Morgunblaðið - 30.09.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.09.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 ✝ Einar Þorkels-son fæddist í Reykjavík 14. september 1937. Hann andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Eir að morgni 17. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Þorkell Einarsson húsa- smíðameistari, f. 26.12. 1910, d. 11.6. 2003, og Alfa Regína Ásgeirsdóttir, f. 8.7. 1911, d. 17.10. 1965. Systkini Einars eru Friðþjófur Þorkelsson, f. 29.8. 1932, d. 20.2. 2008, kona hans var Lo- uise Anna Schilt, Sigurlaug Þorkelsdóttir, f. 19.11. 1933, d. 25.9. 2017, Þorkell Alfreð Þorkelsson, f. 16.12. 1935, d. Hildur Einarsdóttir, f. 2.3. 1990, sambýlismaður Arnór Á. Jónasson, f. 25.4. 1987. 2) Ey- dís Rún Einarsdóttir, f. 30.7. 1993, sambýlismaður Jóhann Daði Magnússon, f. 15.5. 1991. 3) Guðrún Alfa Einarsdóttir, f. 11.7. 1998, unnusti Tryggvi Þór Árnason, f. 30.8. 1996. Einar fæddist í Skerjafirð- inum í Reykjavík og ólst upp í Krossamýri þar sem nú er Höfðahverfið við Ártúns- brekku. Hann gekk í Laugar- nesskóla, lærði húsasmíði og fór síðan í meistaranám. Einar starfaði alla tíð við smíðar og rak sitt fyrirtæki í tengslum við það. Hann sat um tíma í byggingarnefnd Mosfellsbæjar og stjórn Meistarafélags húsa- smiða. Hann var félagi í Skíðadeild KR og Lionsklúbbi Reykjavíkur. Útför Einars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 2.2. 1963, Ásgeir Halldór Þorkels- son, f. 14.9. 1937, d. 6.4. 1957, Svan- hildur Þorkels- dóttir, f. 14.3. 1943, d. 23.7. 2017, maðurinn hennar var Jó- hann S. Björnsson, d. 20.8. 2006, Brynhildur Þor- kelsdóttir, f. 9.12. 1946, gift Valdimar Krist- inssyni. Einar kvæntist 1980 Krist- ínu Guðrúnu Jóhannsdóttir, f. 4.1. 1955, foreldrar hennar eru Guðrún Hildur Friðjóns- dóttir, f. 6.7. 1934, og Jóhann Ingimarsson, f. 23.7. 1926 , d. 10.1. 2016 Dætur þeirra Ein- ars og Kristínar eru: 1) Elísa Það er skrítið að fá ekki að ganga í gegnum lífið lengur með pabba og hafa hann á hliðarlín- unni að gefa manni ráð. Pabbi var alltaf hress og í góðu skapi og nýtti sér öll tækifæri sem hann gat til að grínast í manni. Pabbi og mamma kynntust í Kerling- arfjöllum sumarið 1979 þar sem pabbi var skíðakennarinn henn- ar. Þau hittust aftur um haustið á skíðaballinu og eftir það varð ekki aftur snúið. Þau giftu sig 1980 og eftir tíu ára barnleysi kom loks fyrsta stelpan árið 1990. Við höfum alla tíð búið í sama húsinu sem pabbi byggði í Mosfellsbæ. Pabbi átti tvíburabróður sem lést 19 ára, hann missti eldri bróður sinn eftir bílslys sex árum síðar og svo lést móðir hans tveimur árum eftir það. Hann fékk krabbamein seinna á ævinni en læknaðist af því. Hann vissi að lífið væri stundum ósanngjarnt en kenndi okkur alltaf að vera sterkar sama hvað á gekk. Pabbi var mikill tónlistarunn- andi og vann fyrir sér sem trommari þegar hann stundaði nám í Iðnskólanum við húsasmíð- ar. Við sérstök tilefni tók hann svo upp fiðlubogann og spilaði á Stradivarius-sögina sína. Hann var iðinn í íþróttum, byrjaði að æfa á skíðum mjög ungur og keppti mikið. Þegar hann var 19 ára hjólaði hann yfir Kjöl og Auðkúluheiði með tveimur vinum sínum og var alla sína ævi mjög orkumikill og duglegur. Hann fór oft í veiðiferðir og seinna á æv- inni fór hann að spila badminton sem honum þótti mjög gaman og spilaði einnig golf af og til. Þrátt fyrir aldur og fyrri störf var pabbi tæknilega sinnaður og hafði gaman af því að fylgjast með nýjustu tækninni. Hann fylgdist vel með tímaritinu Lif- andi vísindum, keypti sér iPad og gerði sér lítið fyrir og sendi okk- ur snapchat-skilaboð þegar við vorum í skólanum. Síðastliðið ár var erfitt fyrir hann vegna veikinda og einnig var erfitt að sjá hann fjara út – þennan orkumikla einstakling sem hann var alltaf. Þrátt fyrir allt hélt pabbi alltaf í húmorinn sinn fram á það síðasta. Við eig- um svo margar góðar og skemmtilegar minningar og munu þær ylja okkur um ókomin ár. Kossi föstum kveð ég þig, kyssi heitt mitt eftirlæti, fæ mér nesti fram á stig, – fyrst ég verð að kveðja þig. Vertu sæll! og mundu mig minn í allri hryggð og kæti! Kossi föstum kveð ég þig kyssi fast mitt eftirlæti. (Jónas Hallgrímsson) Blessuð sé minning elsku pabba og við kveðjum hann með söknuð í hjarta. Þínar dætur, Elísa Hildur Einarsdóttir, Eydís Rún Einarsdóttir, Guðrún Alfa Einarsdóttir. Í dag kveðjum við minn kæra bróður Einar og eru systkini mín sex, þar með öll horfin á braut. Hugurinn reikar til æsku- heimilisins í Krossamýri þegar þau hafa kvatt hvert af öðru og gerir nú við fráfall Einars. Bú- skaparstússins í kringum hesta og kindur sem við tókum þátt í af mismiklum áhuga. Hjá Einsa lá áhuginn á vélum, þar var hann á heimavelli. Seigla og áræði voru hans ein- kenni og kom það skýrt fram í mörgum ferðum hans um fjöll og firnindi þar sem glíma þurfti við ýmis úrlausnarefni. Segja má að Einar hafi ánetj- ast veiðiskap í Krossamýrinni og þar hafi kviknað veiðibakterían þar sem hann, ásamt pabba og bræðrum, lagði stund á netaveið- ar í Elliðavogi. Síðar færðist áhugasviðið yfir í stangveiðina og var það eitt af aðaláhugamálun- um, ásamt skíða- og fjalla- mennsku. Ekki má svo gleyma einu af áhugamálum Einars á yngri ár- um sem var að stríða okkur systkinunum og þá sér í lagi mér. Rifjuðum við það oft upp saman er hann eitt sinn bauðst til að hjálpa mér upp í fiskitrönur í ná- grenninu því þaðan væri svo gott útsýni. Þegar upp var kom- ið og ég að njóta laumaðist hann niður og „gleymdi“ mér lengi dags. Tvíburabróðir Einars var Ás- geir Halldór, Þorkell var tveim- ur árum eldri og voru mjög sterk bönd á milli þeirra þriggja. Það var mikill missir fyrir Einar er þeir féllu frá langt um aldur fram. Geiri lést 19 ára eftir lang- varandi veikindi og Keli 27 ára í bílslysi fimm árum síðar. Mikið tóm hefur vafalítið orðið hjá Einari en þar hjálpaði mikið öfl- ugur vinahópur þeirra bræðra, sá vinskapur hélst alla tíð. Einar var framsækinn og fylgdist vel með nýjungum og eignaðist hluti eins og grammó- fón. Var það stór stund þegar menn eins og Fats Domino, Chuck Berry og fleiri frægir kappar fóru að hljóma í kjall- aranum í Krossó og vinsældir Einsa meðal okkar systkina juk- ust um heilan helling. Síðan kom að því að þeir fóru að gera sig gildandi á tónlist- arsviðinu, Geiri og Keli spiluðu á harmonikkur og Einar á tromm- ur. Eftir brotthvarf þeirra bræðra spilaði Einar með öðrum við hin ýmsu tækifæri og þá ekki síst í Kerlingarfjöllum, þar sem hann dvaldi oft í góðra vina hópi. Það var einmitt þar sem hann fann Stínu sína og var það okkur systrum mikill léttir að hann skyldi loksins ná sér í konu, vor- um búnar að gefa slíkt upp á bátinn. En það var í þessu eins og mörgu öðru að Einar fór sér hægt og af öruggi í hlutina. Byggði fyrst hús, síðan kom konan og síðast en ekki síst þrjár yndislegar dætur. Einar lærði ungur trésmíði og vann alla tíð við iðnina, síðastur af mörgum lærlingum Einars var sonur minn, Alfreð Mounir. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa átt Einar að í gegnum lífið, alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd af sínu öryggi og rósemi. Notalegt var að fá hann í morg- unverð síðustu árin að loknum göngutúr með henni Loppu. Að endingu sendum við í Víði- teignum hlýjar samúðarkveðjur „yfir stokkinn“. Megi minningin um ástríkan föður og eiginmann veita ykkur styrk í sorginni. Brynhildur. Þá hefur hann Einar mágur minn og vinur kvatt þessa tilvist eftir erfið veikindi. Það eru líklega einhver 40 ár síðan hún systir mín kynnti hann fyrir okkur. Tæplega með- almaður á hæð en nokkuð sam- anrekinn og bar sig vel. Hann átti rauðan Bronco-jeppa sem unga manninum þótti spennandi farkostur. Svo spilaði hann á sög. Ekki skemmdi fyrir að hann átti Labradorhundinn Týra sem var einstakur. Svo Einari var vel tekið og ekki síst vegna þess að hann var stór- skemmtilegur og síðar góður fé- lagi. Við brölluðum margt. Kerlingarfjöll voru oft heim- sótt þar sem hann var skíða- kennari og hafði heillað systur mína upp úr skónum. Veiðiferðir jafnt í laxveiðiár sem og eftir- minnileg bátsferð út á Hestvatn þar sem net kom við sögu og mesta vinnan var að koma aflan- um óséðum frá borði, enda höfð- um við „villst“ aðeins of langt út á vatnið. Eina skiptið sem ég hef séð mann dansa í vöðlum var þarna um kvöldið. Eitt sinn á gamlárskvöldi fannst Einari útsýnið hjá henni móður minni ekki alveg nógu gott til að fylgjast með flugeld- unum. Sagan segir að hann hafi manað mig til að fylgja sér upp á þak hússins en allavega er til mynd af okkur þar sem við erum að skríða eftir þakinu í sparföt- unum við hróp og köll skelfingu lostinna fjölskyldumeðlima. En við sáum flugeldana vel. Minningar um góðan og heil- steyptan mann munu ylja manni. Hann reyndist mér alltaf vel og ég gat alltaf leitað til hans. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast. – Það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) Ég kveð vin minn og mág. Jóhann Steinar Guðmundsson. Í dag kveðjum við Einar móð- urbróður minn. Þau orð sem koma helst upp í hugann, ef ég ætti að lýsa honum, eru rólegur, yfirvegaður, ekkert stress, þetta kemur allt. Þessum hliðum Ein- ars kynntist ég best þegar ég fór að læra húsasmíði hjá honum strax eftir grunnskóla. Á þeim tíma rak hann ásamt Kela afa, Fiffa frænda og pabba Tré- smiðjuna K-14 sem þýddi Kros- samýrarblettur 14 en það var einmitt heitið á æskuheimili Einars, þar sem hann ólst upp ásamt sex systkinum sínum við gott atlæti foreldranna. Einar var tvíburi við Ásgeir sem lést úr nýrnasjúkdómi 19 ára gamall. Það hefur eflaust verið áfall fyr- ir Einar að missa Geira og síðar eldri bróður þeirra, Þorkel, sem lést 27 ára gamall í kjölfar bíl- slyss. Þetta var stórt skarð í samhentan systkinahóp, en þau fimm sem eftir voru héldu alla tíð vel saman. Það eru margar skemmtilegar grallarasögur til af Einari frá æskuárum þeirra í Krossamýrinni, sem móðir mín sagði mér. Einar var sá frændi sem hafði gaman af að espa mig, strákpjakkinn, upp og atast í mér, þurfti kannski ekki mikið til. Hann kallaði mig Bjössa, sem enginn annar gerði og þótti mér það skemmtilegt viðurnefni. Einar var meistarinn minn í húsasmíðanáminu. Við vorum þrír ungir lærlingar hjá honum á sama tíma og fundum allir fljótt fyrir því að okkur var treyst fyr- ir verkefnum, vélum sem og öðru. Við fengum kennslu og fórum síðan beint í verkefnin. Það var gott að finna þetta traust sem varð til þess að við urðum sjálfstæðir í verki. Ein saga kemur upp í hugann sem lýsir bæði húmor og yfirvegun Einars. Við vorum að vinna uppi í Kerlingarfjöllum við smíðar, Einar hafði verið þar í gegnum sína tíð við skíðaiðkun og skíða- kennslu. Ég og annar lærling- anna ætluðum að fara á bíl yfir Ásgarðsá sem á það til að verða mjög vatnsmikil ef svo ber undir. Við, ungir menn, á 4x4 fólksbíl töldum ána ekki fyrirstöðu. Allt kom fyrir ekki og bíllinn stopp- aði í miðri á, nú voru góð ráð dýr, langt í aðstoð og gsm-símar ekki til. Úr varð að félagi minn hljóp af stað að ná í Einar og fá hann til að koma og hjálpa okkur á sínum fjallabíl. Ég beið og horfði á vatnið flæða um bílinn í ánni. Löngu, löngu síðar, tíminn leið hægt hjá mér, kom Einar á jepp- anum með félaga minn, lærling- inn sinn, skömmustulegan. Ein- ar tók þessu öllu með ró, byrjaði á að stíga rólega út úr jeppanum, náði í myndavél, ég spurði hvort hann væri ekki með tóg, jú jú vertu rólegur þetta kemur allt. Myndir voru teknar á meðan Ás- garðsá hreinsaði bílinn að utan sem innan, já ekki var vanþörf á fannst frænda. Að lokinni myndatöku var loks bundið í bíl- inn og hann dreginn á þurrt. Strákar mínir, þið reddið þessu ég er farinn á kvöldvöku upp í skála. Enginn asi, ekkert stress. Einar hefur kvatt jarðlífið, ef- laust hvíldinni feginn eftir erfið veikindi og er nú umvafinn for- eldrum sínum og þeim systkin- um sem farin eru. Innilegar sam- úðarkveðjur til Stínu, Elísu, Eydísar og Guðrúnar frá okkur í Markholti 18. Minningin um góð- an frænda mun lifa. Þorbjörn V. Jóhannsson. Það var í skíðaskála ÍK í Skálafelli sem ég kynntist Einari og Þorkeli bróður hans en þar vorum við í góðu yfirlæti hjá Íþróttafélagi kvenna sem átti skálann. Þarna tókst fljótt góð vinátta milli okkar þar sem skíði voru stunduð á daginn í kvenna- brekkunni en kvöldvökur og skemmtan í lok dags. Þeir bræð- ur áttu þá heima á Krossmýr- arbletti 14 (þar sem nú er steypustöðin Vallá) sem á þeim tíma taldist nánast upp í sveit Þarna kom ég oft á unglingsár- um og seinna bættist í hópinn Guðný kærasta mín. Var þá margt brallað með þeim bræðr- um. Þorkell lést ungur í sviplegu bílslysi og var mörgum harm- dauði. Við skíðaiðkun í Skálafelli komumst við í kynni við skíða- menn í KR en skíðaskáli félags- ins hafði brunnið til kaldra kola árið 1955. Til þess að hægt væri að stunda skíði í Skálafelli leit- uðu KR-ingar á náðir ÍK með að- stöðu. Í framhaldinu gerðumst við KR-ingar og kepptum á skíð- um fyrir félagið um leið og unnin var sjálfboðavinna við að byggja nýjan skála félagsins. Í kjölfarið gerðist Einar formaður Skíða- deildar KR og stóð fyrir því ásamt öðrum góðum mönnum að byggja fyrstu stólalyftu landsins ásamt tveim toglyftum. Einar var vakinn og sofinn yfir verk- efninu og þetta varð til þess að í Skálafelli var besta skíðaaðstaða fyrir almenning á höfuðborgar- svæðinu. Hann var með í fyrstu ferð Valdimars og félaga í Kerl- ingarfjöll þar sem stunduð var skíðamennska allt sumarið og varð í framhaldinu geysivinsæll áfangastaður til skíðaiðkunar. Einar gerðist þar skíðakennari og í Kerlingarfjöllum kynntist hann Kristínu sem seinna varð konan hans. Þau eignuðust þrjár myndarlegar dætur. Hann var lærður trésmiður og smíðaði meðal annars forláta eldhúsinnréttingu í húsið sem við Guðný vorum að byggja. Var innréttingin sannkölluð völund- arsmíð enda hefur ekki þótt ástæða til að endurnýja hana. Einar var alla tíð mikill sprelli- gosi, hafði gaman af ýmsum uppátækjum og var oftar en ekki hrókur alls fagnaðar. Hin síðari ár hefur Einar átt við heilsu- brest að stríða. Við Guðný kveðj- um nú góðan og kæran vin. Kristínu og dætrum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hinrik og Guðný. Kveðja frá Lionsklúbbi Reykjavíkur. Lionsklúbbur Reykjavíkur var stofnaður þann 14. ágúst 1951 og er elsti Lionsklúbbur á Íslandi. Klúbburinn gekk í end- urnýjun lífdaga um síðustu aldamót þegar vaskur hópur fé- laga úr Skíðadeild KR gekk þar inn. Einar Þorkelsson, sem við kveðjum í dag, var mikilvægur félagi í þessum hópi. Hans verð- ur sárt saknað. Einar var ávallt mikill fé- lagsmaður. Hann var léttur í lund og sagði skemmtilega frá. Hann lét til sín taka hvar sem hann kom og nærvera hans fór ekki framhjá neinum. Nú þegar að kveðjustund er komið þökkum við félagarnir í Lionsklúbbi Reykjavíkur Einari fyrir áratuga samfylgd og send- um Kristínu, konu hans, dætr- um þeirra og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Þeirra missir er mikill. Blessuð sé minning Einars Þorkelssonar. Ragnar Arnbjörnsson, formaður. Kveðja frá Skíðadeild KR Í dag kveðjum við góðan fé- laga í Skíðadeild KR, Einar Þorkelsson, sem var einn af for- ystumönnum deildarinnar um langt árabil. Einar hóf ungur að stunda skíðaíþróttina í Skála- felli og fyrst fara sögur af hon- um í gamla ÍK-skálanum sem Íþróttafélag kvenna átti. Síðar flutti hann sig ofar í fjallið og gerðist félagi í Skíðadeild KR. Hann var formaður deildarinn- ar árin 1968-1976 og síðan for- maður rekstarstjórnar skíða- svæðisins í Skálafelli árin 1981-1986. Heimili Einars var einnig lengi á þessum árum aðal funda- og samkomustaður skíðadeildarinnar. Var þar oft glatt á hjalla og þjappaði þetta hópnum vel saman. Í formannstíð Einars var ný skíðalyfta reist á austursvæði Skálafells árið 1974 en þar voru aðstæður sérstaklega ákjósan- legar fyrir skíðaiðkun almenn- ings. Þetta olli byltingu í aðsókn á skíðasvæðið og efldi mjög alla starfsemi deildarinnar. Á þess- um árum voru skíðaferðir skóla- nema liður í starfi skólanna og var skáli félagsins þétt setinn frá miðjum janúar og fram á vor. Þetta útheimti mikla vinnu sem Einar stjórnaði af festu sem formaður. Hann var einnig formaður rekstarstjórnar KR á skíðasvæðinu þegar stóra stóla- lyftan var reist af skíðadeildinni en það var mikil og erfið fram- kvæmd. Auk þess að vera stórtækur í framkvæmdum í Skálafelli unni Einar skíðaíþróttinni mjög. Hann keppti á skíðum um tíma og var umhugað um framgang og árangur allra þeirra sem kepptu fyrir hönd deildarinnar. Hann var léttur í lund og hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Einnig lét hann oft í sér heyra á aðalfundum KR, þar sem hann brýndi félaga í öðrum deildum félagsins til dáða, einkum knatt- spyrnumennina. Við í Skíðadeild KR munum sakna Einars og að leiðarlokum þökkum við honum samfylgd- ina. Hann skilur eftir sig stórt skarð í hópnum og margar góð- ar minningar. Við sendum Kristínu, eiginkonu hans, og dætrunum Elísu, Eydísi og Guðrúnu ásamt öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorg sinni. Far þú í friði, góði fé- lagi. Guðmundur Guðjónsson, formaður Skíðadeildar KR. Einar Þorkelsson Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, REYNIR SIGURÐUR GÚSTAFSSON rafvirkjameistari, lést á heimili sínu, Hrannarstíg 40, Grundarfirði, fimmtudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 5. október klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Klakk í Grundarfirði. H. Elísabet Árnadóttir Árni Ólafur Reynisson Sólveig María Aðalbjörnsdóttir Helga Ingibjörg Reynisdóttir Bent Christian Russel Anna María Reynisdóttir Ágúst Jónsson Reynir Freyr Reynisson Grétar Þór Reynisson Svandís Hallbjörnsdóttir Helga Z. Gústafsdóttir Gunnar Örn Gunnarsson barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.