Morgunblaðið - 30.09.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.09.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opin handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir inn- ipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Boccia kl. 10.30. Gönguhópur kl. 10:30. Bingó kl. 13. Myndlist kl. 13. Sundleikfimi kl. 14.30. Spjallhópur Boðans hittist uppi í Kríusal kl. 15. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30- 10.30. Jóga með Carynu kl. 8.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Ragnheiði kl. 11:10. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20 og kaffi kl. 14.30-15.30. Jóga með Ragnheiði kl. 12:05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16. Frjáls spilamennska 13. Liðleiki í stólum 13.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7. Kaffi, spjall og blöðin við hringborðið kl. 8.50. ATH. NÝTT, Erum komin með púsluspil. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga kl. 10. Byrjen- danámskeið í línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlis- tarnámskeið kl. 12.30-15.30. Handavinnuhornið kl. 13-15. Foreldras- tund kl. 13. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. ATH. Salatbarinn byrjar aftur 1. okt. allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.50. Göngutúr um hverfið kl. 13. Bridge kl. 13. Skák kl. 14. Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Á morgun kl. 15. verður Bergur Ebbi rithöfundur og ljóðaskáld með upplestur á Vitatorgi. Heitt á könnunni. Verið öll hjar- tanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikf. Sjál kl.7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9.30. Kvenna- leikf Ásg. kl.11. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Zumba salur Strikið 8. kl. 16.15 Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 100-11. Leikfimi Helgu Ben 11- 11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl. 9. Boccia-æfing, kl. 9.30 Post- ulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gullsmári Mánudagar: Postulínshópur kl.9. Jóga kl.9.30 og kl.17. Handavinna kl.13.00. Bridge kl.13.00. Félagsvist kl.20.00. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 –14. Jóga kl. 10 – 11. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9, ganga kl. 10. frá Borgum og Grafarvogskirkju, dans í Borgum kl. 11. og prjónað til góðs kl. 13. í lis- tamiðjunni í Borgum og gefið til líknarmála. Félagsvist kl. 13. í dag í Borgum. Tréútskurður í umsjón Gylfa kl. 13 á Korpúlfsstöðum, Hádegsiverður á sínum stað og kaffiveitingar frá kl. 14.30 í dag. Allir hjartanlega velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45,Opin lístastofa kl.9-16, Upplestur kl.11,Trésmiðja kl.13-16, ganga m.starfs- manni kl.14, bíó í betri stofunni kl.15. Uppl í s.4112760. Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl, 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Síðsti séns að skrá sig í ferðina á morgun á Kjarvalsstaði. Leiðsögn og kaffi. Skráning hjá Kristínu í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Al- lir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold fram- hald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30 umsjón Tanya. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar með morgun- Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Jónas Jónssonfæddist á Ref- steinsstöðum í Víðidal 7. maí 1925. Hann lést á Sólvangi í Hafn- arfirði 21. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Jón Lárusson bóndi og kvæða- maður frá Hlíð, f. 26. desember 1873, d. 14. apríl 1959, og Halldóra Margrét Guðmunds- dóttir húsfreyja í Hlíð, f. 26. júní 1886, d. 28. ágúst 1963. Systkini Jónasar eru: 1) Sig- ríður, f. 29.12. 1915, d. 17.1. 1999. 2) Pálmi, f. 10.2. 1917, d. 3.6. 2011. 3) María, f. 15.4. 1918. 4) Kristín, f. 1.9. 1922, d. 20.7. 2009. 5) Guð- mundur, f. 7.5. 1925, d. 22.12. 2015. Auk systk- inanna ólst Vignir Árnason upp í Hlíð, f. 15.8. 1934. Jónas ólst upp í Hlíð á Vatnsnesi, en þangað flutti hann barnungur með foreldrum sínum og systk- inum. Skólahald með farand- kennara var í Hlíð og síðar sóttu tvíburabræðurnir héraðs- skólann á Reykjum í Hrúta- firði. Jónas, eða Jonni eins og hann var og er kallaður af systkinum sínum, hleypti heim- draganum og hélt til Reykja- víkur. Hann aflaði sér sveins- réttinda í húsasmíði og síðar meistararéttinda. Í Reykjavík kynntist hann Jóhönnu Gunnarsdóttur og giftust þau 2. ágúst 1952. Jó- hanna var dóttir Kristrúnar Jóhannesdóttur frá Brekku- holti við Bræðraborgarstíg og Gunnars Sigurðssonar, kaup- manns í Von við Laugaveg. Jónas og Jóhanna bjuggu fyrst í Tjarnargötu 10a en byggðu síðar raðhús að Álf- hólsvegi 2a í Kópavogi þar sem þau bjuggu lengst af. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Kristrún, f. 28.10. 1952, d. 12.4. 1975. 2) Gylfi Jónasson, f. 26.8. 1955, sölumaður hjá Dynjanda, kvæntur Kristínu Huldu Hauksdóttur, f. 1.12. 1951. Dóttir Gylfa er Kristrún Ýr, f. 14.9. 1980, sambýlis- maður hennar er Jón Björns- son, f. 21.5. 1972, og eiga þau þrjár dætur, Bríeti Elvu, Birg- ittu Kamí og Bergdísi Leu. Börn Huldu eru Unnur Hrefna Jóhannsdóttir, f. 25.1. 1971, og Guðgeir Snorri Jóhannsson, f. 21.1. 1976. 3) Jón Halldór Jón- asson, f. 19.4. 1958, upplýs- ingafulltrúi hjá Reykjavíkur- borg, kvæntur Guðrúnu G. Gröndal, framhaldsskólakenn- ara. Þeirra synir eru Össur Ingi, f. 16.5. 1988, og Hjálmar Snorri, f. 10.2. 2001. 4) Þórir Jónasson, f. 15.10. 1963. Jóhanna lést 29. maí 1993. Jónas kynntist í september 1994 Sólveigu Helgadóttur frá Hvaleyri í Hafnarfirði og hafa þau verið lífsförunautar síðan. Lengst af bjuggu þau á Arn- arhrauni í Hafnarfirði en á þessu ári saman á Sólvangi í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 30. sept- ember 2019, klukkan 15. Jónas Jónsson, sambýlismað- ur móður minnar í aldarfjórð- ung, hefur nú kvatt og haldið inn í Sumarlandið. Við hittum Jónasi fyrst fyrir um 25 árum eftir að hann og mamma kynntust, þá bæði búin að missa sína fyrri maka. Sagan af þeirra fyrstu kynnum er okk- ur vel kunn enda þótti þeim báðum hún bráðskemmtileg. Í stuttu máli er hún á þá leið að Jónas mætti á Kringlukrána eitt laugardagskvöld, sá út und- an sér hóp vinkvenna sem móð- ir mín var stödd með og til- kynnti yfir hópinn að hann væri að leita sér að ekkju. Þar með hófst þeirra vinskapur sem hef- ur varað æ síðan. Jónas var mikill kvæðamaður og orti hann ótal ljóð til mömmu sem mörg hafa varð- veist. Nú sé ég á lífinu lit Með ljósbrota fegursta glit Nú sólin mér lýsir Og Sólveig mig hýsir Þá sæll henni ástarljóð flyt (úr kvæðabálknum um þeirra fyrstu kynni) Fljótlega eftir að þau kynnt- ust flutti Jónas úr Reykjavík og settist að á Arnarhrauni 7 í Hafnarfirði og móðir mín flutti að sama skapi af Öldugötunni í Hafnarfirði á Arnarhraun 9. Á milli húsanna liggur Sléttahraun, sem þau kölluðu Ástarbrautina, og titlaði Jónas sig sem kost- gangarann hennar Sólveigar. Í rauninni bjuggu þau þó alla tíð saman. Flestar rósir falla í dá Fái þær ekki hlýju Ein þó lifir ágæt á Arnahrauni níu Þau voru samstiga í því sem þau tóku sér fyrir hendur, hvort sem það voru ferðalög, bíltúrar á Toyotunni, kleinubakstur, kæfu- gerð, Olsen Olsen með Hvaleyr- arreglum eða hvað annað sem þeim datt í hug að gera. Fyrir um tveimur árum fór að halla undan fæti þegar Jónas fékk heilablóðfall. Mamma ann- aðist hann eins vel og hún gat á meðan beðið var úrræða um vist- un fyrir Jónas, sem síðar varð á Sólvangi í Hafnarfirði. Fljótlega fór heilsu móður minnar einnig hrakandi og fyrir tilstilli stjórn- enda og starfsfólks Sólvangs fengu þau að sameinast og dvelja saman á sömu stofu sem gaf þeim mikla gleði. Miðviku- dagurinn 18. september var mik- ill tilhlökkunardagur hjá Jónasi, en þá fluttu vistmenn Sólvangs í nýtt og glæsilegt húsnæði – Nýja Sólvang. Í samtali sem ég átti við Jónas eftir fyrstu nóttina hans þar geislaði af honum fölskvalaus gleði yfir nýja her- berginu sem honum þótti ævin- týralega fallegt og með góðu út- sýni. Honum auðnaðist að eiga tvær nætur til viðbótar á þessum góða stað. Betri og ljúfari mann en Jón- as er ekki hægt að hugsa sér og var það mikill happafengur okk- ar allra að fá hann inn í líf okkar. Hann sýndi börnunum okkar mikinn áhuga og reyndist þeim hinn besti afi. Fjölskyldu Jónasar sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Skemmtilegar minning- ar munu fylgja okkur um alla tíð. Rögnvaldur og Lísa. Jónas Jónsson ✝ Unnur Péturs-dóttir fæddist í Reykjavík 26. febr- úar 1927. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 14. sept- ember 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigurást Kristjánsdóttir, húsfreyja og verka- kona, f. 1891 í Eyr- arsveit, og Jóhann Pétur Hraunfjörð skipstjóri og verka- maður, f. 1885 Í Helgafellssveit. Systkini Unnar eru; Ingvi Hraunfjörð Pétursson, f. 1914, eiginkona hans var Guðrún H. Pétursdóttir, f. 1916. Guðrún átti eitt barn frá fyrra sam- bandi en saman áttu þau sjö börn. Pétur Kristinn Pétursson, f. 1916. Hugi Hraunfjörð Pétursson, f. 1918, eiginkona hans var Lilja Zóphaníasardóttir, f. 1925, þau eign- uðust 10 börn. Hulda Hraunfjörð Pétursdóttir, f. 1921, eiginmaður hennar var Alfred Hólm Björnsson, f. 1915, þau áttu fjög- ur börn en Alfreð átti barn frá fyrra sambandi. Pétur Hraunfjörð, f. 1922, eiginkona hans var Helga I. Tryggvadóttir, f. 1924, þau áttu fjögur börn. Ásta María Pétursdóttir, f. 1928. Guðlaug Pétursdóttir Hraunfjörð, f. 1930, eiginmaður hennar var Sigfús J. Tryggvason, f. 1923. Þau áttu fimm börn saman en Guðlaug átti eitt barn frá fyrra sambandi. Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð, f. 1932, eiginmaður hennar var Karl Árnason, f. 1932, þau áttu þrjú börn saman. Unnur giftist Skúla Hafsteini Magnússyni árið 1946, f. 29. nóvember 1915, d. 1. nóvember 1976. Skúli starfaði við kennslu og blaðamennsku. Börn þeirra eru: Stúlka, f. 1946, dó samdæg- urs. Sjöfn Skúladóttir, f. 1948, hún var gift Jósep Leóssyni, f. 1947, þau skildu og eru barn- laus. Kristín Huld Nielsen, f. 1953, eiginmaður hennar er Peer Nielsen, f. 1950, þau eiga Belindu Huld, f. 1974, Annette, f. 1977, og Peter Claus, f. 1982, þau búa í Danmörku. Ásta María Jepsen, f. 1954, eig- inmaður hennar er Frank Jeps- sen, f. 1952, þau eiga Helenu Unny, f. 1973, og Tomas Christían, f. 1979, þau búa í Danmörku. Ingvar Unnsteinn Skúlason, f. 1956, eiginkona hans er Oddný Ólafsdóttir, f. 1955, þau eiga Elfar Aðalstein, f. 1979, og Kristínu Maríu, f 1985, stjúpbörn eru Ólafur Brynjar, f. 1972, og Guðrún Unnur, f. 1974. Magnús Skúla- son, f. 1958, eiginkona hans er Jóhanna Vilhjálmsdóttir, f. 1958. Börn þeirra eru Skúli Hafsteinn, f. 1979, Gunnar Bjarni, f. 1986, og Davíð Freyr, f. 1990, þau búa í Danmörku. Unnur fæddist í Vesturbæ Reykjavíkur en fjölskylda henn- ar fluttist fljótlega í eigið hús- næði í Sogamýri í Austurbæ Reykjavíkur þar sem hún bjó þangað til hún og eiginmaður hennar Skúli byggðu hús við hliðina á foreldrum Unnar þar sem þau bjuggu þar til Skúli lést 1976 langt fyrir aldur fram. Unnur lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar og lagði stund á nám í Hús- mæðraskóla í Stokkhólmi. Eftir að Skúli lést hóf hún störf hjá félagsþjónustu Reykjavíkur við að hjálpa sjúkum og öldruðum, það ásamt aðstoð við sína nán- ustu var hennar meginstarf það sem eftir lifði starfsævinnar. Síðustu æviárin bjó Unnur hjá yngsta syni sínum eða þangað til hún fór á Sunnuhlíð árið 2017. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þú ert farin rósin rjóða reifast móðu dagur hver. Þig ég man og minnist góða mun ég aldrei gleyma þér. Svo orti Pétur J. Hraunfjörð skipstjóri til dóttur sinnar þeg- ar hún hélt til Svíþjóðar í nám í kjólasaumi. Unnur móðursystir mín var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún var alltaf kát og skemmtileg og það var virki- lega gaman að hitta hana og spjalla um alla heima og geima. Ég var mikið hjá Unni sem barn, en hún gekk mér í móð- urstað þegar mamma gekk með bróður minn og lá á spítala í hálft ár. Unnur átti þá heima í Rauða- gerði, við hliðina á ömmu, og var ég þar löngum stundum. Síðar flutti Unnur heim til mömmu og fékk ég að njóta saumakunnáttu hennar þegar hún saumaði á mig forláta tery- lene-buxur, útvíðar og gríðar- lega flottar. Svo óx ég úr buxunum og Unnur flutti burt en alltaf var jafngaman að hitta hana, káta og hláturmilda. Enn leita ég í smiðju afa míns: Þú ert Unnur vonin væn veröld tók þig frá mér. Ósk mín er, að engin græn ætíð verði hjá þér. Við sendum systkinunum í Rauðagerði og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Jóhannes Hraunfjörð Karlsson. Unnur Pétursdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefn- um. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hve- nær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.