svokallaða borgar- lína. Í samkomulaginu undirgangast ráðherr- arnir að flýti- og umferðargjöld verði skil- greind og innheimt til að ná fram markmiðum samkomulagsins. Það var ekki liðinn sólar- hringur frá undirritun þegar fjármálaráð- herra mætti í prýðisgott viðtal á mbl.is þar sem hann talaði fyrir því að sala Íslandsbanka gæti fjármagnað samkomulagið. Til viðbótar við þær upphæðir sem þegar hafa verið nefndar var undirritað hlið- arsamkomulag varðandi rekstur almennings- samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Þar er lagður grunnur að því að sækja 12 milljarðar frá rík- issjóði til viðbótar við þá 10 sem ríkissjóður hefur þegar ráðstafað í rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu á grundvelli áðurnefnds sam- komulags um stórframkvæmdastopp. Hingað til hafa 7 milljarðar af áður áætluðu fram- kvæmdafé Vegagerðarinnar farið í rekstur Strætó bs. með þeim árangri að hlutfall farinna ferða með strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haggast á samningstím- anum, það var 4,0% árið 2012 og er enn 4,0%! Það verður dýr lexía ef árangurinn verður svipaður af borgarlínu- ævintýrinu. Bergþór Ólason Pistill Hvað hafa skattgreiðendur gert ríkisstjórninni? Höfundur er þingmaður Miðflokksins bergthorola@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjónvarp Ríkisútvarpsins(RÚV) sýndi meirihlutannaf þeim íslensku kvikmynd-um, heimildamyndum og sjónvarpsþáttum sem framleiddir voru hér og fengu endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á árunum 2017 og 2018. Framleiðendur um- rædds efnis fengu endurgreitt allt að 25% framleiðslukostnaðar sem féll til hér á landi. Kvikmyndamiðstöð Íslands (KMÍ) heldur utan um endurgreiðsl- urnar og birtir yfirlitstöflur um þær á vef sínum (kvikmyndamidstod.is). Samkvæmt þeim fengu 54 verkefni endurgreiðslur á árinu 2017, samtals um 961 milljón. Um var að ræða heimildamyndir, sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Langflest verkefnin voru innlend, tíu voru erlend og í tveimur tilvikum var um samfram- leiðslu að ræða. RÚV tók 24 þessara verkefna til sýningar og námu endurgreiðslur KMÍ til framleiðenda þeirra 417 milljónum. Sjónvarpið greiddi sjálf- stæðum framleiðendum 668 milljónir vegna kaupa á efni, meðframleiðslu o.fl. árið 2017. Þar á meðal voru verk sem hvorki áttu rétt á né fengu end- urgreiðslu. Framleiðendur fjörutíu verkefna fengu endurgreiðslu frá KMÍ á árinu 2018 og námu þær samtals um 1.049 milljónum króna. Af þessum verk- efnum voru 23 tekin til sýninga í RÚV og námu endurgreiðslur vegna þeirra verka rúmum 404 milljónum króna. Sjónvarp RÚV greiddi sjálf- stæðum framleiðendum rúmar 777 milljónir árið 2018. Sama gilti um þau kaup og árið 2017. Mikill munur á verkefnunum Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps, benti á að talsverður munur væri á þessum verkefnum, eðli þeirra og uppruna. Hann sagði að sum væru framleidd fyrir sjónvarp en önnur væru heim- ildamyndir og kvikmyndir fram- leiddar fyrir almenna dreifingu, þar með talið í kvikmyndahúsum. Að- koma sjónvarpsstöðva væri einungis að vera kaupandi að sýningarrétti. „Meirihlutinn af þessum verk- efnum hefur verið sýndur á RÚV, einkum vegna þess að RÚV hefur nánast verið eini kaupandinn á sýn- ingarrétti á nær öllum íslenskum kvikmyndum og heimildamyndum síðustu árin,“ sagði Skarphéðinn. Stöð 2 sýndi fimm sjónvarps- þáttaraðir sem fengu endurgreiðslur frá Kvikmyndamiðstöð árið 2018 og þrjár sjónvarpsþáttaraðir sem fengu endurgreiðslur árið 2017. Sjónvarp Símans sýndi a.m.k. níu sjónvarps- þáttaraðir sem fengu endurgreiðslur árið 2018. Misháar endurgreiðslur Sjónvarpsþættirnir um Stellu Blómkvist, sem sýndir voru í Sjón- varpi Símans, fengu hæstu endur- greiðsluna á árinu 2018 eða tæplega 112 milljónir króna. Umsækjandi um endurgeiðsluna var Sagafilm. Næst- hæsta endurgeiðslan var vegna er- lendu sjónvarpsþáttanna Legend of Kunlun upp á 75,6 milljónir. Um- sækjandi var Pegasus. Þriðja hæsta endurgeiðslan var vegna kvikmynd- arinnar Víti í Vestmannaeyjum upp á 75,4 milljónir króna, umsækjandi var Sagafilm. Myndin var sýnd í kvikmyndahúsum og á RÚV. Hæsta endurgreiðslan 2017 var vegna erlendu kvikmyndarinnar Justice League upp á tæpar 152 milljónir, umsækjandi var Truenorth. RÚV sýndi meiri hluta verkanna Skilyrði fyrir endurgreiðslu er að „viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að koma íslenskri menningu á framfæri, kynna sögu landsins eða náttúrunnar eða að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að stuðla að aukinni reynslu, þekkingu á list- rænum metnaði þeirra sem að framleiðslunni standa,“ að því er segir á vef Kvikmynda- miðstöðvar Íslands (KMÍ). Endurgreiðslukerfið heyrir undir atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið sem hefur falið KMÍ umsjón þess. Ráðuneytið skipar formann þriggja manna nefndar sem metur umsóknir um endurgreiðslur. Hina tvo nefndarmenn- ina skipa fjár- mála- og efna- hagsráðuneytið og mennta- og menningar- málaráðu- neytið. Íslensk menning ENDURGREIÐSLUR Skarphéðinn Guðmundsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kvikmynd Víti í Vestmannaeyjum var eitt verkefnanna sem fengu endur- greiðslu árið 2018. Hér er hluti leikaranna við frumsýningu myndarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.